Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Page 15

Bæjarins besta - 08.01.2009, Page 15
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 15 Vornámskeið Vornámskeiðin eru að hefjast. Fjölbreytt námskeið í boði. Munið að skrá ykkur. Nánari upplýsingar og skráning á nám- skeiðin er á www.frmst.is eða með tölvupósti á netfangið frmst@frmst.is eða í síma 456 5025. Athugið möguleika á endurgreiðslu nám- skeiðagjalds hjá stéttarfélögum. „Ekki vegfarenda að meta hvort lögreglan mætir á vettvang“ Jeppabifreið fór út af veginum um Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi um kl 13 á föstudag. Fjórir voru í bílnum og segir einn þeirra, Sigurvin Guðmundsson, farir sínar ekki sléttar eftir útafakst- urinn, en hann var þar á ferð ásamt systur sinni, mági og fjór- tán mánaða gamalli systurdóttur sinni. „Bíllinn byrjaði að rása til á veginum og kastaðist síðan af veginum og endaði á stóru grjóti niður í fjöru. Bíllinn var ekki langt frá því að velta niður í sjó og vorum við ekki nema hálfan metra frá sjónum þegar hann staðnæmdist á grjótinu,“ segir Sigurvin. Hann telur að þau hefðu slasast illa, hefðu þau ekki verið á svo góðum og traustum bíl. „Við komumst öll út úr bílnum og það slasaðist enginn alvarlega en við vorum frekar lemstruð. Systir mín var marin eftir beltið og mágur minn var slæmur í bakinu. Svo þegar við vorum búin að átta okkur á þessu, hringdi mágur minn í lög- regluna en hún vildi ekki koma á slysstað. Hún sá ekki tilgang í að mæta,“ segir Sigurvin. Sigurvini finnst háttarlag lögreglunnar einkennilegt. „Mér finnst það afar furðulegt að lögreglan skuli ekki hafa komið til okkar þegar þessi staða kom upp. Móðir mín hringdi í lögregluna þegar hún frétti af þessu og var frekar ósátt með vinnubrögð þeirra. Lögreglan staðfesti við hana að við hefðum tilkynnt slysið og sagði okkur hafa verið þrjú í bílnum en reyndin var að við vorum fjögur í bílnum,“ segir Sigurvin. Hann segir það eina sem þau gátu gert var að fá far með bílum sem höfðu stoppað hjá þeim. Systir hans og dóttir hennar fengu far með Skarphéðni Gíslasyni, skipstjóra á Ísafirði, og mágur Sigurvins fékk far rétt á eftir og komust þau til Hólmavíkur þar sem þau fengu far til Reykja- víkur. „Þetta er ósatt hjá honum,“ segir Önundur Jónsson, yfir- lögregluþjónn á Ísafirði. Hann segir að aðilanum sem tilkynnti um slysið hafa verið boðið aðstoð lögreglu frá Hólmavík því þaðan sé styttra til Mjóa- fjarðar. „Þá sagðist hann vera búinn að gera ráðstafanir og það væri verið að flytja fjölskylduna af vegfarendum sem áttu leið hjá og hann sjálfur ætlaði að fjarlægja verðmæti úr bílnum og fá svo far. Slysið átti sér stað í 140 kílómetra fjarlægð frá okk- ur og 100 kílómetra fjarlægð frá Hólmavík. Umferðaróhapp- ið var tilkynnt til lögreglu kl 13:26 og ég átti sjálfur leið þarna um hálf tólf leytið og var þar fljúgandi hálka. Hefðu við sent menn frá okkur hefði tekið langan tíma að fara þangað vegna hálku,“ segir Önundur. Hann segir lögregluna ávallt bjóða aðstoð í tilvikum sem þessum. „Það er rætt við fólk og því alltaf boðin aðstoð og ef einhver alvarleg meiðsl eru á fólki, förum við á staðinn, hvort sem fólk biður um aðstoð eða ekki. Þarna var hann búinn að senda alla farþega frá sér og lögreglan hafði þá ekkert að gera á staðinn. Ef hann er að lenda í óhappi um hálf tvö og lögreglan fer á vettvang þá er hún í einn og hálfan tíma á vettvang því hún fer ekki með forgangi. Þeir hefðu verið komnir inn eftir í fyrsta lagi kl 15. Þá hefði mað- urinn þurft að bíða eftir lögregl- unni allan þann tíma í stað þess að fá far. En ef hann hefði verið meiddur hefðum við sent sjúkra- bíl eins og skot og allt það sem hægt er. Það er bókað hjá mér tvívegis að manninum var boðin aðstoð,“ segir Önundur. „Burt séð frá þessum útskýr- ingum, finnst mér að þeir eigi ekki að bjóðast til að koma á vettvang heldur eiga þeir hik- laust að mæta á vettvang. Ef ég væri að keyra undir áhrifum áfengis og lenti í álíka slysi og tilkynnti það til lögreglunnar. Þeir spyrja mig svo hvort þeir eigi að mæta á vettvang og ég get þá fríað mig frá málinu með því að afþakka alla aðstoð. Það er ekki alltaf okkar að dæma hvort lögreglan eigi að mæta á vettvang eða ekki,“ segir Sigur- vin Guðmundsson. – birgir@bb.is „Þetta þýðir að við þurfum að svíkja samninga,“ segir Sæ- mundur Kr. Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Skjólskóga á Vestfjörðum, aðspurður um nið- urskurð fjárveitinga frá ríkinu til félagsins um 20% eða úr 57,6 milljónum króna í 46,1 milljón. Sæmundur segir félagið hafa verið viðbúið niðurskurði frá ríkinu og hafi stoppað alla samn- inga í október. „Við settum lok á samninga og höfum ekki skuldbundið okkur síðan í byrj- un október. Við erum að senda bréf til samstarfsaðila okkar um að það verði frestun á verkefn- um um óákveðinn tíma. Samn- ingar sem eru þegar í gildi verða það áfram og við leitum allra leiða til að uppfylla þá. Við erum með samninga um plöntukaup upp á 350.000 plöntur að verð- mæti um fjórtán milljónir króna. Við þurfum því að skera niður töluvert. Ég veit ekki hvar við plöntum, ætli við plöntum ekki bara á Arnarhóli,“ segir Sæ- mundur. Hann segir niðurskurðinn réttmætan því framkvæmdin telst ekki til neyðaraðstoðar. „Í ljósi þess að verið sé að skera niður þar sem ekki má, þá vorum við tilbúin í þetta. Ég er hins vegar mjög óhress með að ekki skuli gæta samræmis í niður- skurðinum. T.d. eru öll lands- byggðarverkefnin skorin niður um 20% en svo eru ný verkefni eins og Hekluskógar sem fá miklu minni niðurskurð. Þegar skera á niður verða menn að gera það en það verður að vera einhver sanngirni í niðurskurð- inum,“ segir Sæmundur. Hann segir félagið hafa mótmælt ósamræminu en þeim var sagt að þau væru starfsmenn sem ættu að hlíta honum. „Auðvitað munum við gera það. Við eig- um hins vegar að skila tillögum að hallalausum rekstraráætlun- um í janúar og ætli þær verði ekki í samræmi við fjárlögin sem verið er að ræða núna,“ segir Sæmundur. Þurfa að svíkja samninga Páll og Stefnir slá met Ísfisktogarar Hraðfrysti- hússins Gunnvarar hf., Páll Pálsson og Stefnir, slógu met á síðasta ári, en aflaverðmæti þeirra hefur aldrei verið meira. Síðasta ár var einnig annað besta árið hjá frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni. Páll Pálsson fiskaði fyrir 613 milljónir, 49 milljónum meira en 2007. Þá fiskaði Stefnir fyrir 542 milljónir, tæplega 95 milljónum meira en 2007. Aflaverðmæti frystitogar- ans Júlíusar Geirmundssonar jókst frá árinu 2007, var 827 milljónir 2007 á móti 1.089 milljónum í fyrra. Tekið skal fram að ekki er búið að selja allan afla af skipunum frá því í fyrra og er þetta því áætlun frá HG. Stefnir var frá veiðum í um sjö vikur síðasta sumar vegna viðhalds, einnig var settur í skipið nýr búnaður frá 3X Tecnology til að snöggkæla fisk með ískrapa áður en hann fer ofan í lest. Þessi búnaður bætir geym- sluþol og gæði fisksins. Páll var frá veiðum í um 5 vikur vegna viðahalds og sumarlokunar frystihúss. Júlíus var á veiðum allt árið. Júlíus aflaði 4.583 tonnum, Páll aflaði 3.903 tonnum og Stefnir aflaði 2.846 tonn. Aflaverð var mjög gott á síðasta ári en til marks um það fiskuðu skipin meiri afla á árinu 2007 en þá fiskaði Júlíus Geirmundsson 4.215, Páll Pálsson 4.339 tonn og Stefnir 3.356 tonn. – birgir@bb.is Metár var hjá Páli Pálssyni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.