Bæjarins besta - 08.01.2009, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 5
Sveitarstjórn Súðavíkur-
hrepps hefur samþykkt að
nýta sér heimild til hámarks-
útsvars á árinu 2009, úr
13,03% í 13,28%. Súðavíkur-
hreppur bætist því í hóp þeirra
54 sveitarfélaga af 78 sem
leggja á hámarksútsvar. Eins
og kunnugt er samþykkti Al-
þingi lög sem heimila að
hækka útsvarsprósentu um
0,25 prósentustig, þ.e. úr 13,03%
af útsvarsstofni í 13,28%.
„Samkvæmt áætlun er gert
ráð fyrir aukaframlagi Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga til
Súðavíkurhrepps að upphæð
8 milljónir á árinu 2009. Í
reglum jöfnunarsjóðs um út-
hlutun aukaframlags til sveit-
arfélaga til að jafna aðstöðu-
mun vegna þróunar í rekstrar-
umhverfi og erfiðra ytri að-
stæðna, er tekið fram að ein-
ungis þau sveitarfélög sem
fullnýta útsvarsheimild fái
aukaframlag Jöfnunarsjóðs,
enda mælist þau með þörf fyrir
slíkt framlag“, segir í fundar-
bókun Súðavíkurhrepps.
Fullnýta heimildina
„Við bjuggumst ekki frekar
en aðrir við svo miklum nið-
urskurði.“ segir Kristín Völ-
undardóttir, sýslumaður á Ísa-
firði, en fjárveiting til em-
bættisins fyrir árið 2009 verð-
ur skorin niður um 14,3 millj-
ónir króna, fer úr 232,8 millj-
ónum í 218,5 milljónir. „Ég
hef tekið þá ákvörðun að
lækka eigin laun, yfirlög-
regluþjónn og aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hafa einnig
samþykkt launalækkun. Síð-
an er ég í viðræðum við starfs-
menn, það er bara ekki komið
að þessu enn. Ég er búin að
senda tölvupóst á alla starfs-
menn þar sem ég tjái þeim að
ég lækki laun mín til sam-
ræmis við aðra,“ segir Kristín.
Hún segist ekki ætla að
lækka grunnlaun lögreglu-
manna á Vestfjörðum. „Föst
yfirvinna hjá lögreglumönn-
um verður skert og sömuleiðis
aðgangur þeirra að yfirvinnu
en ég hreyfi ekki við grunn-
launum,“ segir Kristín. Hún
vonast til að þessar aðgerðir
nægi til að draga úr þessu
áfalli sem fylgir niðurskurð-
inum og er stefnan að ekki
þurfi að segja upp lögreglu-
mönnum.
– thelma@bb.is
Yfirmenn lögreglunn-
ar lækka í launum
Bæjarstjórn Bolungarvíkur
hefur samþykkt að nýtt verði
heimild til álagningar há-
marksútsvars fyrir tekjuárið
2009, 13,28%. Auk þess sam-
þykkir bæjarstjórn 10% álag
á útsvar samkvæmt tillögu
eftirlitsnefndar með fjármál-
um sveitarfélaga og heimild
frá samgönguráðuneytinu.
Útsvarsprósenta í Bolungar-
vík fyrir tekjuárið 2009 er
því ákveðin 14,61%.
Með þessari aðgerð ásamt
þeirri aðgerðaáætlun sem lögð
verður fram í tengslum við
fjárhagsáætlun áranna 2009
og 2010, staðfestir bæjarstjórn
Bolungarvíkur markmið samn-
ings við Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga frá
því í október um að stöðva
hallarekstur og skuldasöfnun,
bæta eiginfjárstöðu og styrkja
rekstrargrundvöll sveitarfé-
lagsins til framtíðar.
Útvarsprósenta Bol-
víkinga ákveðin 14,61%
Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur sam-
þykkt að nýta heimild til hámarksútsvars.
Öllum starfsmönnum
Spýtunnar sagt upp
Öllum starfsmönnum Spýt-
unnar ehf. á Ísafirði var sagt
upp daginn fyrir gamlársdag.
Að sögn Magnúsar H. Jónsson-
ar, framkvæmdastjóra Spýtunn-
ar er ein af orsökum þess að
starfsmönnunum var sagt upp,
sú að forsendur vegna verks á
vegum Bolungarvíkurkaupstað-
ar séu brostnar. Spýtan er und-
irverktaki Rafskauts ehf., á
Ísafirði, sem sér um endurbætur
á Félagsheimili Bolungarvíkur.
Elías Jónatansson, bæjarstjóri
Bolungarvíkur, segir ekki hafi
verið hætt við framkvæmdir á
félagsheimilinu. „Við erum í
viðræðum við verktakann um
að stöðva framkvæmdir í ákveð-
inn tíma og færa verklok til árs-
ins 2010. Um þetta er þó ekki
búið að taka formlega ákvörðun
í bæjarstjórn,“ segir Elías. Hann
segir sveitarfélagið vera vinna
að fjárhagáætlun fyrir næsta ár
og er þetta eitt af þeim atriðum
sem þar er uppi á borðinu til
fyrri umræðu í bæjarstjórn.
„Það er því ekki búið að taka
formlega ákvörðun um þetta í
bæjarstjórn og þessa dagana er
verið að fara yfir hvernig heppi-
legast er að skilja við verkið
áður en það verður sett í bið-
stöðu. Í slíkum samningi yrði
gengið frá því hvaða verkþættir
yrðu kláraðir áður en verkið yrði
sett í biðstöðu, hvenær verk hæf-
ist aftur og hvenær verklok
yrðu,“ segir Elías.
Aðspurður hvort uppsagnir
starfsmanna Spýtunnar komi til
með að hafa áhrif á samning
Bolungarvíkur við Rafskaut
segir Elías sveitarfélagið aðeins
gera sinn samning við aðalverk-
takann. „Ég á ekki von á öðru
en að við munum eiga mjög
gott samstarf við aðalverktaka
um að breyta verktíma,“ segir
Elías.
Hann segir ekki hægt að orða
það þannig að þetta sé krafa frá
eftirlitsnefnd sveitarfélaganna.
„Þegar við setjum saman fjár-
hagsáætlun þá eru allir þættir til
endurskoðunar og við förum
ofan í allar framkvæmdir og
rekstur. Okkar markmið í fjár-
hagsáætluninni er að endar nái
saman árið 2010. Árið 2009
verður erfitt og sjáum við ekki
fram á að endar nái saman þá,“
segir Elías.
Aðspurður segist hann ekki
eiga von á því að sveitarfélagið
þurfi að greiða verktakanum
skaðabætur þótt hægt verði á
framkvæmdum. „Þetta verður
allt gert í góðu samkomulagi
við verktakann. Ef það lægi fyrir
að það kostaði okkur skaða-
bætur þá þýðir það að við mynd-
um endurskoða málið. Við erum
auðvitað bara að leita hagkvæm-
ustu leiða í rekstri og fram-
kvæmd,“ segir Elías.
– birgir@bb.is
Vestfirðingum fjölgar á milli
ára en þeir voru 7.374 talsins
þann 1. desember sl., eða 65
fleiri en á sama tíma í fyrra.
Mest fjölgar íbúum í Bolungar-
vík eða um 58 íbúa á milli ára.
Íbúar Ísafjarðarbæjar voru fimm
fleiri í ár en á síðasta ári, þeim
fjölgar um einn í Súðavíkur-
hreppi, þrettán í Reykhóla-
hreppi, tólf í Tálknafjarðar-
hreppi, átta í Kaldrananeshreppi
og um einn í Árneshreppi. Ekki
var þó íbúafjölgun í öllum sveit-
arfélagsins og fækkar íbúum í
Vesturbyggð um 19, í Bæjar-
hreppi fækkar íbúum um fjóra
og tíu í Strandabyggð. Er þetta í
fyrsta sinn um árabil þar sem
íbúum fjölgar á Vestfjörðum en
þeir voru 7.299 í byrjun árs og
hefur þeim því fjölgað um 75.
Þess má til gamans geta að karl-
menn eru í meirihluta íbúa á
Vestfjörðum eða 3.800 á móti
3.574 konum.
Ef litið er á landið í heild
hefur fólksfjölgun verið óvenju
mikil undanfarin fjögur ár. Sam-
kvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru
landsmenn 319.756 hinn 1. des-
ember síðastliðinn samanborið
við 312.872 ári áður. Á vef Hag-
stofunnar segir að þótt náttúru-
leg fólksfjölgun eigi enn tals-
verðan þátt í fjölgun íbúa hér á
landi verður fólksfjölgun und-
anfarin ár öðru fremur rakin til
mikils aðstreymis fólks frá út-
löndum. Frá 1. desember í fyrra
til 1. desember í ár var fjöldi
aðfluttra umfram brottflutta
rúmlega 4.000. Á sama tíma
voru fæddir umfram dána rúm-
lega 2.800 talsins.
Vestfirðingum fjölgar
Mesta íbúafjölgunin á Vestfjörðum átti sér stað í Bolungarvík.