Bæjarins besta - 22.01.2009, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 3
Erlendir ríkisborgarar
8,5% íbúa Ísafjarðarbæjar
Hlutfall erlendra ríkisborgara
í Ísafjarðarbæ er um 8,5% sem er
heldur meira en landsmeðaltalið
sem er innan við 7%. Dregið hef-
ur þó saman með fjölda erlendra
ríkisborgara í Ísafjarðarbæ og á
landsvísu að því er fram kemur í
drögum að nýju aðalskipulagi
sveitarfélagsins sem nú er unnið
að. Kynjahlutfall erlendra ríkis-
borgara í Ísafjarðarbæ hefur auk-
ist síðustu ár og munar þar mest
um fjölda erlendra karla sem nú
er orðinn en meiri fjöldi kvenna.
Meira en helmingur þeirra sem
eru með erlent ríkisfang í Ísa-
fjarðarbæ koma frá Póllandi en
aðrir fjölmennir hópar eru frá
Taílandi, Filippseyjum og Þýska-
landi. Margir erlendir ríkisborg-
arar hafa sótt í að vinna við
fiskvinnslu. Breytingar í grein-
inni, m.a. kvótaniðurskurður, eru
líkleg til að hafa áhrif á fjölda
erlendra ríkisborgara að því er
fram kemur í aðalskipulagsdrög-
unum.
– thelma@bb.is
Landsnet vinnur nú að endur-
bótum sem auka munu gæði raf-
orkuafhendingar á Vestfjörðum
og hefur 1. áfanga verksins verið
hrint í framkvæmd með endur-
nýjun varnarbúnaðar 66 kV lína
í fjórðungnum. En eins og kunn-
ugt er hefur áreiðanleiki raforku-
flutningskerfisins á Vestfjörðum
verið lægri en annars staðar í
flutningskerfi Landsnets. Allar
línur Landsnets á Vestfjörðum
eru nú með sérstakar fjarvarnir í
báðum endum sem leysa línurnar
út komi upp bilun á þeim. Hinn
nýi varnarbúnaður er mjög full-
kominn og frá honum gengið
þannig að bilanir eru leystar út á
mun styttri tíma en áður sem
eykur verulega líkur á að virkjan-
ir falli ekki út eins og áður var
með því umfangsmikla straum-
leysi sem því er samfara. Einnig
gefur búnaðurinn upp hvar bilun
er staðsett og mun það auðvelda
bilanaleit og þar með stytta þann
tíma sem línur eru úti.
Með tilkomu þessa búnaðar er
nú hægt að reka hringtenginguna
milli Breiðadals, Ísafjarðar og
Bolungarvíkur lokaða, sem sagt
með allar þrjár línur inni, en það
hefur hingað til ekki verið gert.
Komi nú upp bilun á einni þessara
lína, slær sú lína út en hinar hald-
ast áfram inni og þar með einnig
Ísafjörður og Bolungarvík. Hér
hefur því verið stigið stórt skref
til að auka afhendingaröryggi raf-
magns á Ísafirði og í Bolungar-
vík. Landsnet er með frekari
aðgerðir í undirbúningi varðandi
undirtíðni- og undirspennuvarnir
með það að markmiði að bæta
afhendingaröryggi raforku til
notenda á Vestfjörðum í sam-
starfi við Orkubú Vestfjarða.
Frá þessu er sagt á vef Lands-
nets.
– thelma@bb.is
Varnarbúnaður 66 kV lína endurnýjaður
58 íbúðir
seldar á
fimm árum
Fasteignir Ísafjarðarbæjar
hafa selt 58 íbúðir á síðast-
liðnum fimm árum og er mark-
miðið að fækka þeim enn
frekar að sögn Gísla Jóns
Hjaltasonar, framkvæmda-
stjóra Fasteigna Ísafjarðar-
bæjar. Auk þessa hefur fé-
lagið fargað tuttugu íbúðum
sem voru á snjóflóðahættu-
svæði að Árvöllum í Hnífs-
dal. Gísli Jón segir nokkuð
gott jafnvægi á framboði og
eftirspurnum eftir leiguíbúð-
um en enn séu nokkrir á bið-
lista eftir íbúðum. „Það er í
rauninni búið að vera þannig
í heilt ár og ekki mikil breyt-
ing á,“ segir Gísli Jón. Hann
segir Fasteignir Ísafjarðar-
bæjar vera með 94 íbúðir á
Ísafirði, 16 á Suðureyri, tvær
á Flateyri og 14 á Þingeyri.
Aðspurður hvort fyrir-
spurnir eftir íbúðum hafa
aukist segir Gísli Jón það
aðallega hafa verið s.l. haust.
„Við höfum fundið fyrir fyr-
irspurnum að sunnan. Í haust
komu nokkrar slíkar en það
hefur ekki reynt svo mikið
meira á þær. Væntanlega
þegar fólk missir vinnu hefur
það farið að kanna hvaða
möguleikar eru í stöðunni
en það þarf þá að finna vinnu
hér til að sjá ástæðu í að
flytja,“ segir Gísli Jón.
– birgir@bb.is
Bryndís Elsa Guðjónsdóttir
hreppti fyrsta sætið í undan-
keppni Söngkeppni Samfés í
Grunnskólanum á Ísafirði á
föstudag. Níu atriði kepptu
um rétt til þátttöku í Vest-
fjarðakeppninni sem haldin
verður 30. janúar. Bryndís
Elsa, sem söng sig inn í hug
og hjörtu dómnefndarinnar
og áhorfendanna með laginu
Fairytales sem Sara Barellies
gerði frægt, var einmitt
fulltrúi Vestfjarða í Söng-
keppni Samfés í fyrra.
Í öðru sæti varð Benjamín
Bent Árnason og í þriðja sæti
Agnes Ósk Marzellíusar-
dóttir. Þessir þrír þátttak-
endur taka þátt fyrir hönd
félagsmiðstöðva Ísafjarð-
arbæjar í Vestfjarðakeppn-
inni. Í dómnefnd voru þau
Rúna Esradóttir, Halldór
Smárason og Guðmundur M.
Kristjánsson, hafnarstjóri
Ísafjarðarbæjar.
– thelma@bb.is
Bryndís Elsa sigraði í söngkeppni GÍ
Bryndís Elsa Guðjónsdóttir söng lagið Fairytales með Sara Barellies. Mynd: Anton Eðvarð Kristensen.