Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Fyrsta barn ársins er komið í
heiminn á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði en það er drengur
sem fæddist 14. janúar. Stoltir
foreldrar piltsins eru Hálfdán
Bjarki Hálfdánsson og Dóra Hlín
Gísladóttir á Ísafirði og er hann
fyrsta barn þeirra. Drengurinn
vó 4125 grömm við fæðingu og
var 53 cm á lengd. Móður og
barni heilsast vel. Ljósmóðir var
Brynja Pála Helgadóttir.
Ekki er von á að árið verði jafn
frjósamt á Vestfjörðum og á síð-
asta ári þegar 73 börn litu dagsins
ljós á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði en ekki hafa verið fleiri
fæðingar á FSÍ í tíu ár. Að sögn
ljósmóður á FSÍ eru fæðingar
skráðar fram að sumri og miðað
við þær þarf seinni hluti ársins
að vera frekar öflugur til að ná
sama fjölda fæðinga og árið
2008. – thelma@bb.is
Fyrsta barn
ársins á Ísafirði
Stoltir foreldrar með drenginn sinn.
Gert ráð fyrir aukinni og
fjölbreyttri ferðaþjónustu
Stefnt er að því að í Ísafjarðar-
bæ þróist sjálfbær ferðaþjónusta
sem hámarkar ávinning íbúa
svæðisins og upplifun ferða-
manna en gengur ekki á náttúru-
leg eða menningarsöguleg gæði
svæðisins. „Náttúra og saga Ísa-
fjarðarbæjar er auðlind sem mun
draga að sér mun fleiri ferðamenn
og er jafnvel gert ráð fyrir að hér
verði meiri aukning en að meðal-
tali á landinu. Litið hefur verið á
ferðaþjónustu sem mikilvægan
þátt í framtíðarþróun atvinnulífs
á Vestfjörðum og aukningu efna-
hagvaxtar. Hafa verður þó í huga
að greinin byggir á þeim gæðum
náttúru og samfélags sem til stað-
ar eru og aukinn fjöldi ferða-
manna veldur álagi á náttúru,
samfélag og innviði þess“, segir
í drögum að aðalskipulagi Ísa-
fjarðarbæjar fyrir árin 2008-2020
sem kynnt verður fyrir íbúum og
hagsmunaaðilum í mánuðinum.
Í greinargerð með drögunum
er bent á að ósnortnum svæðum
í heiminum fer fækkandi og fyrir
vikið verða slík svæði verðmæt-
ari. „Hætta er á að atvinnuvegir
sem spilla náttúru svæðisins geti
haft neikvæð áhrif á ferðaþjón-
ustu. Auka þarf skilning og þekk-
ingu íbúa og ferðamanna á nátt-
úru og samfélagi og stuðla þannig
að sjálfbærni. Af þessu má sjá að
er að marka skýra stefnu um
ferðaþjónustu í aðalskipulaginu.
Svæði þola mismikið álag ferða-
manna m.t.t. náttúrufars og við-
horfa ferðamannanna sjálfra og
íbúa svæðisins. Mikilvægt er að
aðalskipulagið sé góður grunnur
fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu, að
það styðji við greinina til langs
tíma litið.“
Ferðamenn í heiminum í dag
sækja í aukum mæli í lítt spillta
náttúru sem verður sífellt sjald-
gæfari. Jafnframt leitast þeir eftir
nýrri upplifun í ferðum sínum.
Íslendingar ferðast í meira mæli
en áður um eigið land og hafa
gönguferðir um náttúruna notið
aukinna vinsælda. Samkvæmt
könnun á viðhorfum og hegðun
ferðamanna á norðanverðum
Vestfjörðum frá árinu 2003 er
falleg náttúra helsta ástæða fyrir
komu erlendra ferðamanna til
Vestfjarða. Innlendir og erlendir
ferðamenn töldu náttúrufegurð-
ina það jákvæðasta við norðan-
verða Vestfirði, m.a. útsýni,
fuglalíf og annað dýralíf. Ferða-
mennirnir sækja í gönguferðir í
þéttbýli og utan þéttbýlis, fugla-
skoðun, en einnig í söfn, sýning-
ar, sund og aðra þjónustu.
Aðalskipulagið gerir ráð fyrir
aukinni og fjölbreyttri ferðaþjón-
ustu í sveitarfélaginu. Umhverfið
mun laða að sér ferðamenn, nýja
íbúa, námsmenn en eykur einnig
lífsgæði núverandi íbúa. Æski-
legt er að auka möguleika á af-
þreyingu á svæðinu en það hefur
sömuleiðis áhrif á íbúa sveitar-
félagsins. Mikilvægt er að efla
samvinnu og tengslanet ferða-
þjónustuaðila til að ná frekari
árangri í ferðaþjónustu, m.a. við
skipulagningu atburða sem geta
haft jákvæð áhrif á ímynd svæð-
isins. Nýta á tækifæri sem felast
í notkun gamalla bygginga, báta
og svæða sem laða ferðamenn
og heimamenn að. Staðþekking
er dýrmæt og nýta má hana betur
t.d. í ferðaþjónustu með áherslu
á staðþekkingu leiðsögumanna.
Reyna á að lengja ferðamanna-
tímann og byggja á enn frekar
upp ferðir sérsniðnar að vetrinum
og upplifunum á náttúru, menn-
ingu og mannlífi tengdu þessari
árstíð. Ákjósanlegt og hagkvæmt
getur verið að hafa samvinnu
milli landssvæða við þróun á
vöru og þjónustuframboði. Nýta
á komur skemmtiferðaskipa
markvisst með góðu aðgengi og
markaðssetningu á þeirri afþrey-
ingu sem stendur farþegum skip-
anna til boða í landi. Skoða þarf
þó snemma hvaða áhrif stórauk-
inn fjöldi getur haft á samfélagið
og náttúru svæðisins.
– thelma@bb.is