Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 22. MARS 200718
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is – sími 849 8699
Mannlífið
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar
eru síðan birtar hér.
Blogg Sigmars Guðmundssonar
sigmarg.blog.is/blog/sigmarg
Smáauglýsingar
Veggsamstæða fæst gefins ef
hún er stótt. Á sama stað er til
sölu sjónvarpsskápur og borð-
stofuborð fyrir lítinn pening.
Uppl. í síma 869 8015.
Til sölu eru parketslípivélar með
efnum. Tilvalið tækifæri fyrir
smið sem vill vinna sjálfstætt.
Uppl. í síma 893 9362.
Óska eftir 3ja herb. íbúð til leigu
frá 10. apríl. Uppl. gefur Guffý í
síma 868 8464.
Til sölu er húseignin að Selja-
landi 21 á Ísafirði. Húsið er 197m²
með kjallara undir hluta af hús-
inu. Sjón er sögu ríkar. Uppl.
gefur Halldór Sveinbjörnsson í
síma 894 6125.
Til sölu er íbúðarhúsið í Fremri
Breiðadal. Húsið er 163m² að
stærð og í góðu standi. Húsið
er laust nú þegar. Á sama stað
er til leigu eða sölu harðfisk-
hjallur ásamt verkunaraðstöðu.
Hjallurinn er laus nú þegar. Leig-
ist eða selst saman eða í sitt
hvoru lagi. Uppl. í símum 456
6112 eða 894 4512.
Ef þú þarft að losna við Lazy
Boy stólinn, skaltu hringja í síma
867 9146.
Til leigu er 3ja herb. risíbúð á
Ísafirði með húsgögnum og
húsbúnaði frá 15. apríl nk. Uppl.
gefur Eiríkur í síma 845 2685.
Á föstudegi fyrir um tveimur vik-
um voru útibuxur sonar okkar
teknar af leikskólanum Sólborg,
örugglega í misgripum. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
ekki tekist að hafa uppá þeim.
Buxurnar eru glænýjar, svartar
með axlaböndum og endurskini.
Buxurnar eru í stærð 116-122
og framleiddar af Color Kids.
Ef þið finnið svona buxur í fór-
um ykkar, vinsamlegast hafið
samband í síma 694 9913 (Óli)
eða 699 2392 (Katrín).
Spurning vikunnar
Hefur þú trú á átaki af
hálfu stjórnvalda vegna
atvinnu- og byggðamála á
Vestfjörðum?
Alls svöruðu 613.
Já sögðu 78 eða 13%
Nei sögðu 535 eða 87%
Stofnfé
í Spari-
sjóði
Vest-
firðinga
óskast
keypt!
Upplýsingar í
síma 844 8262
Árshátíð Grunnskóla Ísafjarðar var haldin í síðustu viku.
Þrír hressir krakkar úr 7. bekk Grunnskóla Ísafjarðar fengu
það hlutverk að vera fjölmiðlafulltrúar hátíðarinnar. Hátíðin
er hápunktur vetrarins og allir nemendur skólans taka þátt eða
um 520 börn, hvort sem það er í leik eða undirbúningi.
Þunginn af undirbúningnum hvílir þó mestmegnis á nemum í
7. bekk, en ágóðanum af hátíðinni verður varið til að fjármagna
ferð nemenda í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði sem farin
er ár hvert. Þau Bæring Rúnar Henrysson, Heiðdís Hrönn
Magnúsdóttir og Tómas Helgi Svavarsson settust niður með
blaðamanni og svöruðu spurningum hans.
–Hver var yfirskrift hátíðarinnar í ár?
„Yfirskriftin í ár var Póstkort. Það er svona þema á hverju
ári, í fyrra var t.d. Veröldin er leiksvið og árið þar áður var
Hlátur og grátur.“
–Hvernig fer þetta allt saman fram?
„7. bekkur sér alltaf um hátíðina. Hann er eini bekkurinn
sem leikur á öllum sýningunum, en hinir bekkirnir skipta
sýningunum á milli sín. Í ár er það þannig að milli atriða hinna
bekkjanna erum við í 7. bekk með lítil atriði og kynnum svo
hin atriðin. 7. bekkur sér líka um miðasölu.“
–Hvað er skemmtilegast við árshátíðina?
„Að sjá leikritin hjá hinum bekkjunum og kynnast krökk-
unum í skólanum betur. Það er líka gaman að skemmta öðrum
og flestum finnst gaman að leika. Það er auðvitað best ef allt
heppnast vel og er flott.“
–Til hvers finnst ykkur árshátíðin vera?
„Til að skemmta fólki og skemmta okkur, kynnast betur og
leyfa foreldrum og ættingjum að sjá hvað við erum að gera.
Við lærum líka að koma fram, sem er mikilvægt.“
– tinna@bb.is Bæring, Heiðdís og Tómas eru fjölmiðlafulltrúar 7. bekkjar.
Árshátíð GÍ vegleg að vanda
Mikil stemmning var á
árshátíð Grunnskólans á Ísa-
firði sem hófst á fmmtudag í
síðustu viku. Fimm sýningar
voru á dagskránni og var
þemað „Póstkort“. Hver ár-
gangur flutti eitt atriði og voru
öll atriðin frumsamin. Greini-
legt var að heilmikil vinna var
lögð í að gera hátíðina sem
best úr garði enda hefur skóla-
starfið verið markað að undir-
búningnum undanfarnar vik-
ur. Þá nálgaðist hver bekkjar-
deild viðfangsefnið á sinn hátt
og var fjölbreytnin þar allsráð-
andi.
Póstkortin komu frá ýmsum
heimshornum og komu ýmsar
persónur við sögu. Til dæmis
var farið til Englands þar sem
drottningin var heimsótt,
komið var við í Disney-landi
í Ameríku og pósturinn Njáll
færði Stubbunum og Rauð-
hettu póstkort. Skemmtunin
þótti heppnast með eindæm-
um vel en henni var framhald-
ið um kvöldið og á föstudag.
Hátíðin er hápunktur vetrar-
ins og allir nemendur skólans
tóku þátt eða um 520 börn,
hvort sem það er í leik eða
undirbúningi. Þunginn af und-
irbúningnum hvíldi þó mest
megnis á nemendum í 7. bekk,
en ágóðanum af hátíðinni
verður varið til að fjármagna
ferð nemenda í skólabúðir að
Reykjum í Hrútafirði.
Póstkort víða úr heimi á árshátíð GÍ
Póstkortin komu frá ýmsum heimshornum, meðal annars Tælandi.
Olsen bræðurnir Dönsku voru aðalnúmerið á veglegri Evróvisjón árshátíð Kaupþings í gærkvöldi. Allt varð
brjálað í 1800 manna veislunni þegar Danirnir stigu á stokk en þeir sigruðu Evróvisjón eftirminnilega árið
2000. Gert var ráð fyrir að Olsen bræður flyttu þrjú lög á árshátíðinni en þeir bættu nokkrum við vegna
góðra undirtekta Kaupþingsfólks. Evróvisjónþemað mæltist vel fyrir hjá fólki og það var vel pakkað á dans-
gólfinu í öllum atriðunum. Icy tríóið kom saman og söng gleðibankann, Stebbi og Eyfi tóku Nínu (tvírætt
orðalag), Selma söng bæði evróvisjónlögin sín, Eiríkur söng nýja lagið og Páll Óskar söng og þeytti skífum.