Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 19
Sælkerar vikunnar eru Katrín Pálsdóttir
og Þorsteinn Másson á Ísafirði
Horfur á föstudag: Suðlæg átt og rigning
eða slydda með köflum. Hiti 0-8 stig.
Horfur á laugardag: Suðlæg átt og rigning
eða slydda með köflum. Hiti 0-8 stig.
Horfur á sunnudag: Suðlæg átt og rigning
eða slydda með köflum. Hiti 0-8 stig.
HelgarveðriðÓska eftir kostnaðaráætlunBrunavarnaáætlun Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2007 var lögð fyrir umhverf-
isnefnd á dögunum og tekin til umfjöllunar. Á fundinum lagði nefndin til við bæjarstjórn
að brunavarnaráætlunin verði samþykkt, en óskar jafnframt eftir að tæknideild geri
kostnaðaráætlanir vegna lagfæringar og stækkunar á núverandi slökkvistöð, sem og vegna
uppsetningar og eftirlits á eldvarnarkerfum í skólum og leikskólum Ísafjarðarbæjar.
„Umhverfisnefnd bendir á nauðsyn þess að eldvarnarkerfi, sem eru í fyrirtækjum og
stofnunum séu beintengd við vaktstöð“, segir í fundargerð nefndarinnar.
Námsmannanúðlur
Sælkerar vikunnar bjóða að
þessu sinni upp á tvo rétti sem
eiga uppruna sinn að rekja til
Austurlanda. Fyrri rétturinn
kallast Námsmannanúðlur.
„Þennan rétt eldaði ég oft á
námsárum mínum í Reykjavík
og hann kemur sér vel þegar
gríðarleg blankheiti mæta sáru
hungri“, segir Þorsteinn. Einn-
ig bjóða þau upp á tælenskan
rækjurétt.
Námsmannanúðlur
1 stk 25 kr. núðlupakki
Allt sem til fellur úr ísskápn
um s.s. paprika, laukur,
skinka, hvítlaukur, pylsur
2 msk smjör/smjörvi
Dass af hlyn sírópi og soya
ef efni leyfa
Núðlurnar eru soðnar sam-
kvæmt leiðbeiningum og ekki
skemmir fyrir ef ¼ af súpu-
tening er bætt í pottinn. Á
meðan núðlurnar sjóða, fer
maður í það að saxa niður
grasið og ketmetið, setur það
á pönnuna með smjörinu og
lætur þetta malla. Svo hellir
maður sírópinu og soyasós-
unni yfir grasið og kjötið á
pönnunni
„Þegar núðlurnar er tilbúnar
hellir maður soðinu á djúpan
disk og sturtar núðlunum á
pönnuna. Svo sullar maður
aðeins í gumsinu með spaða
og skellir því síðan disk og
étur. Soðið má síðan nota sem
súpu og þá er maður aldeilis
orðinn grand á því með tví-
réttað“, segja sælkerarnir.
Tælenskur rækjuréttur
(Fyrir 4)
750 g af skellausri rækju
(helst 70/90 stk í kg eða
stærri)
1 stk paprika
½ laukur
Nokkrir sveppir
1 stk hvítlauksrif
½ sæt kartafla
2 dósir af Thai Pride red
curry sósu
½ af kókosmjólk
Sjóðið rækjuna (ef hún er
ekki soðin fyrir) og sætu kar-
töfluna. Setjið grænmetið á
pönnu og léttsteikið. Hellið
síðan úr dósunum á pönnuna
og bætið við rækjunum og
sætu kartöflunni sem á að
skera niður í hentuga bita.
Berið fram með hrísgrónum
og ísköldum gosdrykk. Taka
skal fram að því meira sem
sett er af kókosmjólk í réttinn
því mildari verður hann.
Við skorum á Þórarinn Ól-
afsson á Ísafirði að verða
næsti sælkeri vikunnar.
Einbýlishús
til sölu!
Til sölu er húseignin að Seljalandi 21 á
Ísafirði. Húsið er 197m² með kjallara undir
hluta af húsinu.
Sjón er sögu ríkar!
Upplýsingar gefur Halldór Sveinbjörns-
son í síma 894 6125þ
Ertu orðin(n) áskrifandi?
Áskriftarsíminn er 456 4560
Skólahreysti á Ísafirði
Hreystikeppnin Skólahreysti
verður haldin í íþróttahúsinu
á Torfnesi á Ísafirði í dag.
Skólahreysti er hreystikeppni
fyrir 9. og 10 bekkinga allra
grunnskóla landsins. Mótið
byggist upp á fimm keppnis-
greinum, piltar keppa í s.k.
upphífingum og dýfum, stúlk-
ur í armbeygjum og fitness-
greip en bæði kynin keppa
svo í hraðaþraut, sem byggð
er á mörgum mismunandi
þrautum.
Árið í ár er þriðja árið sem
mótið er haldið, en það er nú í
fyrsta skipti haldið á lands-
vísu. Alls verða haldnar 10
forkeppnir í Skólahreysti en
keppnin á Ísafirði er sú níunda
í röðinni. Stigahæsti skólinn
úr hverjum riðli kemst í úr-
slitakeppnina sem haldin
verður í Laugardalshöll þann
26.apríl. Það er til mikils að
vinna því sá skóli sem hreppir
fyrsta sæti í úrslitum fær 200
þúsund krónur í verðlaun sem
rennur til nemendafélags skól-
ans. Annað sætið fær 100 þús-
und krónur og þriðja sætið
fær 50 þúsund krónur.
Skólarnir sem keppa á Ísa-
firði eru Grunnskóli Bolung-
arvíkur, Grunnskólinn á Ísa-
firði, Grunnskólinn á Þingeyri
og Grunnskólinn í Súðavík.
Þess ber að geta að keppnin
verður tekin upp og sýnd á
Skjá einum nk. þriðjudag. Þá
verður úrslitakeppnin sýnd
beint frá Laugardalshöll laug-
ardaginn 26. apríl.
– tinna@bb.is Þrautirnar sem krakkarnir takast á við eru margvíslegar.
Sérkennilegt skordýr fannst í fyrirtækinu Marel á Ísafirði
nýlega en talið er að það hafi flust með varningi erlendis
frá. Að því er fram kemur á vef Náttúrustofu Vestfjarða er
skepnan sennilega húsamargfætla (Scutigera coleoptrata),
eða náinn ættingi hennar. Húsamargfætla hefur fundist
nokkrum sinnum á Íslandi, en ekki hefur frést af henni á
Vestfjörðum áður. Húsamargfætlur eru upprunnar við
Miðjarðarhafið, en hefur breiðst út um mestan hluta Evr-
ópu, Asíu og Norður Ameríku. Húsamargfætlan getur lif-
að allan sinn aldur innanhúss og er því algengur fylgifiskur
mannsins. Fullvaxin hefur hún að meðaltali 15 fótapör, en
þegar hún klekkst úr eggi eru þau stundum bara fjögur en
síðan fjölgar pörunum um eitt við hver hamskipti. Húsa-
margfætlur eru rándýr og lifa á ýmsum skordýrum, sem
þær drepa með eitri. Þær geta bitið menn en það er ekki al-
gengt. – thelma@bb.is
Sérkennileg padda fannst í Marel sem
talið er að sé húsamargfætla. Mynd: nave.is.
Húsamargfætla á Ísafirði
Búist við fjölda ferða-
manna til Ísafjarðar
Margir ferðamenn munu
leggja leið sína á Vestfirði í
sumar ef marka má fjölda
fyrirspurna sem hafa borist
Upplýsingamiðstöð ferða-
mála á Ísafirði. Heimir Hans-
son, forstöðumaður Upplýs-
ingamiðstöðvarinnar, segir að
fjöldinn hafi komið honum á
óvart en fyrirspurnirnar hafi
byrjað að streyma inn strax
eftir síðasta sumar. Þær hafa
svo farið úr því að vera al-
menns eðlis í að vera bein-
skeyttari og nákvæmari eftir
því sem nær líður sumri, af
því má draga þá ályktun að
fólk sé búið að ákveða að
koma vestur. Heimir segir að
spurt sé um allt milli himins
og jarðar, um ástand vega,
ferðir á Hornstrandir, áætlun
Breiðafjarðarferjunnar og
fleira. Sérstaklega er mikið um
útivistartengdar fyrirspurnir.
Það er ekki aðeins sumarið
sem leggst vel í Heimi því
tónlistarhátíðin Aldrei fór ég
suður og Skíðavikan hafa
greinilega vakið áhuga fólks.
Þá er fólk aðallega að velta
fyrir sér húsnæði, en gistirým-
ið sem Upplýsingamiðstöðin
hefur á skrá á Ísafirði er við
það að fyllast. Heimir hefur
bent fólki á fjölda gistimögu-
leika í nágrannabæjum Ísa-
fjarðar og taka flestir vel í
það. – tinna@bb.is
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Ísafirði, Edinborgarhúsinu.