Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 22. MARS 20074 34 hljómsveitir á tveimur dögum Allt stefnir í að 34 hljómsveitir muni stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, sem haldin verður á Ísafirði um páskana. Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, rokkstjóri hátíðarinnar, segir að ekki muni fleiri hljómsveitir bætast við, einfaldlega vegna þess að ekki er pláss í dagskránni. Vegna mikils fjölda hljómsveita var brugðið á það ráð að skipta hátíðinni niður á tvo daga, en hún hefst að kvöldi föstu- dagsins 6. apríl. Þá munu níu bönd stíga á stokk og tónleikarnir standa í u.þ.b. fjóra tíma. Daginn eftir, laugardag, byrjar fjörið um kaffileytið og lýkur einhverntíman eftir miðnætti. Eins og sagt hefur verið frá verður hátíðin haldin í gömlu Eimskipa- og Ríkisskipa skemmunni á Ásgeirsbakka við Ísafjarðarhöfn. Telur litlar líkur á aðgerðum af hálfu stjórnvalda fyrir kosningar Ómar Már Jónsson, sveitar- stjóri Súðavíkurhrepps, segir að órói sé í sveitarstjórnar- mönnum á Vestfjörðum vegna stofnunar hinnar svokölluðu Vestfjarðanefndar. Hann segir vandann í búsetu- og atvinnu- málum á Vestfjörðum alls ekki nýjan af nálinni og telur litlar líkur á að aðgerða megi vænta af hálfu stjórnvalda fyr- ir kosningar í vor og segist ekki telja að ráðamenn séu reiðubúnir til að takast á við málið af þeirri festu sem þarf til að snúa mjög langri þróun við. Ríkisstjórnin ræddi á fundi á þriðjudag byggðavandann á Vestfjörðum. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði þar erf- itt að benda á lausn á byggða- vandanum, en sagði niður- stöðuna í bili vera þá að stofna vinnuhóp um málið. Fulltrúar sveitarfélaga á Vestfjörðum fóru á fund rík- isstjórnarinnar í byrjun febr- úar og kynntu þar tillögur um úrlausnir fyrir atvinnu- og byggðamál á svæðinu. Ómar segir að það hafa verið mjög raunhæfar tillögur sem hefðu það að markmiði að hafa já- kvæð áhrif á atvinnu- og byggðamál hér og hann hefði viljað sjá ríkisstjórnina sjálfa fara í þá vinnu sem nefndinni er ætlað að gera. „Þó að ég hafi mikla trú á þeim aðilum sem hafa verið valdir í nefndina, þá er það útkoman eftir meðhöndlun ráðamanna sem skiptir öllu máli og ég leyfi mér að efast um að þær niðurstöður muni hafa nægilega mikið vægi til að snúa þeirri þróun við sem verið hefur,“ segir Ómar. bærilega þróun að finna víða í heiminum. Sú aðferðafræði sem beitt hefur verið undan- farin ár hér á landi til að sporna við byggðaröskun hefur því miður ekki gengið, það sjá það allir sem vilja sjá og því verður að leita annarra leiða. Lausnir ráðamanna þurfa að virka hvort sem er á Raufar- höfn, Bíldudal eða Ísafirði og getur tækifæri þeirra til dæmis verið fólgið í því að finna nýjar leiðir til að snúa við þekkri byggðaröskun með aðferðum sem ekki hafa verið reyndar áður, eins og skattaívilnunum ýmiskonar og beita þeim á jaðarsvæðum á landinu öllu sem eiga undir högg að sækja. Mögulegt væri að stilla verk- efninu upp sem evrópsku til- raunaverkefni og leita eftir fjármagni t.d. hjá Evrópusam- bandinu. Aðferðafræðin yrði að leiða til þess að fyrirtæki, fjárfestar og fjölskyldur sæju sér mun meiri hag af því að staðsetja sig á landsbyggðinni en verið hefur til þessa. Ef við fyndum meðulin sem duga til að snúa áralangri byggðarsökun við mætti í mörgum tilfellum heimfæra það upp á önnur jað- arsvæði annars staðar og því gæti verið mikil verðmæti fólgin í slíkri þekkingu og reynslu.“ – annska@bb.is Ómar Már Jónsson. Ómar segir jafnframt ekki rétt að tala um stöðuna ein- göngu í tengslum við Ísafjörð, vandinn sé mun víðtækari en það. „Í raun má sjá sambæri- lega þróun víða á jaðarsvæð- um, ekki bara hér á landi held- ur í Evrópu og í raun er sam- Veggspjald með áletruninni „Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik“, sem auglýsir nýjan kóladrykk frá Coca Cola, var tekið niður í versl- uninni Samkaup á Ísafirði undir lok síðustu viku, eftir að kvartað hafði verið undan að það særði blygðunarkennd viðskiptavina. Samkvæmt heimildum blaðs- ins sagði einn viðskiptavina meðal annars að slagorðið hvetti mögulega til ofbeldis meðal ungra drengja. Stefán Torfi Sigurðsson, hjá Vífilfell á Ísafirði, segir ætlunina ekki hafa verið að særa blygðunar- kennd nokkurs manns. „Ætlun okkar var að fá fólk til að brosa út í annað“, segir Stefán. „En við viljum ekki særa blygðunarkennd neins eða móðga, svo veggspjaldið kom strax niður. En við höldum okkar striki með restina.“ Seg- ir Stefán að honum þyki óneit- anlega sem þessu fylgi nokk- uð púrítanískur þankagangur. „Það er afturhvarf til fortíðar í tíðarandanum þessa stundina. Mér finnst þurfa svolítið góð- an vilja til að sjá eitthvað hroðalegt út úr þessu slagorði. Slagorðin í herferðinni eru öll í þessum gír: Af hverju ekki að snúa sér beint að kjarnanum og ekkert vesen.“ Nýi Zero-drykkurinn mun fyrst og síðast markaðssettur með karlmenn í huga. „Það má segja að með þessu séum við að reyna að búa til karl- mannlegan, sykurlausan kóla- drykk. Það hefur löngum loð- að við Diet Coke og Coca Cola Light að þeir hafi kvenlegra yfirbragð, og hafa herferðir okkar spilað inn á það. Okkur hefur þótt vanta sykurlausan kóladrykk fyrir karlmenn, enda hafa markaðsrannsóknir sýnt að karlmenn á aldrinu 15-35 ára drekka minna af sykurlausu gosi en aðrir hóp- ar. Við sjáum þetta sem tæki- færi til að stækka sykurlausa kólamarkaðinn, sérstaklega þar sem sykur er á undanhaldi í drykkjarvöru“, segir Stefán. Í Fréttablaðinu er haft eftir Árna Stefánssyni, forstjóra Vífilfells, að meðal þess sem gefi drykknum karlmannlegri áferð sé svartur litur umbúð- anna og auglýsingaherferðin sem er „talsvert beittari og meira ögrandi en fólk á al- mennt að venjast frá Coca Cola.“ Ekkert kynlíf með Zero forleik á Ísafirði Veggspjaldið sem tekið var niður í Samkaupum.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.