Bæjarins besta - 22.03.2007, Side 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Tveir menn fórust í sjóslysi
við mynni Ísafjarðardjúps
Tveir menn fórust þegar 10
tonna bátur, Björg Hauks ÍS-
127, hvolfdi við mynni Ísa-
fjarðardjúps, milli Deildar og
Stigahlíðar, aðfaranótt mið-
vikudags í síðustu viku. Björg-
unarsveitir voru kallaðar út
frá Ísafirði og Hnífsdal. Leitar-
menn fundu bátinn stuttu síðar
og var 20 tonna bátur kallað-
ur út frá Bolungarvík til leitar
ásamt loðnuskipinu Krossey
sem var nærstatt.
Lík annars mannsins fannst
um kl. 01:30 um nóttina, um
eina sjómílu frá bátnum. Hann
hafði bundið um sig belgi. Lík
hins mannsins fannst um kl.
02:00, ekki langt frá. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins
hvarf Björg Hauks ÍS út af
skjá sjálfvirku tilkynninga-
skyldunnar kl. 20:43 og höfðu
þá starfsmenn vaktstöðvar sigl-
inga haft samband við bátinn,
þar sem þeir sáu að hann var
orðinn einn eftir á miðunum.
Þeir náðu aftur sambandi við
bátinn kl. 21:01 og sagðist
skipstjóri þá vera á leið til Ísa-
fjarðar og að ekkert amaði að.
Ellefu mínútum síðar, kl.
21:12, birtist trillan aftur í
sjálfvirka tilkynningakerfinu
og var inni í klukkustund, eða
til kl. 22:16. Kerfið lét svo
vita kl. 22:24 að báturinn væri
horfinn. Lík mannanna voru
flutt til Bolungarvíkur um
nóttina og um kl. 08:30 á mið-
vikudagsmorgun kom björg-
unarskipið Gunnar Friðriks-
son til Bolungarvíkur með
Björg Hauks í eftirdragi.
Mennirnir tveir sem fórust
í slysinu hétu Eiríkur Þórðar-
son og Unnar Rafn Jóhanns-
son. Eiríkur, sem var 47 ára,
lætur eftir sig sambýliskonu,
eina dóttur og fimm fóstur-
syni. Unnar Rafn, sem var 32
ára, var ókvæntur og barnlaus.
Báðir mennirnir voru búsettir
á Ísafirði. – bb@bb.is
Eiríkur Þórðarson. Unnar Rafn Jóhannsson.
Björgunarskipið Gunnar Friðriksson kom með Björg
Hauks í togi til Bolungarvíkur árla á miðvikudagsmorgun.
Nefnd
skipuð
Ríkisstjórnin hefur sam-
þykkt tillögu forsætisráð-
herra um að skipa nefnd
til að fjalla um leiðir til að
styrkja atvinnulíf á Vest-
fjörðum. Nefndin er skip-
uð í framhaldi af viðræð-
um fulltrúa sveitarfélaga
á Vestfjörðum við ríkis-
stjórnina að undanförnu.
Auk fulltrúa forsætis-
ráðuneytis eiga sæti í
nefndinni fulltrúi frá iðn-
aðar- og viðskiptaráðu-
neyti, bæjarstjórinn á Ísa-
firði og framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands
Vestfirðinga. Nefndinni
er ætlað að skila tillögum
sínum til forsætisráðherra
eigi síðar en 11. apríl nk.
Staða skól-
meistara
auglýst laus
Embætti skólameistara
Menntaskólans á Ísafirði
hefur verið auglýst laust
til umsóknar. Núverandi
skólameistari, Ingibjörg
S. Guðmundsdóttir, var
aðeins sett tímabundið í
starf skólameistara, eða
sem nemur einu skólaári,
en hún hefur starfað sem
skólameistari Kvenna-
skólans í Reykjavík síðan
1998. – thelma@bb.is
Vilja kanna möguleika á útflutningi
vatns og stofnun bruggverksmiðju
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
hefur falið atvinnumálanefnd
að láta nú þegar kanna mögu-
leika á stofnun fyrirtækis til
nýtingar ferskvatns úr Vest-
fjarðagöngunum. Í því sam-
bandi á í fyrsta lagi að kanna
hvort mögulegt sé að selja
vatnið úr landi í samstarfi við
innlenda eða erlenda aðila og
í öðru lagi hvort fýsilegt sé að
stofna bruggverksmiðju sem
nýtt gæti vatnið úr göngunum
til ölgerðar.
Í greinargerð sem fylgir
bókun þessa efnis segir: „Það
er ljóst að mikið magn hreins
og ómengaðs vatns rennur
stöðugt úr Vestfjarðagöngum
og með minnkandi úrvinnslu
sjávarafurða hér á Ísafirði þarf
að leita nýrra leiða til að nýta
þessa auðlind. Því er lagt til
að atvinnumálanefnd hafi for-
göngu um könnun á mögu-
leikum til nýtingar vatnsins
til framleiðslu og útflutnings.“
Tillagan var lögð fram af
hálfu Í-listans og samþykkt
með öllum atkvæðum í bæjar-
stjórn.
– eirikur@bb.is Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Ungur drengur slasaðist þegar hann féll af snjóbretti á skíðasvæði
Ísfirðinga í Tungudal um áttaleytið á fimmtudagskvöld í síðustu viku.
Björgunarsveitarmenn sóttu drenginn og fluttu hann á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Ísafirði. Hann reyndist ekki alvarlega meiddur og fékk
hann að fara heim eftir að gert hafði verið að sárum hans.
Að sögn Björgvins Sveinssonar, forstöðumanns skíðasvæðisins,
líta slysin oft verr út en raunir standa til og segir hann því alltaf tekn-
ar ýtrustu varúðarráðstafanir eins og að kalla út björgunarflutninga-
fólk. Í þessu tilfelli var erfitt að ná til drengsins þar sem hann hafði
verið að renna sér í gili utan brauta skíðasvæðisins. Björgvin segir
gilið hafa freistað brettafólks í gegnum tíðina, en það sé vissulega
reynt að hindra að verið sé að renna sér þar, þó ekki hafi algjörlega
verið hægt að koma í veg fyrir það.
Drengurinn var vel búinn að sögn Björgvins, en hann segir bretta-
krakka oft lata við að nota hjálma, þó mikið sé brýnt fyrir notkun
þeirra. Ekki eru börnin þau einu sem hafa verið löt við hjálmanotkun,
en gjarnan notar fullorðið fólk ekki hjálma í brekkunum. Þetta þarf
að sjálfsögðu að bæta, en notkun hjálma hefur ekki verið skylda við
skíðaiðkun á Íslandi, þrátt fyrir augljóst vægi þeirra sem öryggisbúnaðar.Björgunarsveitarmenn sóttu drenginn og fluttu hann á sjúkrahúsið á Ísafirði.
Slasaðist á skíðabretti í Tungudal