Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 20

Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Keppa fyrir Íslands hönd Skíðafélag Ísafjarðar mun eiga þrjá af tíu fulltrúum Íslands á Ólym- píudögum æskunnar sem fram fara í Póllandi dagana 14.-21. febr- úar. Rannveig Jónsdóttir og Silja Rán Guðmundsdóttir keppa í skíðagöngu og Ólafur Njáll Jak- obsson í alpagreinum. Stúlkurnar eru einu fulltrúar Íslands á göngu- skíðum en Ólafur Njáll keppir ásamt bestu svigskíðamönnum landsins í þessum aldursflokki. Bæjarins besta spjallaði við krakkana um þátttöku á þessum vetrarleikum Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar. – Eruð þið spennt? „Já og svolítið stressuð. Maður finnur það að maður er mun stressaðri fyrir þetta heldur en þau mót sem maður hefur tekið þátt í hér heima á Íslandi“, segir Rannveig. „Þarna er keppt í öllum vetraríþróttunum, ekki bara á skíðum. T.d. er keppt í list- dansi á skautum, curling (krullu) og bara öllu. Þetta eru vetrarólympíuleikar fyrir unglinga“, segir Ólafur Njáll. – Nú eru tíu að keppa frá Íslandi, þekkið þið hina krakkana? „Já, þau eru öll að keppa á svigskíðum eins og ég. Svo ég hef oft áður keppt með þeim. Valdir voru þeir fjórir bestu af strákum og stelpum á FIS-lista þeirra sem fæddir eru ´92-93,“ segir Ólafur en stúlkurnar eru hins vegar þær einu sem keppa á gönguskíðum. „Ég og Rannveig vorum valdar í unglingahóp af Skíðasamband- inu í sumar og við vorum þær einu sem voru á réttum aldri til þess að geta tekið þátt í Ólympíu- dögunum“, segir Silja. – Eru stífar æfingar fram að móti? „Nei, ekki getum við sagt það. Maður má ekki ofþjálfa sig. Við höldum bara áfram á æfingum eins og vanalega og bætum svo kannski ein- hverju við þær“, seg- ir Rann- veig. „Það yrði erfitt fyrir mig að fá séræfingar þar sem ég æfi í 20 manna hópi. En maður reynir að æfa sig eitthvað sjálfur með hin- um æfingunum“, segir Ólafur Njáll. – Hafið þið farið áður út að keppa? „Já við kepptum í Noregi fyrir nokkrum árum“, segir Rannveig. „Ég hef nokkrum sinnum keppt í Noregi“, segir Silja. „Ég hef aldrei keppt en hef farið í æfingaferðir til Geilo í Noregi og Austurríkis.“ „Það verður því gaman að fara til Póllands og fá að sjá það. Sér- staklega af því að landið er ekki líklegt að verða fyrir valinu þegar maður er að fara í önnur ferða- lög“, segir Silja. Draumurinn hennar mömmu – Hvað hafið þið æft skíði lengi? „Ég hef æft í tíu á r . Allan tímann á gönguskíðum en ég var eitthvað á svigskíðum með þegar ég var lítil“, segir Silja. „Ég hef æft í átta ár og alltaf verið á gönguskíðum“, segir Rann- veig. Mig minnir að ég hafi byrjað 6-7 ára að æfa eða bara um leið og ég hafði aldur til. Ég byrjaði að læra á skíði nokkurra mánaða gamall með mömmu, það var draumurinn hennar mömmu að ég yrði skíðamaður“, segir Ólafur Njáll. „Það er einmitt það góða við þessa íþrótt. Maður getur verið í henni alla ævi. Allt frá því að maður er lítið barn og þar til maður verður gamall“, segir Rann- veig. „Já það er helling af gömlum körlum alltaf á skíðum hérna. Ég ætla að stunda skíði eins lengi og ég get“, segir Silja. „Ég stefni að því að komast eins langt og ég kemst í íþróttinni. Ég stefni á að komast í FIS-liðið innan fjögurra ára en það er næsta fyrir neðan landsliðið,“ segir Ólafur Njáll. – Finnst ykkur vera mikil skíða- menning á Ísafirði? „Já ég myndi segja það. Frá því að ég byrjaði að æfa hefur verið góður hópur sem fylgdist að en þennan vetur eru margir í útlöndum. En það eru alltaf ein- hverjir nýir að bætast inn, sérstak- lega hjá yngri krökkunum“, segir Silja. Að lokum vilja Silja og Rann- veig koma á framfæri þakklæti til þeirra sem styrkja þær til ferðarinnar. „Við fengum að vita þetta í nóvember og höfum verið að vinna í þessu síðan þá. Okkur hefur verið mjög vel tekið og við erum mjög þakklátar fyrir það.“. „Ég fékk að vita þetta í janúar en hef þegar fengið styrki og er afar þakklátur fyrir það. Ferlið til að öðlast þátttökurétt á Ólym- píudagana er mun lengra hjá svigskíðamönnunum. Við þurf- um að fara eftir alþjóðlegum punktum og því þurftum við að taka þátt í mótum til að vinna okkur þá inn“, segir Ólafur Njáll. Bæjarins besta óskar þeim góðs gengis og mun fylgjast með gengi þeirra á vetr- arleikunum. – thelma@bb.is Ólafur Njáll, Silja Rán og Rannveig skíðakrakkar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.