Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 08.01.2009, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 13 svarar því neitandi. „Ég hef aldrei lent í neinu sem ég get kallað sjávarháska“, segir hann, en kveðst að vísu hafa lent í slæmum veðrum. Annað hvort væri nú á öllum þessum tíma, myndi kannski einhver segja. „Einu sinni fórum við og sótt- um epli suður í Reykjavík fyrir jólin. Þá var ég á Örninni, sem var hérna á Súgandafirði. Hún er á Ísafirði núna, á safninu niðri í Neðstakaupstað, grænn bátur, nítján tonn. Það er eiginlega það versta veður sem ég hef fengið á sjó. Ég hef þá verið um þrítugt.“ Rær enn á trillunni á sumrin Fram eftir aldri var Egill á ýmsum bátum en síðari áratug- ina hefur hann róið á eigin trillu. „Eftir að ég kom hingað í Súg- andafjörð var ég mikið með eig- in trillu á sumrin en var á línu- bátunum hérna á veturna, bæði á Freyjunni og Örninni. Ég hef aldrei róið trillunni á veturna“, segir Egill, en trillan hans er fimm tonna bátur. Og enn sækir Egill Kristjáns- son sjóinn á trillunni á sumrin. Þegar hann er spurður hvort honum sé kunnugt um nokkurn annan mann á hans aldri sem enn sækir sjóinn kveðst hann reyndar ekki vita um slíkt. Egill lagði alla tíð upp hjá Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri, sem nú heitir reyndar Íslands- saga. Þar vann hann líka nokkra vetur og sá um flökunarvélarnar. Demantsbrúðkaup á liðnu sumri Þegar nafni Egils er flett upp í Þjóðskránni kemur fram, að hann heitir fullu nafni Egill Klemensson Kristjánsson. Egill útskýrir það þannig, að faðir hans og maður að nafni Egill Klemensson (d. 1918) hafi verið góðir vinir, „og ég var látinn heita eftir honum.“ Bróðir Egils nokkru yngri er Kristján Jón Kristjánsson á Ísa- firði, betur þekktur sem Kútti eða Kútti lögga, sem lengi var lögregluþjónn á Ísafirði. Eiginkona Egils er Guðrún Guðjónsdóttir, Súgfirðingur að uppruna. Heimili þeirra er að Hjallavegi 3 á Suðureyri. Þau áttu sextíu ára hjúskaparafmæli á liðnu sumri, en það mun kallast demantsbrúðkaup. Þann- ig er meira en áratugur liðinn frá gullbrúðkaupinu, sem jafnan er talið merkilegur áfangi í hjúskap. Börnin þeirra fimm Börnin sem þau hjónin eiga saman eru þrjú en áður en þau tóku saman áttu þau sitt barnið hvort. Elsta dóttir Egils er Ásta Dóra Egilsdóttir á Ísafirði, sem hann átti með Fanneyju Sigurbaldurs- dóttur. Fóstursonur hans og sonur Guðrúnar er Ómar Þórðarson, sem búsettur er í Reykjavík og starfar hjá Flutningatækni. Börn Guðrúnar og Egils eru Trausti Aðalsteinn Egilsson, skipstjóri á togaranum Örfiris- ey, Edda Egilsdóttir, sem vinnur á Miðborgarpósthúsinu í Reyk- javík, og Kristín Ósk Egilsdóttir, sem búsett er á Suðureyri og vinnur í Sparisjóðnum. Aldrei orðið misdægurt „Já, ég held ég megi segja að mér hafi aldrei orðið misdæg- urt“, segir Egill þegar hann er spurður hvort hann hafi jafnan verið heilsuhraustur. „Alltaf mætt í vinnu og aldrei verið borguð króna vegna veikinda- forfalla alla mína tíð.“ Og hér má minna á það á ný, að Egill Kristjánsson hefur verið í fullri vinnu hálfan áttunda tug ára eða rúmlega það. Elskulegt fólk í Súgandafirði Ekki stendur á svarinu þegar Egill er spurður hvort hann beri ekki hlýjan hug til Suðureyrar við Súgandafjörð, þar sem hann hefur alið aldur sinn í meira en sextíu ár. „Jú! Mér þykir vænna um Suðureyri en Ísafjörð. Ég gæti ekki hugsað mér að vera á Ísa- firði. Þegar ég kom hingað í Súgandafjörðinn var hér elsku- legt fólk sem tók vel á móti mér. Og það sem núna er hér eftir er ekki síður gott fólk. Það er bara orðið svo lítið eftir hér af Súgfirðingum.“ Í lokin á samtali okkar áréttar Egill að hann sé afar lítið fyrir að láta á sér bera. „Ég einfald- lega geri mitt eins vel og ég get, og svo er það bara búið“, segir hann. Leiðarljós okkar sem yngri erum Óðinn Gestsson, framkvæm- dastjóri Fiskiðjunnar Íslands- sögu á Suðureyri, er fæddur þar og uppalinn og hefur þekkt Egil alla sína tíð. Þegar Óðinn er spurður um Egil og kjörið á Vestfirðingi ársins farast honum orð á þessa leið: „Egill Kristjánsson er vel að þessum titli kominn. Hann er ímynd þessa venjulega sjó- manns og verkamanns sem gengur til verka sinna af æðruleysi og dugnaði. Hann er líka gott dæmi um það hvernig menn geta breyst með umhverfi sínu og nýtt þau tækifæri sem bjóðast. Uppgjöf er ekki til í orða- bók Egils. Hann hefur alltaf reynt að gera sitt besta í þeim störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Þannig er hann leiðarljós okkar sem yngri erum inn í framtíðina. Sérstaklega á þetta við í dag þar sem við þurfum öll að leggjast á árarnar til þess að koma Íslandi upp úr þeim öldudal sem að við erum í. Ef öll íslenska þjóðin hefði þá eiginleika sem Egill hefur, dugnað, æðruleysi, sam- viskusemi og eljusemi, þá myndum við svífa mjög fljótt upp úr þeim öldudal. Þessi titill er ekki síður kærkominn fyrir okkur sem að höfum orðið samferða Agli síðustu árin. Fólk virðist taka eftir því sem vel er gert. Þetta styrkir okkur í því sem að við höfum verið að gera og kannski hefur eitthvað af því verið rétt.“ – Hlynur Þór Magnússon. Lánsamur maður á langri ævi Egill Kristjánsson sjómaður á Suðureyri er Vestfirðingur ársins 2008

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.