Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 19

Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 19 Horfur á föstudag: Norðaustanátt og snjókoma eða él, en bjartviðri vestanlands. Frost 0-5 stig. Horfur á laugardag: Lægir víða og léttir víða til. Talstvert frost. Horfur á sunnudag: Snýst í suðvestanátt með súld vestanlands og hlýnar í veðri. Helgarveðrið Sælkerar vikunnar eru Margrét Kristín Hreinsdóttir og Þorsteinn Jóhannesson á Ísafirði Saltfiskur í ofni Sælkerar vikunnar bjóða upp á saltfisk í ofni sem þau segja að sé frekar fljótlegur réttur og vinsæll á heimilinu. Um er að ræða ljúffengan fiski- rétt sem matreiddur er með sætum kartöflum og bragð- góðri rjómaostasósu. Einnig bjóða þau upp á einfaldan og fljótlegan eftirrétt sem saman- stendur af skyri, berjum og rjóma. Og að lokum er stubba- steik að hætti afa Jóa sem er uppskriftar sem klikkar aldrei. Saltfiskur í ofni Hnakkastykki Sætar kartöflur Mexíkóskur ostur Matreiðslurjómi Kartöflurnar flysjaðar og skornar í sneiðar (magnið eftir þörfum), mjög gott að for- sjóða þær þannig að þær verði mjúkar (gott að gufusjóða þær). Kartöflunum raðað í botn á eldföstu móti og hnakkastykk- in sett þar ofan á (með roðinu.) Osturinn bræddur við vægan hita í potti og rjómanum blandað saman við þar til blandan er orðin seigfljótandi. Þessu er síðan hellt yfir fiskinn og sett í 200 gráðu heitan ofn- inn og bakað í ca.10 til 15 mín., fer eftir smekk hversu mikið fólk vill hafa fiskinn steiktan. Gott að bera fram með þessu hrásalat. Desert 1 dós vanilluskyr 0,5 l rjómi Frosin hindber 1 poki Sykur (jafnvel hrásykur eða púðursykur) Þeytið rjómann og blandið skyrinu saman við, má líka setja súkkulaðispænir saman við það.Hindberin sett í pott og smá sletta af vatni og sykr- inum bætt út í (c.a. 1 dl, meira ef vill). Látið þetta síðan sjóða smá stund þar til orðið að sósu ,síðan eru fræin sigtuð frá og sósunni hellt yfir skyrið eða borin fram sér, svo hver og einn geti hellt fyrir sig sjálfur. Stubbasteikað hætti afa Jóa Súpukjöt Pipar Salt Kjöt og grillkrydd Laukur Valdir súpukjötsbitar settir í ofnpott (emelarður), saltað og piprað og kryddað með kjöt og grillkryddinu og lauk- urinn skorin í 4 bita og settur í pottinn, lokið yfir og sett í ofn á 200 gráður í 60 mín ,meira ef frosið.Látið malla og meyrna,.Lokið tekið af og grillað aðeins síðustu mínút- urnar. Vökvinn síðan notaður í sósu með þessu (venjulega brúna sósu), og borið fram með td. brúnuðum kartöflum, grænum baunum, gulrótum (soðnum í kjötkrafti), sultu og salati. Alltaf gott og bregst ekki. Við skorum á Baldur Trausta Hreinsson, hann klikkar aldrei. Hátt á þriðja þúsund farþegar Flugfélag Íslands flutti um 2.500 farþega til og frá Ísafirði fyrir og eftir páska. Miklar annir voru hjá félaginu alla páskahelgina og umferð með ólíkindum. Aðspurður segir Arnór Jónatansson, umdæmisstjóri Flugfé- lagsins, að sér lítist mjög vel á árið í heild. „Nú er skíðamót Íslands að byrja, og um næstu mánaðarmót er blakmótið. Svo líst mér mjög vel á sumarið með jarðgangavinnu, sjóstangveiði og fleiru. Ætli það endi ekki með því að það þurfi að fjölga ferðum upp í fjórar á dag“, segir Arnór. Myndir af matar- leifum starfsmanna Ljósmyndarinn Spessi hef- ur opnað sýningu á nýrri myndaröð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur. Myndirnar sýna leifar af máltíð í mötuneyti stofnunarinnar og er matseð- illinn gefinn upp í titli mynda- raðarinnar: Kjúklingalund „fajitas“ að hætti Google- manna, mexíkósk maíssúpa og súkkulaðiís. „Það sem við sjáum í myndunum eru hins vegar ekki réttirnir sjálfir, ekki kokkarnir þegar þeir voru að elda þá og ekki starfsmenn Orkuveitunnar að borða mat- inn. Í stað þessa sýnir Spessi okkur það sem eftir er á mat- arbökkunum þegar öllu er lok- ið og þeir eru á leið aftur inn í eldhús í uppvaskið. Þessi und- arlega leið að myndefninu er dæmigerð fyrir verk Spessa og vekur spurningar sem ná langt út fyrir myndefnið og varða sjálfan tilgang og eðli ljósmyndalistarinnar“, segir í tilkynningu. „Jafnframt má líta á mynd- irnar sem eins konar mann- fræðirannsókn þar sem lesa má ótrúlega mikið af því hvernig við skiljum við áhöld og matarleifar að lokinni mál- tíð. Eins og svo oft áður um ljósmyndaverk Spessa verða myndirnar áleitnari eftir því sem við gaumgæfum þær nán- ar og þær sýna að oft er dýpsta innsæis einmitt að leita þar sem við eigum þess síst von.“ Á sama tíma kemur mynda- röð Spessa út í veglegri bók sem er 120 blaðsíður og inni- heldur nær hundrað myndir úr röðinni sem alls telur nálægt tvöhundruð myndir. Í bókinni eru einnig textar eftir Sjón og Jón Proppé sem báðir taka sérstaklega á þessu mikla verki Spessa og þeim hug- leiðingum sem af því vakna. Ljósmyndarinn Spessi heit- ir réttu nafni Sigurþór Hall- björnsson, er fæddur árið 1956 á Ísafirði og lauk námi í ljós- myndun frá AKI (Akademie voor Beeldende Kunst) í Hol- landi. Hann hefur haldið fjölda sýninga á ljósmyndum sínum á Íslandi, í Hollandi, Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum og á Bretlandi, og myndir hans hafa víða birst á prenti í fjöl- mörgum tímaritum og bókum. Bók helguð verkum Spessa, Bensín, var gefin út í tengslum við einkasýningu hans á Kjar- valsstöðum árið 1999 sem skömmu síðar var einnig sett upp í New York. Á síðasta ári kom út stærsta ljósmyndabók Spessa til þessa, Location, sem í eru myndir víða að af Íslandi en næsta ólíkar því sem fólk á að venjast af slíkum bókum. Þar eru m.a. myndir af blokkum í Reykjavík, atvinnuhúsnæði á Akureyri, vinnuskúrum við Kárahnjúka og íbúðarhús á Raufarhöfn, myndað bæði að utan og að innan. Spessi ljós- myndar þá umgjörð sem við búum í og þótt hann fegri hana hvergi. Myndirnar eru nær- göngular og finnum við fyrir nærveru fólks og hvernig líf þess endurspeglar líf okkar sjálfra. – halfdan@bb.is Myndirnar sýna matarleifar úr mötuneyti OR.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.