Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 15 Augnlæknir Þóra Gunnarsdóttir, augnlæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 2.-5. apríl. Tímapantanir eru frá og með 28. mars í síma 450 4500 á milli kl. 08:00 - 16:00 alla virka daga. Raggagarður fær gjöf Félag Álft- og Seyðfirðinga færðu Raggagarði í Súðavík 100.000 krónur að gjöf á dögunum. Styrkurinn er ætlaður til framkvæmda í garðinum nú í vor. Eins og fram hefur komið er Raggagarður búin að festa kaup á stórum og voldugum leikkastala og öryggishellum undir hann, sem verður aðgengilegur gestum garðsins nú í sumar. Í fyrrahaust hlupu framkvæmdir í garðinum á 8 milljónum króna, en fyrsti áfangi garðsins var opnaður árið 2005. Garðurinn er staðsettur í ytri byggð Súðavíkur. Sjaldséðir fuglar á Vestfjörðum Farfuglarnir eru koma til landsins þessa dagana og með þeim hafa verið að koma fuglar sem eru sjaldséðir á Vestfjörðum. Svartþrestir (Turdus merula) hafa verið að sjást á nokkrum stöðum í Strandasýslu, á Ísafirði og í Bolungarvík. Þeir hafa sést yfir vetur hér vestra t.d. á Þingeyri en talið er að þessir fuglar hafi verið nýkomnir. Svarþröstur verpir í Reykjavík en er sjaldgæfur varpfugl. Glóbrystingur (Erithacus rubecula) sást við Kirkjuból í Steingrímsfirði og við Miðhús í Kollafirði (Stranda- sýsla). Einnig sást vepja (Vanellus vanellus) við Kirkjuból í Steingrímsfirði. Hús Ratsjárstöðvarinn- ar á almennan markað Íbúðarhús í Bolungarvík sem voru í eigu Ratsjár- stöðvarinnar á Bolafjalli verða sett á almennan mark- að. Þetta segir bæjarstjóri Bolungarvíkur, Grímur Atla- son. Húsin eru nú í eigu Lýsingar hf., og stendur til að setja þau í sölu, en ekki leigja út eins og bæjaryfir- völd höfðu verið að vonast til. Ekki kemur til greina að bærinn kaupir húsin, enda segir Grímur frekar verið að vinna í því að selja íbúðir í eigu bæjarins. Þannig hafa 50 af 80 íbúð- um bæjarins verið seldar á síðustu árum. Grímur segir að starfs- menn stöðvarinnar sem sagt var upp störfum í haust séu því miður að tínast úr bænum, en fæstir þeirra sáu sér fært að vera um kyrrt. Til stendur að fjarstýra þremur ratsjárstöðvum Rat- sjárstofnunar Íslands á landsbyggðinni frá stöð á Miðnesheiði. Styrkir Húsafriðunarnefnd- ar í ár til húsa á Vestfjörðum nema rétt tæpum 50 milljón- um króna. Stærstu styrkirnir voru ákvarðaðir af fjárlaga- nefnd ríkisins í samráði við Húsafriðunarnefnd í nóvem- ber á síðasta ári. Þá fengu út- hlutað styrkjum Barnaskólinn Reykjanesi, Einarshús Bol- ungarvík, Miðstræti 3, Bol- ungarvík, Íbúðarhúsið í Eyrar- dal, Álftafirði, Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson á Flat- eyri, Vatneyrarbúð á Patreks- firði, Pakkhúsið Vatnseyri, Gamla prestssetrið Brjánslæk, Vélsmiðja Guðmundar J. Sig- urðssonar og Síldarverksmiðj- an Djúpavík. Í þeirri úthlutun fengu einnig Patreksfjarðar- kirkja, Staðarkirkja, Aðalvík og Bíldudalskirkja styrki, en sú síðastnefnda fékk hæsta styrkinn eða 5 milljónir. Þessir styrkir nema rúmum 40 millj- ónum króna. Minni styrkir til húsa á Vestfjörðum fóru til Verts- húss í Flatey, verslunarhússins í Hæstakaupstað á Ísafirði, Herkastalans á Ísafirði, Mjall- argötu 5 á Ísafirði, Dunhaga á Tálknafirði, gamla bæjarins á Sveinseyri, Brekkugötu 8, Fjarðargötu 5 og Fjarðargötu 8 á Þingeyri, Steinhússins á Hólmavík og hákarlahjalls á Reyðarhlein, lægstu styrkir í þessum flokki námu 200 þús- undum króna og sá hæsti var 600 þúsund. Nokkrar friðaðar kirkjur að auki fengu styrki frá Húsafriðunarnefnd en þar fékk stærstan styrkinn Hóls- kirkja í Bolungarvík eða 900 þúsund krónur. Aðrar kirkjur sem fengur styrki eru: Gufu- dalskirkja, Eyrarkirkja í Seyð- isfirði, Staðarkirkja Staðardal og Bænhúsið í Furufirði. Nokkur friðuð hús á Vest- fjörðum fengu að auki styrki en þau eru: Jónassenshús, Miðkaupstað á Ísafirði, Gamla Faktorshúsið Neðstakaupstað, Edinborgarhúsið, Gamla salt- húsið á Þingeyri og Riis-hús Borðeyri sem fékk hæsta styrk- inn eða 1 milljón króna. Nær 50 milljónir króna til framkvæmda á Vestfjörðum Edinborgarhúsið á Ísafirði er á meðal þeirra húsa sem fengu styrk frá Húsafriðunarnefnd. Landbúnaðarráðherra undirrit- ar samstarfssamning við Storm Guðni Ágústsson, landbún- aðarráðherra, undirritaði á dögunum fyrsta samstarfs- samning landbúnaðarráðu- neytisins um byggingu reið- húsa og er hann við Hesta- mannafélagið Storm á Vest- fjörðum. Ráðuneytið styrkir félagið um 12 milljónir króna. Áður höfðu stjórnir Hesta- mannafélagsins Storms og Knapaskjóls ehf. auk Halldóra Halldórssonar bæjarstjóra Ísa- fjarðarbæjar undirritað samn- inginn. Samstarfssamningar við hestamannafélögin er leið landbúnaðarráðuneytisins í að efla og styrkja hestamennsku á Íslandi. Í mars 2006 úthlut- aði nefnd sem skipuð var af landbúnaðarráðherra styrkj- um til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. Heildar- úthlutun styrkja nam 330 milljónum króna en alls bárust nefndinni 41 umsókn. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti í mars 2006 bygg- ingarleyfi fyrir 820 fermetra reiðhöll á 6.600 fermetra lóð á Söndum í Dýrafirði. Reið- höllin á Söndum er nú fullgerð og starfsemi þegar hafin. Stefnt er að því að vígja húsið formlega nú í lok mars. Hesthús Stormsfélaga að Söndum í Dýrafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.