Bæjarins besta - 03.05.2007, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 21
Réttindanámskeið
fyrir bílstjóra um flutn-
inga á hættulegum farmi
Fyrirhugað er að halda námskeið á Ísa-
firði, ef næg þátttaka fæst, fyrir stjórnend-
ur ökutækja sem vilja öðlast réttindi (ADR-
skírteini) til að flytja tiltekinn hættulegan
farm á vegum á Íslandi og annar staðar á
Evrópska efnahagssvæðinu.
Grunnnámskeið (flutningur á stykkja-
vöru fyrir utan sprengifim- og geislavirk
efni) dagana 15.-17. maí 2007.
Flutningur í tönkum dagana 18.-19.
maí 2007.
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiði fyrir
flutning í tönkum er að viðkomandi hafi
setið grunnnámskeið (stykkjavöruflutning-
ar) og staðiðst próf í lok þess.
Skráning og nánari upplýsingar fást hjá
skrifstofu Vinnueftirlitsins á Ísafirði, Árna-
götu 2-4, sími 450 3080 eða á netfanginu
vestfirdir@ver.is.
Skrá skal þátttöku og greiða þátttöku-
gjald í síðasta lagi mánudaginn 14. maí
2007.
Rannsóknamaður
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða
rannsóknamann til starfa við útibú stofn-
unarinnar á Ísafirði. Starfið felst í aðstoð
við greiningar á fæðu fiska (magainnihaldi),
innslætti á gögnum og almennum sýna-
tökum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningu fjár-
málaráðuneytisins og viðkomandi stéttar-
félags.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hjalti
Karlsson í síma 575 2300, netfang: hjalti@
hafro.is og Ólafur S. Ástþórsson í síma
575 2000, netfang: osa@hafro.is.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un, aldur og fyrri störf sendist Hafrannsókna-
stofnuninni fyrir 20. maí nk.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4 – 101 Reykjavík.
Leikskólabörnum fækkar á Vestfjörðum
Leikskólabörnum hefur farið fækkandi á Vestfjörðum undanfarin átta ár sam-
kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Árið 1998 voru 518 börn skráð í leikskóla á
Vestfjörðum en þau voru 380 á síðasta ári. Aðra sögu er að segja á landsvísu
þar sem leikskólabörnum fjölgaði um 352 frá desember 2005 eða um 2,1%
sem er töluvert meiri fjölgun en undanfarin ár. Nokkuð jafnt var skipt á milli
kynja í leikskólum Vestfjarða en 2006 sóttu 182 drengir og 198 stúlkur leik-
skóla í fjórðungnum, en árið 1998 voru drengirnir 266 talsins en stúlkurnar 252.
Erlingur lætur af störfum í haust
Erlingur Sigtryggson, héraðsdómari við Héraðsdóm Vestfjarða, lætur af
störfum 1. september nk. Þann sama dag tekur hann við starfi héraðsdómara
við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Með bréfi til Dómstólaráðs dagsettu 26.
mars sl., óskaði Erlingur eftir flutningi og með hliðsjón af gildandi reglum um
flutning héraðsdómara, var orðið við þeirri ósk. Erlingur hefur starfað sem
héraðsdómari við Héraðsdóm Vestfjarða frá 1. október 1998. Starf hans við
Héraðsdóm Vestfjarða verður auglýst innan tíðar.
Margar af tillögum nefndar
um atvinnumál á Vestfjörðum
hafa þegar verið samþykktar
og eru því ekki aðeins tillögur
í orði, heldur einnig á borði.
Þannig hafa allar tillögur utan
einnar, sem fram koma í skýr-
slu nefndarinnar um fjölgun
opinberra starfa og aukna
opinbera þjónustu á Vestfjörð-
um, verið samþykktar í við-
eigandi ráðuneyti. Það er þó
ljóst að margar af tillögunum
krefjast þess að vera sam-
þykktar í fjárlögum, en kostn-
aður við fjölgun opinberra
starfa á Vestfjörðum nemur
samtals um 500 milljónum
króna á ári. Það er hlutverk
hvers og eins ráðuneytis að
fylgja þeim tillögum sínum,
sem þurfa að vera samþykktar
í fjárlögum, eftir.
Eins og fram hefur komið
er gert ráð fyrir að opinberum
störfum á Vestfjörðum fjölgi
um 80, en flestar tillögurnar
miða við að þær taki gildi í ár
eða á næsta ári. Aðeins er mið-
að við að ein tillaga muni taka
gildi seinna en 2008.
Sjö af þrjátíu og sjö tillögum
eru tímabundin verkefni, til
3-5 ára. Tillögurnar lúta að
vöktun fuglalífs og gróðurs,
gróðurkortagerð á Vestfjörð-
um, samhæfðum gagnagrunni
yfir stöðvarekstur Veðurstof-
unnar, skráning öryggismála-
safns Þjóðskjalasafns Íslands,
skráning kirkjugripa og færsla
skráningar inn í gagnagrunn
minjavörslunnar og snjóflóða-
rannsóknarverkefni.
Margar tillögur Vestfjarða-
nefndar þegar samþykktar
Opnunartími Sundhallar-
innar á Ísafirði hefur verið
lengdur um nokkra tíma, tvö
kvöld í viku. Að sögn Jóhönnu
Gunnarsdóttur, forstöðukonu
Sundhallarinnar, kemur leng-
ing opnunartíma til vegna
breytinga á æfingatöflu Sund-
félagsins Vestra. Ókeypis
hefur verið í sundlaugar Ísa-
fjarðarbæjar fyrir börn á
grunnskólaaldri síðan um ára-
mót og segir Jóhanna starfs-
fólk finna fyrir mikilli aukn-
ingu, þá sérstaklega á kvöldin.
Börn fjölmenni í sund eftir
kvöldmat, sem þekktist ekki
áður. Þó að gestum af yngri
kynslóðinni hafi fjölgað mikið
frá áramótum segir Jóhanna
að töluverð aukning hafi
einnig verið í komu fullorð-
inna, sérstaklega á morgn-
anna.
Lára Thorarensen, forstöðu-
kona íþróttamiðstöðvarinnar
á Flateyri, tekur í sama streng
og Jóhanna, þó að hún merki
ekki jafn mikla aukningu á
komu fullorðinna í sundlaug-
ina.
– tinna@bb.is
Opnunartími Sundhallarinnar lengdur
Samkvæmt nýrri áætlun um
komu skemmtiferðaskipa eru
26 skip væntanleg til Ísafjarð-
ar í sumar í stað 28 sem áður
höfðu tilkynnt komu sína. Alls
var fimm skipakomum aflýst,
en þrjár nýjar bættust við. Að
sögn Guðmundar M. Krist-
jánssonar, hafnarstjóra Ísa-
fjarðarbæjar, eru helstu ástæð-
ur þess að skipin aflýstu kom-
um sínum þær, að skipin hafa
verið seld nýjum eigendum,
ferðir falla niður vegna lítillar
skráningar o.fl. Þrátt fyrir
þetta lítur sumarið vel út, og
skipakomum fjölgar um fjórar
frá síðasta ári, en þá komu 22
skip til Ísafjarðar.
Samanlagður farþegafjöldi
um borð í skipunum er 16.484
manns, þar af eru um 2000
manns um borð í Queen Eliza-
beth II sem jafnframt er stær-
sta skipið sem kemur í sumar,
eða tæp 80.000 brúttótonn.
Fyrsta skipið kemur 9. júní en
það síðasta leggst að bryggju
2. september. Þann 15. ágúst
er von á þremur skipum til
Ísafjarðar og standa vonir til
að þau geti öll lagst að brygg-
ju, það minnsta við Ásgeirs-
bakka og hin tvö í Sundahöfn.
Það væri í fyrsta sinn sem svo
mörg skip leggjast að bryggju
á Ísafirði í einu. Samanlagður
fjöldi farþeganna á skipunum
þremur er um 1.500 manns.
Guðmundur M. Kristjáns-
son segir að forbókanir fyrir
sumarið 2008 gefi í skyn enn
frekari fjölgun skipakoma til
Ísafjarðar, og segir hann það
afar ánægjulegt og gefi til
kynna að markaðsstarf sé að
skila sér.
– tinna@bb.is
Skemmtiferðaskipum fjölgar
Skemmtiferðaskip við Sundahöfn á Ísafirði.