Bæjarins besta - 04.01.2007, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 15
Horfur á föstudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 10-15 m/s
við suðurströndina, en annars hægari. Él víða um land. Horfur
á laugardag: Norðaustan 13-18 m/s og snjókoma norðvestan-
lands, en annars hægari og él. Horfur á sunnudag: Norðanátt
og snjókoma eða él, en bjart suðvestan til. Horfur á mánudag:
Norðanátt og snjókoma eða él, en bjart suðvestan til.
Helgarveðrið
Bloggið…
Mikil fjölgun hefur orðið á
svokölluðum bloggurum á
meðal Vestfirðinga undan-
farin ár. Bloggvæðingin hefur
ekki aðeins náð til fólks undir
þrítugu, heldur teygir hún sig
upp í teygir sig
upp í gegnum
aldurshópana
og ræðst af töl-
vulæsi frekar
en aldri. Orðið
blog er dregið
af enska orðinu
weblog sem
mætti útleggja á
íslensku sem
vefskrá. Orðið
var síðan brotið
upp í orðið we
blog. Blogg eru
jafn ólík og ein-
staklingarnir sem skrifa þau.
Bæjarins besta fór á stúfana
til að forvitnast um hvað fólk
er að blogga um og fann þenn-
an pistil á vefsíðu Gríms Atla-
sonar, bæjarstjóra Bolungar-
víkur á slóðinni grimuratla
son.blogspot.com/.
Fall jólanna
Jóladagur var athyglisverð-
ur í lífi mínu. Fyrir utan að
hafa bætt hressilega utan á
mig með stjórnlausu áti á
Þorláksmessu,
aðfangadag
og jóladag (hélt
áfram á 2. í
jólum) - lenti
ég í miklu
ævintýri. Við
læstum okk-
ur úti þegar
við gengum
út á leiðinni í
jóladagsmessu.
Þegar heim
var komið
ákvað hús-
bóndinn að
hífa sig upp á skyggnið fyrir
ofan innganginn og reyna að
losa glugga. Það vildi ekki
betur til en svo að ég hrapaði
aftur fyrir mig og lenti í miðj-
um garðinum. Þar sem ég var
að falla sá ég líf mitt renna
hægt fyrir augunum á mér og
var ég viss um að mínir dagar
væru senn taldir. Ég lenti með
miklu brambolti á handriði og
þaðan út í garð. Handriðið
breyttist í duft en einhverra
hluta vegna stóð ég upp eftir
byltuna alveg óskaddaður. Ég
lifi!
Ég hugsa nú að nágrannar
mínir sem dvelja og vinna í
Skýlinu hafi frá ýmsu að segja
eftir að hafa haft Grím Atlason
og fjölskyldu fyrir augunum í
nokkra mánuði. Það er t.d.
alveg ósögð sagan af því þegar
frú Grímur fór til N.Y. og önn-
ur kona fór í bað á Vitastíg
8.......
Nú eftir hátíðarnar er ekki úr
vegi að bjóða upp á eitthvað örlítið
léttara en reykt kjöt og rjóma-
sósur. Sælkerar vikunnar ætla
reyndar ekki að bjóða upp á forrétt
enda segjast þau vera afskaplega
lítið forréttafólk. „Við ætlum hins
vegar að gefa uppskrift að hvít-
lauksosti sem var árangur mikilla
tilrauna og langra vökunátta fé-
laga okkar sem langaði í franskan
Boursin-hvítlauksost en hann
fékkst ekki hér á landi í þá daga.
Þetta hafði hann upp úr krafsinu:“
½ dl rjómi
400 g rjómaostur
Steinselja
Hvítlaukur
Hitið rjómann að suðu í litlum
potti, brytjið rjómaostinn niður í
heitan rjómann, merjið hvítlauk
eftir smekk hvers og eins (meira
en hálfur hvítlaukur er ekki hlið-
hollur meltingarfærum skv. fyrr-
nefndum félaga). Söxuð stein-
selja, hálft búnt ætti að duga.
Maukið öllu saman, hitið vel
og hellt aftur í formið undan
rjómaostinum og kælt. Afspyrnu
ágætt sem lystauki með rauðvíni
og/eða bjór.
Að þessu loknu er prýðilegt
að bjóða upp á saltfisk. Þessi er
með sultuðum lauk og papriku
og bragðast betur en á horfist
við eldun.
Allur sá saltfiskur sem ætlunin
er að hesthúsa, skorinn í hæfilega
bita og velt upp úr hveiti. Steikið
hann síðan upp úr olíu en smjör er
alltaf betra og þá spörum við það
ekki. Haldið heitum eða verið
forsjál og eldið fiskinn síðast.
Þá er það „sultan“. Í hana fer:
1 stk rauð paprika
1 stk græn paprika
2 stk rauðlaukar
½ dl hindberja- eða rauðvíns-
edik
2 dl sykur
Hreinsið, afhýðið eða flysjið
allt sem þarf slíka meðhöndlun,
brytjið síðan allt niður, smátt, stórt
eða einhvern veginn. Setjið í pott
ásamt lauknum og paprikunni og
látið malla í 20-30 mínútur.
Sósan með þessu er aðeins öðru-
vísi. Í hana skal setja:
1 dl balsamedik
4 dl ólífuolíu
a.m.k. 1 msk rúsínur
a.m.k. 1 msk sólþurrkaða
tómata
a.m.k. 2 msk rauðlauk, smátt
saxaðan
a.m.k. 1 hvítlauksgeira, smátt
saxaðan.
Mýkið rauðlaukinn og hvít-
laukinn í smá olíu, brúnið ekki.
Bætið balsamediki út í, látið suð-
una koma upp og látið malla í
nokkrar mínútur. Hellið þá rest-
inni af olíunni út í og hitið upp og
bætið þá sólþurrkuðum tómötum
og rúsínum út í. Hægt er að bera
þetta fram í skálum hvert og eitt
eða fiskinn ofan á sultunni í formi.
Það er ekkert galið að bera fram
hrísgrjón með þessum rétti.
Þá er það eftirrétturinn og er hann
það þyngsta í þessum pakka,
verðlaunaréttur runninn undan
rifjum fyrrnefnds félaga okkar. Í
hann þarf:
400 g rjómaost
2 egg
8-10 msk flórsykur
1-2 tsk vanilludropa
200 g suðusúkkulaði
½ l rjóma
10-12 plötur After Eight-
súkkulaði
Hrærið rjómaostinn vel eða þar
til hann er kekkjalaus.
Þeytið eggin þá rækilega ásamt
flórsykri og vanilludropum og
blandið því saman við ostahrær-
una. Bræðið súkkulaðiplöturnar
og hellið þeim smátt og smátt út í.
Kælið um stund. 10-12 plötur Aft-
er Eight kældar um stund í frysti
og síðan brytjaðar nokkuð smátt
og settar saman við. Rjóminn
stífþeyttur og blandað varlega
með skeið/sleif saman við allt hitt.
Sett í skál og kælt vel. Borið fram
í eftirréttaskálum. Einni plötu af
After Eight stungið á hornið ofan
í. Svolítil sletta af þeyttum rjóma
og/eða smákúlur af vanilluís til
skrauts og bragðbætis. Gott með
góðu kaffi.
Um leið og við vonum að þetta
bragðist sæmilega skorum við á
Guðrúnu Magnúsdóttur listakokk
og Einar Jónatansson yfirsmakk-
ara í Bolungarvík að koma með
krassandi matargerðartillögur.
Heimatilbúinn hvítlauks-
ostur og saltfiskréttur
Sælkerar vikunnar eru Hildur Elísabet Pétursdóttir
og Svavar Þór Guðmundsson á Ísafirði
Friðsæl áramót á Ísafirði
Hjá lögreglunni á Ísafirði var nokkuð rólegt yfir áramótin.
Talsverð drykkja var þó á gamlárskvöld í miðbæ Ísafjarðar og
gistu þrír fangageymslur vegna ölvunar og óspekta á almanna-
færi. Ekki bárust neinar tilkynningar vegna slysa á fólki. Hjá
Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar komu engin meiðsli eða
óhöpp inn á borð og var þar allt á friðsælum nótum yfir
áramótin að sögn Þorsteins Jóhannessonar yfirlæknis.
Fyrsta jólaballið í Haukadal
Jólaball var haldið í
fyrsta sinn í gamla félags-
heimilinu í Haukadal í
Dýrafirði á laugardag.
Heimilisleg stemmning
sveif yfir vötnum og boðið
var upp á rjúkandi heitt og
kaffiveitingar sem gestirn-
ir komu sjálfir með að
heiman. Bræðurnir Stúfur
og Hurðaskellir létu sig
ekki vanta á fögnuðinn og
ullu miklu fjaðrafoki með
tilheyrandi hlátrasköllum
þegar þeir sneru börnum á
hvolf til að athuga hvort
þau hefði stækkað frá því
um síðustu jól.
Einnig ætluðu þeir að
hafa einn gestanna, sem
svo vildi til að var Hemmi
Gunn, með sér heim í hell-
inn og reyndu árangurs-
laust að troða honum í
pokann hjá sér, en höfðu
þeir allir þrír mikið gaman
af. Að sjálfsögðu kættu
jólasveinarnir einnig börn-
in með góðgæti úr pokan-
um góða og dansi í kring-
um jólatréð. Þótti jólaball-
ið heppnast svo vel að
stefnt er að það verði ár-
legur viðburður héðan í
frá.
Bræðurnir Stúfur og
Hurðaskellir voru hrókar
alls fagnaðar á jólaballinu.
Hemmi Gunn var meðal gesta en hann dvelur jafnan í Haukadal yfir áramót.