Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 9
Þór næst flottasti í vaxtarræktinni
Ísfirðingurinn Þór Harðarson hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu
í vaxtarrækt sem fór fram á Akureyri um páskana. Lét hann í
minni pokann fyrir hinu góðkunna vöðvatrölli Magnúsi Bess
Júlíussyni, sem fór með sigur af hólmi. Þeir kepptu í -100
gramma flokki sem er þyngsti flokkurinn á mótinu. Þór hefur í
árafjöld haft áhuga á vaxtarrækt og keppt nokkrum sinnum en
hann varð Íslandsmeistari í +90 kílógramma flokki árið 2004.
Atvinnuleysi minnkar í Bolungarvík
Atvinnulausum fækkar um 11 manns eða um 85% í Bol-
ungarvík milli loka ágúst í fyrra og febrúar í ár. Kemur
þetta fram í nýútkomnu vefriti fjármálaráðuneytisins. Í
fyrra voru atvinnulausir í bænum 13 talsins, en fyrir um
mánuði voru þeir einungis 2. Bolungarvík er eitt þriggja
sveitarfélaga sem tiltekið er í ritinu þar sem atvinnuleysi
hefur minnkað, en hin eru Ísafjarðarbær og Reykjavíkurborg.
Annað starfsár Sólstafa,
systursamtaka Stígamóta á
Vestfjörðum, er að hefjast en
hlé hefur verið á starfseminni
síðan um áramót. Helsta verk-
efnið framundan er að ýta úr
vör verkefni til að fræða full-
orðna um kynferðisofbeldi
gangvart börnum. Nú þegar
hefur ein starfskona Sólstafa
farið á leiðbeinandanámskeið
hjá Blátt áfram, samtök sem
standa að forvörnum gegn
kynferðislegu ofbeldi á börn-
um, og þrjár til viðbótar fara á
sama námskeið þann 10. maí.
„Það sem við lærum þar er að
leiða námskeiðið Verndarar
barna. Það er komið frá gras-
rótarsamtökum Darkness 2
light sem hefur höfuðstöðvar
í Charleston í Suður Karólínu,
og leitast þau við að vernda
börn gegn kynferðislegri mis-
notkun með því að leggja
ábyrgðina á herðar hinna full-
orðnu“, segir Harpa Oddbjörns-
dóttir, Sólstafakona á vef sam-
takanna. „Í dag erum við með
hóp fólks sem er bjartsýnt á
að láta þetta ganga og gera
Ísafjarðabæ að fyrsta samfé-
laginu á Íslandi sem hefur tek-
ið höndum saman um að vernda
börnin.
Í Ísafjarðarbæ eru rúmlega
300 manns sem vinna með
börnum og því er mikið verk
fyrir höndum. Við ætlum okk-
ur í sameiningu að safna um
þrem milljónum til þess að
allir þessir starfsmenn geti
setið þetta mikilvæga nám-
skeið.“ Harpa segir að þrátt
fyrir að starfsemin hafi legið
niðri í tvo mánuði hafi ýmis-
legt gerst og þar má nefna
styrktartónleika sem Nemenda-
félag Menntaskólans á Ísafirði
stóð fyrir í sólrisuvikunni og
landssöfnun Zontakvenna þar
sem seld var næla til styrktar
Stígamóta og. „Það er einstak-
lega ánægjulegt að sjá hve vel
okkur hefur verið tekið hérna
og við finnum fyrir gríðarlega
miklum stuðningi frá samfé-
laginu. Greinilegt er að löngu
var komin tími til að setja upp
þessa þjónustu hér.“
Vekja heilt bæjarfélag til vitundar
Bæjarráð Bolungarvíkur
hefur ítrekað kröfur sínar
um að Umhverfisráðuneytið
taki mið af kjarasamningi
við gerð á nýjum samningi
við Náttúrustofu Vestfjarða.
Á bæjarráðsfundi var farið
yfir drög að nýjum samningi
sem er framhald af eldri
samningi sem rann út í lok
árs 2007. Bolungarvíkur-
kaupstaður gerði á sínum
tíma fyrirvara við undirritun
samningsins vegna launa
forstöðumanns en þau voru
umtalsvert hærri en Um-
hverfisráðuneytið var tilbúið
að viðurkenna. Þetta breytist
ekki í nýjum drögum. Sam-
kvæmt þeim skulu laun for-
stöðumanns nema 5,4 millj-
ónum króna og 3,8 milljónir
eru ætlaðar til almenns
rekstrar. Samkvæmt ákvæð-
um laga er áskilið að for-
stöðumaður Náttúrstofu
skuli vera náttúrufræðingur
eða að hafa sambærilega
menntun og skuli framlag
ríkisins nema launum hans í
fullu starfi. Í gildi er kjara-
samningur milli fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkisins og
Félags íslenskra náttúru-
fræðinga (FÍN) frá 18. mars
2005. Á grundvelli þessa
kjarasamnings hefur FÍN
gert kjarasamninga við fjór-
ar náttúrustofur. Í óháðu áliti
sem Eiríkur S. Svavarsson,
hdl. vann fyrir Samtök Nátt-
úrustofa þann 5. janúar kem-
ur fram að sá kjarasamning-
ur hljóti að gilda þegar fram-
lag til launa forstöðumanns
er ákveðið. Náttúrustofa
Vestfjarða hóf starfsemi í
ársbyrjun 1997. Hún er al-
hliða rannsóknar- og þjón-
ustustofnun í náttúrufræðum
á Vestfjörðum. Náttúrustof-
an starfar eftir lögum um
Náttúrufræðistofnun Íslands
og Náttúrustofur og er rekin
af sveitarfélögum á Vest-
fjörðum með stuðningi rík-
isins. Verkefni náttúrustof-
unnar eru öflun upplýsinga
um náttúru Vestfjarða og
gera þær aðgengilegar þeim
sem á þurfa að halda. Nátt-
úrustofa Vestfjarða tekur að
sér margvísleg verkefni á
þessu sviði fyrir; sveitarfé-
lög, stofnanir eða einkaaðila.
– thelma@bb.is
Ítreka kröfur vegna launa forstöðu-
manns Náttúrustofu Vestfjarða
Nokkuð hefur verið um
skemmdarverk að undan-
förnu á norðurgafli gamla
kaupfélagshússins á Ísa-
firði. Óljóst er hverjir eru
þarna að verki eða hvaða
hvatir liggja að baki þess-
um tilgangslausu skemmd-
arverkum, en ljóst er að
þau valda eigendum húss-
ins miklum leiðindum og
fjárhagslegu tjóni.
Einn húseiganda sagði
í samtali við blaðið að svo
virðist sem grjóti sé ítrek-
að kastað í vegginn með
þeim afleiðingum að sí-
fellt fleiri plötur losna af
honum og brotna.
– halfdan@bb.is
Tilgangslaus
skemmdarverk
Tilgangslaus skemmd-
arverk hafa verið unn-
in á norðurgafli hússins.
Fasteignir heilbrigðisstofn-
ana til Fasteigna ríkissjóðs
Ákveðið hefur verið að Fast-
eignir ríkissjóðs (FR) taki í
áföngum við umsjón og rekstri
fasteigna sem nú eru reknar af
heilbrigðisstofnunum. Í fyrsta
áfanga sem fer fram á þessu
ári mun FR meðal annars taka
við fasteignum heilbrigðis-
stofnana á Vestfjörðum. Í því
felst að FR taka að sér viðhald
og endurbætur á húsnæði með
hliðstæðum hætti og þegar á
við um framhaldsskóla og lög-
gæslustofnanir. Heilbrigðis-
ráðuneytið mun beita sér fyrir
nauðsynlegum fjárveitingum
til stofnana sem standi undir
kostnaði við húsaleigusamn-
inga framvegis.
Fulltrúar FR hafa nú þegar
komið í fyrstu heimsókn til
Heilbrigðisstofnunarinnar
Ísafjarðarbæ og Heilbrigðis-
stofnunarinnar Bolungarvík
til að kynna sér aðstæður.
Fasteignir ríkissjóðs hafa um-
sjón með fasteignum í eigu
ríkisins í umboði fjármála-
ráðuneytis. Fjöldi þeirra, víðs-
vegar um landið, er um 200.
Að auki tekur stofnunin fast-
eignir á leigu á almennum
markaði og endurleigir þær
stofnunum ríkisins. Megin
verkefni stofnunarinnar eru
útleiga húsnæðis til ríkisstofn-
ana og að viðhalda því og
endurbæta svo það nýtist sem
best starfsemi leigjenda.
Fasteignum ríkissjóðs hefur
einnig verið falin umsjón með
leiðréttingu á skráningu fast-
eigna ríkisins í opinberum
skrám þannig að þær endur-
spegli rétta eignastöðu ríkis-
ins. Ríkið geti að því búnu
gert fullnægjandi grein fyrir
eigum sínum hvað varðar
fjölda, staðsetningu, notkun
og verðmæti.
– thelma@bb.is
Fasteignir heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum munu færast yfir til Fasteigna ríkissjóðs.