Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 5 Menningarráði Vestfjarða bárust hundrað og tíu umsókn- ir um styrki til menningar- verkefna í fjórðungnum en frestur til að sækja um rann út um miðjan mars. Um er að ræða fyrri úthlutun styrkja á árinu 2008. Þetta eru ívið fleiri umsóknir en bárust á árinu 2007, en þá bárust ráðinu 104 umsóknir. Þá fengu 52 menn- ingarverkefni styrki á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón kr., samtals rúmlega 20 milljónir. Heldur lægri upphæð verður til úthlutunar að þessu sinni vegna þess að úthlutanir eru tvær á árinu, en búast má við að um samtals verði um 30 milljónir settar í styrki á árinu 2008. „Fjölmargar áhugaverðar umsóknir bárust og greinilegt af fjölbreytni og fjölda um- sókna að mikill hugur er í Vestfirðingum við að við- halda öflugu menningar- og mannlífi í fjórðungnum. Verk- efnin eru margvísleg og marg- ir umsækjendur eru stórhuga og með áhugaverð og spenn- andi áform. Endurspegla þær vel þá grósku sem er í vest- firsku menningarstarfi, upp- byggingu þess og þróun. Þessi mikli fjöldi umsókna gefur líka glögga mynd af því að menningarstarfsemi á Vest- fjörðum er mikil og blómleg og sýnir ennfremur hversu mikil þörf hefur verið fyrir sjóð eins og þann sem Menn- ingarráðið hefur úr að spila“, segir í tilkynningu. Menningarráð hefur þegar hafist handa við að grand- skoða umsóknir og fjalla um þær og mun endanlegrar niðurstöðu vera að vænta eftir miðjan apríl. Þær upphæðir sem sótt er um eru umtalsvert hærri en það fjármagn sem sjóðurinn hefur úr að spila, en samtals var sótt um styrki að upphæð tæpar 86 milljónir króna. Sjóðurinn er samkeppnis- sjóður, þannig að þeir sem gert hafa vandaðar umsóknir fyrir góð verkefni sem falla að úthlutunarreglum og mark- miðum sjóðsins eiga góða von um stuðning. – thelma@bb.is Yfir hundrað umsókn- ir um menningarstyrki Atvinna Starfsfólk óskast til afgreiðslu- og pökk- unarstarfa. Vinnutími fyrir hádegi. Upplýsingar gefur María í símum 456 3226 og 846 7473. Gamla bakaríið. REFA- OG MINKAEYÐING Ísafjarðarbær auglýsir eftir refaskytt- um og minkabönum til að taka að sér eyðingu refa og minka í lögsögu Ísa- fjarðarbæjar sunnan Ísafjarðardjúps og umhverfis æðarvörp norðan Ísa- fjarðardjúps árið 2008. Upplýsingar um tilhögun veiðanna veitir starfsmaður landbúnaðarnefnd- ar, Þórir Örn í síma 450 8000. Umsóknir skulu berast til skrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, fyrir kl. 12:00 á hádegi mánu- daginn 21. apríl 2008. Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ. Blaðamenn Blaðamenn óskast til starfa á Bæjarins besta og bb.is. Um er að ræða sumaraf- leysingar og framtíðarstörf. Nánari upplýsingar gefur Sigurjón í síma 456 4560. Yfir tvö hundruð manns voru í lokahófi Skíðamóts Íslands á Ísafirði sem fór fram í Edinborgarhúsinu á laugardag. Afhent voru verðlaun fyrir þær greinar sem farið höfðu fram frá fimmtudegi til laugardags en verðlaunaafhending á sunnudag fór fram á mót- stað. Einnig veitti Skíða- samband Íslands verðlaun fyrir bikarmót sem fram hafa farið í vetur. Mugison spilaði lög fyrir viðstadda og menntskælingar á Ísa- firði sýndu atriði úr söng- leiknum The Rocky Horror Show. Kaffiveitingar voru í boði Ísafjarðarbæjar en kökur voru í boði foreldra ísfirskra þátttakenda á And- rés andar leikunum í ár. Lokahófinu lauk á ávarpi Margrétar Halldórsdóttur, formanns Skíðafélags Ís- firðinga, þar sem hún þakk- aði öllum sem komu að skíðamótinu og óskaði þátt- takendum góðrar heimferð- ar. – thelma@bb.is Fjölmenni í lokahófi Fundarsókn var afar góð. Einar Kristinn Guðfinnsson og Sturla Böðvarsson voru viðstaddir fundinn. Húsfyllir var á opnum fundi landssambands sjálfstæðis- kvenna á Hótel Ísafirði á laug- ardag. Alþingismennirnir Guð- finna S. Bjarnadóttir og Herdís Þórðardóttir og Birna Lárus- dóttir, bæjarfulltrúi í Ísafjarð- arbæ sátu fyrir svörum að lok- inni framsögu og mynduðust líflegar umræður um olíu- hreinsistöð. Þingmennirnir voru inntir eftir afstöðu sinni gagnvart mögulegri byggingu olíuhreinsistöðvar og þótt þeir tækju ekki beina afstöðu sögðu þeir að málið væri þess vert að skoða. Fram kom í máli Guðfinnu S. Bjarnadóttur, sem einnig er formaður nefndar mennta- málaráðuneytis um uppbygg- ingu háskólanáms á Ísafirði, að nefndin væri á lokasprett- inum með að vinna tillögur sínar og stefnt er að því að niðurstöður hennar verði kynntar í vor. Fundarstjóri var Drífa Hjart- ardóttir, formaður landssam- bands sjálfstæðiskvenna, en viðstaddir fundinn voru Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og Einar Kristinn Guðfinns- son, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra. Fundurinn var liður í ferðalagi sjálfstæð- iskvenna um landið þar sem þær ræða nýja möguleika í mennta- og atvinnumálum. – thelma@bb.is Niðurstöður nefndar um háskólanám kynntar í vor

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.