Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 22.03.2007, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 22. MARS 20078 STAKKUR SKRIFAR Sjósókn og fórnir Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Per Sulebust Aðalstræti 6, Bolungarvík Grétar S. Pétursson Sólveig S. Kristinsdóttir Anna S. Pétursdóttir Gísli Hallgrímsson barnabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Guðríðar Guðmundsdóttur frá Flateyri Kæru ættingjar og vinir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlífar og Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ Þórunn Kristín Bjarnadóttir Ingimundur Guðmundsson Guðrún Bjarnadóttir Guðmundur Björn Hagalínsson G. Skúli Bjarnason Halldóra Ottósdóttir Sæþór Mildinberg Þórðarson Marta Margrét Haraldsdóttir Þórður Sæberg Bjarnason Ulla Faag og aðrir afkomendur. Eiríkur M. Þórðarson Fjarðarstræti 2, Ísafirði Elskulegur sambýlismaður minn og sonur, faðir okkar og fósturfaðir lést af slysförum 13. mars. Jarðaförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 23. mars kl. 14:00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á björgunarsveitirnar á Vestfjörðum Pálína K. Þórarinsdóttir Erla Þorvaldsdóttir Avona María Eiríksdóttir Fannar Ingason Brynjar Ingason Almar Ingason Óttar Gunnarsson Ingi Guðmundsson Mötuneyti á vegum Ísafjarðarbæj- ar lækki gjöld um 9% í byrjun ágúst Samkvæmt tillögum um lækkun á gjaldskrám vegna matarkostnaðar í mötuneytum Ísafjarðarbæjar mun gjaldskrá leikskóla almennt lækka um 9%, og sama lækkun er lögð til í mötuneytum Ísafjarðar- bæjar við grunnskólana á Suð- ureyri, Flateyri og Þingeyri. Hins vegar er mötuneytið í Grunnskólanum á Ísafirði bundið af samningi við SKG- veitingar, en í þeim samningi er uppsagnarákvæði sem segir að hægt sé að segja samningi upp með 6 mánaða fyrirvara af hvorum aðila sem er. Þá segir að verðlag á mat skv. tilboði taki breytingum skv. neysluvísitölu 1. ágúst ár hvert. Í bréfi sem Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðu- maður Skóla- og fjölskyldu- skrifstofu Ísafjarðarbæjar, skrifar bæjaryfirvöldum vegna þessa máls segir meðal annars. „Það er ekkert annað ákvæði í samningnum sem hægt er að vísa til við endurskoðun skv. bókun bæjarstjórnar. Ekki borgar sig að segja upp samn- ingnum því uppsögn tæki gildi eftir næstu vísitöluteng- ingu og í næstu vísitöluteng- ingu kemur fram ef verðbólga hefur minnkað í samræmi við lækkun gjaldskráa. Það er því ekki hægt að endurskoða verð í mars á grundvelli samnings.“ Segir Ingibjörg einnig að þar fyrir utan sé verðfyrir- komulag það sem samþykkt var síðastliðið haust þess hátt- ar að foreldrar sem hafi skráð börn sín í mat alla önnina hafi nú þegar notið 12% lækkunar á matarkostnaði, ef miðað er við neysluvísitölu þann 1. ágúst síðastliðinn. Foreldrar sem skráð hafa börn sín í mötuneytið einn mánuð í senn hafa fengið 7% afslátt allt skólaárið. „Það er því óhætt að segja að foreldrar barna í Ísafjarðarbæ hafi notið lækk- unar í 9 mánuði en ekki ein- göngu síðustu 3 mánuði skóla- ársins. Á sama tíma hefur ver- ið hækkun á hráefni hjá mötu- Einnig hækkuðu fæðisgjöld grunnskólabarna á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri þegar reynt var að samræma gjöld innan Ísafjarðarbæjar. Gerð er tillaga um að lækka það. Fæð- isgjöld hjá SKG veitingum hækkuðu hins vegar ekki til neytenda ef nýttur er fullur afsláttur og hafa þá verið þau sömu sl. 2 ár. Meðal annars af þeirri ástæðu er ekki gerð til- laga um að lækka þá gjald- skrá.“ Vekur Ingibjörg María einn- ig athygli á því í bréfi sínu að mötuneyti Ísafjarðarbæjar njóta tilsagnar og ráðgjafar frá matvælafræðingi samkvæmt samningi, og segir að það fyrirkomulag hafi reynst vel. „Nú horfa önnur sveitarfélög til okkar reynslu í þessum efn- um við að koma slíku á hjá sér. Þær aðfinnslur og gagn- rýni sem komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið um skólamötuneyti á höfuðborg- arsvæðinu á ekki við hjá okk- ur. SKG veitingar hafa verið með einstaklega fjölbreyttan matseðil, vel samsettan, alla tíð verið með salatbar með almennum mat og þetta skóla- ár verið með tvöfaldan mat- seðil fyrir unglingastigið. Allt eru þetta atriði sem gagnrýnd mötuneyti eru að taka upp til að bæta sig.“ Bæjarráð tók tillögur Ingi- bjargar til umfjöllunar og lagði til við bæjarstjórn að gjaldskrár í mötuneytum rekn- um af Ísafjarðarbæ lækki um 9% frá og með 1. mars síðast- liðnum. Bæjarstjóra var falið að ganga til viðræðna við SKG-veitingar vegna lækk- unar á gjaldskrám þeirra vegna Grunnskólans á Ísa- firði, Bakkaskjóls í Hnífsdal og Hlífar á Torfnesi. neytum í samræmi við verð- bólgu og þá vísitöluhækkanir. Gjaldskrá SKG veitinga stóð í stað milli ára ef foreldrar skráðu barn sitt alla önnina í matinn. Það hafa því ekki komið til framkvæmda hækk- anir skv. vísitölu eins og ráð- gert er í samningi þeirra. Sú vísitala sem þeir hefðu getað hækkað skv. á nú að lækka í kjölfar lækkunar á skattlagn- ingu matvæla. Það er því óraunhæft að ætla SKG veit- ingum að lækka um verðbólgu sem þeir hafa aldrei sett á.“ Þá segir að sama eigi við um matarsölu til íbúa Hlífar, dvalaríbúða aldraðra, en kaup- endur þar fá 7% lækkun á mat- arskammt ef þeir eru skráðir í mánaðaráskrift. Þá segir í bréfinu: „Ef bæj- arstjórn óskar eftir því að nið- urgreiða fæðiskostnað í grunn- skólanum á Ísafirði eða hjá íbúum Hlífar eru eigendur SKG veitinga tilbúnir til að taka það inn í uppgjör sín en að öðru leyti er það mat þeirra og undirritaðrar að nú þegar hafi viðskiptavinir þeirra notið afsláttar sem er meiri en lækk- un skatts gæfi beint og hefur verið í lengri tíma en skatta- lækkunin. Hins vegar skal á það bent að mötuneyti sem nú eru að lækka verðskrá sína í kjölfar skattalækkana hækk- uðu gjaldskrár 1. janúar sl. Það er því oft á tíðum á fölsk- um forsendum sem lækkun á sér stað. Hjá Ísafjarðarbæ hækkaði fæðisgjald leikskóla- barna 1. janúar 2007 og því er tillaga um að lækka hana. Lækka á verð í mötuneytum Ísafjarðarbæjar. Það kreppir að okkur Vestfirðingum. Við höfum séð dökkt útlit fyrr. En nú höfum við enn verið minnt á það hve náttúran getur reynst óblíð og grimm. Tveir sjómenn fórust í síðustu viku og öll erum við hnípin og hugur okkar er með þeim sem eiga um sárt að binda. Aðstandendum eru sendar dýpstu samúðarkveðjur vegna missis þeirra. Á stundu sem slíkri skortir orð. Vestfirðingar hafa sótt sjóinn og viljað hafa til þess frelsi og aðstæður hafa skapað þann veruleika að nú er sjórinn sóttur fast á litlum bátum. Stærri skipin eru farin annað og því verður að horfast í augu við þann veruleika, að þeir sem sækja á smærri skipum eiga erfiðari leik. Þau þola ekki sömu veður og geta ekki sótt eins langt og hin. Íslenska þjóðin á sér nokkuð langa sögu slysavarna sem urðu til þess að Slysavarnafélag Íslands var stofnað árið 1928. Þjóðin vildi leggja sitt af mörkum til þess að varna slysum og takast á við afleiðingar þeirra. Enn eru þeir góðu menn, karlar og konur, sem leggja sitt af mörkum til að bjarga fólki við erfiðar aðstæður afar mikilvægur hlekkur þjóðlífsins og verður svo um ókmna tíð. Margt hefur áunnist á liðnum áratugum og sjónir okkar beinast enn að því sem betur má fara. Það er því í skugga þess að tveir sjósóknarar létu lífið í harðri lífsbaráttu sem umræðan um úrlausn handa Vestfirðingum fer fram. Eins og nú háttar til á Alþingi, komið að lokum kjörtímabils og allt í hers höndum ef svo má segja eru líkur á því að fundin verði lausn strax, afar litlar. Enn sem fyrr munu heimamenn taka að sér það hlutverk að vera í fararbroddi. Lausnir verða að fæðast hér heima fyrir innan fjórðungs, en þar með er ekki sagt að lausnir verði ekki þegnar annars staðar frá. Við þurfum á öllu okkar að halda og meiru til. Enn furða margir sig á því hvers vegna Vestfirðingar máttu ekki stunda sauðfjárbúskap. Héðan hefur komið eitt besta féð á Íslandi um aldir. Sjálfsagt hefur það verið sama eðli kvótakerfis og í sjávarútvegi sem þar réði för. En hverju sem sætti var kvótinn skorinn niður í landbúnaði, en han hvarf að miklum hluta vegna ákvarðana þeirra sem trúað var fyrir honum í sjávarútvegi. Engu að síður hafa verið til hér menn sem hafa barist áfram við þær aðstæður sem þeim voru skapaðar og áttu ekki aðra kosti en smá- skipaútgerð. Því þarf að breyta eða að minnsta kosti skoða alla fleti á því að kvótinn geti nýst á stærri skipum sem þola betur sjósókn en þau mörgu smáu skip sem nú eru gerð út. Engu að síður hafa þeir sem stundað hafa smáskipaútgerð sýnt af sér mikinn dugnað og því er sorgin mikil þegar menn láta lifið við það að draga fisk að landi.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.