Bæjarins besta - 03.05.2007, Page 27
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 27
Tilboð óskast
Tilboð óskast í fjölbýlishúsið að Múla-
landi 14 á Ísafirði. Í húsinu eru 10 íbúðir í
útleigu.
Afstaða til tilboða verður tekin 14. maí
nk. Frekari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu okkar.
Fasteignasala Vestjarða
Hafnarstræti 19, Ísafirði
Sími 456 3244 – eignir@fsv.is
www.fsv.is
Sælkeri vikunnar er Hugrún Magnúsdóttir frá Vigur
Lambapottréttur
og rommkúluís
Sælkeri vikunnar býður upp
á lambapottrétt og rommkúlu-
ís. Pottréttinn segir hún að gott
sé að bera fram með hvítlauks-
brauði og hrásalati. Um er að
ræða ljúffenga máltíð sem allir
kunna að meta. Eftirrétturinn
er einfaldur en gómsætur og
ættu enginn rommkúluunn-
andi að vera svikinn af honum.
Lambapottréttur
1 kg lambagúllas
1 stór laukur brytjaður gróft
2 hvítlauksrif
1 dós tómatar brytjaðir
4 dl vatn
1 stór teningur nautakraftur
2-3 msk tómatmauk
½ tsk Timjan
½ tsk oregano
2 lárviðarlauf
3-2 stk gulrætur
6-8 stk kartöflur
Gúllasið kryddað með salti
og pipar snöggsteikt á pönnu
við góðan hita, sett í eldfast
form eða steikarpott. Laukur
léttsteiktur á pönnu, öllu nema
gulrótum og kartöflum bland-
að saman við laukinn og suðan
er látin koma upp. Þessu er
því næst hellt yfir gúllasið lok
eða álpappír settur yfir og inn
í ofn við 180°C í 1 klst. Því
næst er brytjuðum kartöflum
og gulrótum bætt út í og látið
malla í u.þ.b 40 mín í viðbót
án loks. Tilvalið er að þykkja
soðið með jafnara.
Rommkúluís
4 msk sykur
3 stk eggjarauður
2 stk eggjahvítur
½ l þeyttur rjómi
½ dolla rommkúlur
Sykur og egg þeytt þar til
það er létt og ljóst. Rommkúl-
ur eru settar í poka og þar
næst í frysti þar til þær verða
kaldar. Barðar með kökukefli
og settar í rjómann. Öllu
blandað saman og fryst.
Ég skora á Magnús Salv-
arsson og Nínu Dís Ólafsdótt-
ur á Ísafirði að vera næstu
sælkerar.
Ferð um hálendið í sumarfríinu
Nafn: Þorbjörn Sveinsson
Aldur: 55 ára
Hjúskaparstaða: Giftur
Börn: 4 börn
Stjörnumerki: Bogamaður
Starf: slökkviliðsstjóri
Áhugamál: Ég spila golf og starfið mitt er mitt helsta
áhugamál og svo auðvitað fjölskyldan.
Hvort myndir þú vilja vera Evróvisjónfari eða Evrópu-
meistari? Ég myndi vera Euróvisjónfari hefði ég rödd en
það væri nú alltaf gaman að vera Evrópumeistari í fótbolta.
– Ertu búinn að ákveða
hvaða flokk þú ætlar að kjósa?
„Já, en ég gef það ekki upp.
Ég á það bara við mig.“
– Ertu sáttur við ríkisstjórn-
ina?
„Já ég hef verið það.“
– Hvaða breytingar viltu
sjá?
– Ekki myndað mér neina
skoðun
„Hefur þú kynnt þér hug-
myndir Vestfjarðanefndar-
innar?
– Nei ekki nógu mikið, ég
hef ekki komist í þessi gögn
ennþá.“
– Ertu búinn að skipuleggja
sumarfríið?
„Já í svona stórum dráttum,
ég ætla að skeppa eina viku til
Spánar í lok maí og svo í
sumarfríinu ætla ég í ferð um
hálendi Íslands.“
– Hvað finnst þér um fram-
lag Íslendinga í Júróvisjón og
hvernig heldurðu að okkur
muni ganga?
„Mér líst ágætlega á það og
held að okkur og gengi okkar
verði á svipuðu róli og undan-
farin ár. Við höfum nú fengið
annað sætið þegar hún Selma
keppti fyrir hönd Íslands og
það væri nú gaman að fá það
aftur.“
Þýsku fjölmiðlarnir sem
sóttu Aldrei fór ég suður gefa
hátíðinni allir bestu einkunn.
Í nýjasta hefti Musik Woche
sem er aðalviðskiptablað
Þjóðverja um tónlist er fjallað
um Pétur Ben og Lay Low
sem hápunkt hátíðarinnar. Í
heilsíðugrein um hátíðina og
nýstofnaða Útflutningsskrif-
stofu íslenskrar tónlistar fjallar
Dietmar Schwenger um hver-
su öflug tónlistarsenan sé á
Íslandi og segir ekkert lát á
nýju efnilegu tónlistarfólki. Í
framhaldinu mun Musik
Woche gera ítarlega 4-5 síðna
úttekt á íslensku tónlistarlífi
sem birtist tveimur vikum
fyrir Popkomm tónlistarráð-
stefnuna. Þetta er í fyrsta skipti
sem Musik Woche stendur að
svo ítarlegri umfjöllun um ís-
lenska tónlist. PopKomm fer
fram í Berlín 18. -22. septem-
ber nk. Útflutningsskrifstofa
íslenskrar tónlistar (ÚTÓN)
mun standa fyrir þjóðarbás á
ráðstefnunni í fyrsta skipti.
Anna Hildur Hildibrands-
dóttir framkvæmdastjóri
ÚTÓN segir mjög mikið að
gerast í Þýskalandi. „Bæði
Benni Hemm Hemm og Sea-
beer eru á samningi hjá Morr
Music. Nýstofnað fyrirtæki
sem kallast 8mm var stofnað
út frá bar þar sem Íslendingar
hittast mikið er að vinna með
Singapore Sling og ET Tuma-
son. Fyrirtækið Freibank gerði
nýverið samning við hljóm-
sveitina Sign og svo má lengi
telja. Stærri bönd á borð við
Gus Gus og Múm eiga þegar
miklu fylgi að fagna í Þýska-
landi og það virðist vera
óþrjótandi áhugi á bæði ís-
lensku tónlistarfólki og ís-
lenskum tónlistarhátíðum.
ÚTÓN mun því athuga hvern-
ig þessum áhuga verður best
fylgt eftir. Einn liður í því er
að standa veglega að Pop-
Komm en við erum líka að
skoða verkefni sem myndu
ná til lengri tíma og greint
verður frá síðar.“
Sérstök úttekt á Al-
drei fór ég suður
Í frétt frá AP sem send var á
allar fréttaveitur í Þýskalandi
er tekið í sama streng og hjá
Musik Woche og sagt að það
sé ekki bara Geysir sem gjósi
heldur sé allt að sjóða upp úr í
tónlistarlífinu. Sérstök þriggja
blaðsíðna úttekt verður síðan
í einu stærsta tímariti Þýska-
lands sem nefnist Fokus þar
sem fjallað verður um tónlist
og ferðalög með Aldrei fór ég
suður sem útgangspunkt.
Greinin birtist í 20. töluhefti
tímaritsins sem kemur út 9.
maí nk. Henrik Hohl blaða-
maður Fokus sagði að upphaf-
lega hefði hann verið sendur
til að gera eina blaðsíðu um
hátíðina hins vegar hafi rit-
stjórinn hans heillast svo að
frásögninni að hann hafi
ákveðið að gefa honum meira
pláss til að segja frá bæði því
helsta sem heillaði hann á
Aldrei fór ég suður og einnig
öðrum möguleikum til að upp-
lifa tónlist á ferðalögum um
Ísland. Henrik segist hafa
heillast sérstaklega af Pétri
Ben, Lay Low og Skúla
Sverrissyni þegar hann dvaldi
á Íslandi og er ákveðinn í að
koma aftur.
Íslensk tónlist gýs
upp í Þýskalandi
Landsbankahlaupið endurvakið
Í tilefni 120 ára afmælis Landsbankans verður hið sögufræga Landsbankahlaup endurvakið laugardaginn 5. maí. Hlaupið
verður haldið með samræmdu sniði um allt land þ.e. á einum stað á höfuðborgarsvæðinu, í Laugardalnum og við 21
útibú bankans á landsbyggðinni þar með talið á Ísafirði. Öll börn á aldrinum 10-13 ára tekið þátt í hlaupinu, hvar sem er
á landinu. „Landsbankahlaupið var fyrst haldið á 100 ára afmæli bankans árið 1986 og svo árlega eftir það í 14 ár.
Muna eflaust margir eftir því en hlaupið naut alltaf mikilla vinsælda því á hverju ári hlupu nokkur þúsund börn á öllu
landinu og kepptu sín á milli af mikilli alvöru. Það er því með mikilli ánægju sem við endurvekjum það aftur á táknrænan
hátt en sú hugmynd var verðlaunuð í hugmyndasamkeppni sem haldin var meðal starfsmanna Landsbankans í fyrra í
tengslum við afmælisárið“, segir í tilkynningu.
Horfur á föstudag: Útlit fyrir skammvinna norðanátt
með snjókomu eða slyddu fyrir norðan, en yfirleitt bjart
sunnanlands. Horfur á laugardag: Austanátt og vætusamt
en úrkomulítið norðvestanlands. Horfur á sunnudag:
Austanátt og vætusamt en úrkomulítið norðvestanlands.
Horfur á mánudag: Austanátt og vætusamt en úrkomu-
lítið norðvestanlands.
Helgarveðrið