Bæjarins besta - 03.05.2007, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 20072
Þennan dag árið1943 fórust fjórtán bandarískir hermenn
þegar flugvél (Boeing 24) brotlenti á Fagradalsfjalli á
Reykjanesi. Meðal þeirra var yfirmaður alls herafla Banda-
ríkjanna í Evrópu, Frank M. Andrews.
Dagurinn í dag
3. maí 2007 – 123. dagur ársins
Nafnávöxtun Lífeyris-
sjóðs Vestfirðinga var mjög
góð á árinu 2006, eða 17%,
sem samsvarar 9,5% raun-
ávöxtun. Meðaltals raun-
ávöxtun síðustu fimm ár er
8,7% og meðaltals raun-
ávöxtun síðustu 10 ár er
6,1%. Erlend hlutdeildar-
skírteini og hlutabréf voru
að gefa bestu ávöxtun á ár-
inu um 27% og kemur þar
til bæði hækkun á erlendum
mörkuðum og lækkun á gengi
íslensku krónunnar. Ávöxtun
innlendra hlutabréfa var við-
unandi en ávöxtun innlendra
markaðsskuldabréf var slök
sem markaðist af verðlækkun
sem var á síðasta ársfjórðungi
ársins.
Fjárfestingartekjur ársins
2006 námu 3,8 milljörðum
króna. Hrein eign til greiðslu
lífeyris var 25,9 milljarðar í
lok árs 2006 og hækkaði um
3,9 milljarða frá fyrra ári eða
um 18%. Skipting eigna í lok
árs 2006 var þannig að 42%
eigna var í skuldabréfum, 58%
í verðbréfum með breytileg-
um tekjum, þ.e. hlutabréfum,
skuldabréfum og hlutdeildar-
skírteinum, 71% í innlendum
verðbréfum og 29% í erlend-
um verðbréfum.
Samkvæmt tryggingarfræði-
legri úttekt í lok ársins eru
eignir umfram heildarskuld-
bindingar 4,2 milljarðar eða
12,6%. Með tilliti til góðrar
ávöxtunar og tryggrar stöðu
sjóðsins hefur stjórn hans
ákveðið að leggja til við árs-
fund sem haldinn verður á
Ísafirði 17. maí nk. að öll
áunnin lífeyrisréttindi og
greiðslur til lífeyrisþega verði
hækkuð um 10% frá 1. janúar
2007. Með þessarri hækkun
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga á
áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga hafa réttindin verið hækkuð um 21% á sl. 5 árum.
17% ávöxtun hjá Lífeyrissjóði Vestfirðinga
Bókaverðlaun barnanna afhent
Bókaverðlaun barnanna voru afhent á Bókasafninu á Ísafirði í síðustu viku, en öll almenn-
ings- og skólabókasöfn landsins standa fyrir vali á bestu barnabók ársins 2006. Fjögur
börn sem tóku þátt í valinu í Ísafjarðarbæ hlutu bók í verðlaun frá Bókasafninu, þau Sara
Dögg Ragnarsdóttir, Ágúst Orri Valsson, Thelma Rut Jóhannsdóttir og Svanhildur. Yfir
allt landið var það Fíasól á flandri sem hlaut verðlaunin í flokki íslenskra bóka, en Eragon-
öldungurinn, í flokki þýddra bóka. Hjá börnum í Ísafjarðarbæ var Fíasól á flandri vinsæl-
ust af íslenskum bókum en Galdrastelpur: eldur hafsins, af þýddum bókum.
Hin árvissa brottsending útskriftarnema Mennta-
skólans á Ísafirði, svokallað dimissio var á föstudag.
Að vanda voru útskriftarnemar klæddir í furðubúning,
og í þetta skiptið voru þeir búnir sem englar. Dimissio
fer iðulega fram síðasta kennsludag vorannar, og fara
þá útskriftarnemar um bæinn með lúðraþyt og bumbu-
slátt, gengið er að heimilum helstu fulltrúa kennaraliðs-
ins og þeir vaktir með látum. Útskriftarnemarnir
mættu í árbít til skólameistara klukkan 8, áður en þeir
héldu í skólann, þar sem hefðbundin dagskrá fór
fram. Áralöng venja er fyrir dimissio í Menntaskólan-
um á Ísafirði líkt og í mörgum fleiri skólum.
Englar úr MÍ gerðu
Ísfirðingum rúmrusk
Hluti hópsins á tröppum Menntaskólans.
Ljósm: Friðgerður Ómarsdóttir.
Vestfirðingar fjórðungur fram-
bjóðenda í Norðvesturkjördæmi
25% frambjóðenda til al-
þingiskosninga í NV-kjör-
dæmi eru búsettir á Vestfjörð-
um, eða 27 af 108. Fimm Vest-
firðingar eru á framboðslistum
Sjálfstæðisflokks, Vinstri
grænna, Samfylkingar og
Frjálslyndra, fjórir á lista Ís-
landshreyfingarinnar og þrír
á lista Framsóknar. Vestfirskir
frambjóðendur Framsóknar-
flokksins eru þau Svanlaug
Guðnadóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, Ísafirði, Sveinn Bernó-
dusson, vélsmiður, Bolungar-
vík og Jóhann Hannibalsson,
bóndi, Bolungarvík.
Frá Frjálslynda flokkinum
eru Guðjón Arnar Kristjáns-
son, alþingismaður og for-
maður Frjálslynda flokksins,
Ísafirði, Kristinn H. Gunnars-
son, alþingismaður Bolungar-
vík, Guðmundur Björn Haga-
línsson, bóndi og formaður
eldri borgara í Önundarfirði,
Flateyri, Lýður Árnason, heil-
brigðisstarfsmaður, Bolung-
arvík og Páll Jens Reynisson,
véla- og iðnaðarverkfræði-
nemi við HÍ, Hólmavík.
Pálína Vagnsdóttir, athafna-
kona úr Bolungarvík leiðir Ís-
landshreyfinguna, en auk
hennar eru Vestfirðingarnir
Kristján S. Pétursson, nemi,
Ísafirði og Ragna Aðalsteins-
dóttir, bóndi, Ísafirði.
Vestfirðingar úr röðum
Samfylkingarinnar eru Sig-
urður Pétursson, bæjarfulltrúi,
Ísafirði. Helga Vala Helga-
dóttir, fjölmiðlakona og laga-
nemi, Bolungarvík. Bryndís
Friðgeirsdóttir, verkefnastjóri,
Ísafirði. Páll Finnbogason,
vélstjóri, Patreksfirði og Pétur
Sigurðsson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestfirðinga, Ísa-
firði.
Sjálfstæðisflokkurinn teflir
fram Einari Kristni Guðfinns-
syni, sjávarútvegsráðherra,
Bolungarvík, Einari Oddi
Kristjánssyni, alþingismanni,
Flateyri, Birnu Lárusdóttur,
forseta bæjarstjórnar, Ísafirði,
Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórs-
dóttur, oddvita, Tálknafirði og
Óðni Gestssyni, framkvæmda-
stjóra, Suðureyri.
Þá eru vestfirskir frambjóð-
endur Vinstri grænna þau
Ingibjörg Inga Guðmunds-
dóttir, íþróttafræðingur, Tálkna-
firði, Jóna Benediktsdóttir, að-
stoðarskólastjóri, Ísafirði,
Rósmundur Númason, verk-
stjóri, Hólmavík, Lilja Rafney
Magnúsdóttir, verkakona,
Suðureyri og Jón Fanndal
Þórðarson, verslunarmaður,
Hnífsdal.
– tinna@bb.is
Oskar Svärd fyrstur í
Fossavatnsgöngunni
Um 250 keppendur voru
skráðir í Fossavatnsgönguna
sem fram fór í blíðskaparveðri
á laugardaginn. Þetta var í 72.
sinn sem gangan er haldin og
hafa þátttakendur aldrei verið
fleiri. Erlendir þátttakendur
voru um 30 talsins og komu
m.a. frá Bandaríkjunum, Sví-
þjóð, Spáni, Ítalíu, Noregi og
Danmörku. Það var Svíinn
Oskar Svärd sem var fyrstur í
mark í 50 km göngu karla, en
Oskar er margfaldur sigurveg-
ari Vasa göngunnar.
Fyrstur Íslendinga í 50 km
göngunni var Magnús Eiríks-
son, en hann keppti í flokki
50-65 ára karla. Susanne
Nyström frá Svíþjóð var fyrst
kvenna í mark í 50 km göng-
unni, önnur í mark var Stella
Hjaltadóttir frá Ísafirði. Ingi-
björg Elín Magnúsdóttir var
fyrst í mark í 20 km göngu
kvenna, en í 20 km göngu
karla kom Einar Ólafsson
fyrstur í mark. Egill Ari Gunn-
arsson var fyrstur til að klára
10 km göngu karla, en Sólveig
Guðmunda Guðmundsdóttir
var fyrst í flokki kvenna.
Í stystu göngunni, 7 km var
Arna Kristbjörnsdóttir fyrst
kvenna í mark, en Ragnar
Gamalíel Sigurgeirsson var
fyrstur karla. Úrslit Fossa-
vatnsgöngunnar má finna í
heild sinni á vef Skíðafélags
Ísfirðinga.
– tinna@bb.is
Keppendur í 50 km göngu ræstir af stað.