Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 3. apríl 2008 · 14. tbl. · 25. árg.
Snarvitlaus og drykkfelldur unglingur, togarajaxl, umdeildur frétta-
ritari á Flateyri, humarveiðimaður, ritstjóri og rithöfundur, strikaður
út úr Sjálfstæðisflokknum en kemst ekki úr Samfylkingunni – Reynir
Traustason ritstjóri í viðtali við Hlyn Þór Magnússon í miðopnu
Vildi aldrei
vera sjómaður
Ísfirskar skíðagöngukonur sigursælar
Ísfirskar konur voru sigur-
sælar í skíðagöngu á Skíða-
móti Íslands sem fór fram á
Ísafirði um helgina. Rannveig
Jónsdóttir sigraði í sprett-
göngu, sem var fyrsta keppn-
isgreinin á mótinu. Stella
Hjaltadóttir hampaði Íslands-
meistaratitlinum í hefðbund-
inni göngu, Sólveig G. Guð-
mundsdóttir í frjálsri aðferð
og í boðgöngu sigraði A-sveit
Ísafjarðar en hana skipuðu
Stella Hjaltadóttir, Guðbjörg
Rós Sigurðardóttir og Sólveig
G. Guðmundsdóttir. Í öllum
þessum greinum voru Ísfirð-
ingar í þremur fyrstu sætun-
um.
Á annað hundrað keppend-
ur tóku þátt í mótinu og segir
Benedikt Hermannson, mót-
stjóri Skíðamóts Íslands á Ísa-
firði, mótið hafa gengið vel
fyrir sig miðað við aðstæður.
„Veðrið var stríða okkur að-
eins en það var í raun það eina
sem klikkaði. Allt annað gekk
nánast samkvæmt áætlun og
starfsfólkið okkar stóð sig
gríðarlega vel. Ég vil koma á
framfæri þakklæti til allra
þeirra sem með einum eða
öðrum hætti komu að þessu
móti og gerðu okkur kleift að
halda það með þeim glæsibrag
sem raun bar vitni. Þá vil ég
líka sérstaklega þakka starfs-
mönnum skíðasvæðisins sem
einnig unnu mjög gott starf
við erfiðar aðstæður.“
– thelma@bb.is
A-sveit Ísafjarðar í boðgöngu.
Valdimar Elíasson, for-
maður íbúasamtakanna
Átaks á Þingeyri, segir
það mjög stingandi að
heyra að bærinn sé of
langt frá Ísafirði til að
koma til greina undir
starfsemi Innheimtustofn-
unar sveitarfélaga. Sig-
urður Pétursson, formað-
ur stjórnar stofnunarinn-
ar, sagði í samtali við Rík-
isútvarpið að Þingeyri
kæmi ekki til greina í
staðarvali vegna fjar-
lægðar frá Ísafirði.
„Þetta er náttúrlega
mjög slæmt. Það er bara
eins og við séum orðin
einangruð á báða vegu,
en það er náttúrlega allt
of langt til okkar hina
leiðina. Hingað til hefur
ekkert verið of langt fyrir
Þingeyringa að fara til
Ísafjarðar þar sem mörg
okkar stunda vinnu eða
nám“, segir Valdimar.
„Almenningssam-göng-
ur eru góðar og það er
ekkert mikið lengra hing-
að en til Flateyrar svo dæmi
sé tekið. Á þessum tölvu-
tímum ættu vegalengdir
ekki að skipta svona
miklu máli, svo það var
vissulega dálítið sting-
andi að heyra þetta“, segir
Valdimar.
– halfdan@bb.is
Þingeyring-
ar óánægðir