Bæjarins besta - 22.01.2009, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
smáar
Til leigu er 64m² einbýlishús í
Hnífsdal. Leigist fram í júní.
Húsið er fullbúið húsbúnaði
og húsgögnum og leigist með
því. Hægt er að semja um leigu
fyrir allt tímabilið eða í styttri
tíma. Upplýsingar gefur Erna
í síma 869 4566.
Til sölu er einbýlishúsið að
Seljalandsvegi 48. Húsið er
189m², fjögur svefnherbergi,
tvö baðherbergi, stórt þvotta-
hús, eldhús, stofa og sjónvarps-
hol auk bílskúrs. Uppl. í síma
866 0080 eða 863 1626.
Vantar herbergi til leigu. Helst
með aðgangi að þvottahúsi,
baðherbergi og eldhusi. Uppl.
í síma 867 2780 og 896 6195.
Vantar geymsluhúsnæði und-
ir búslóð. Uppl. gefa Kristinn
í síma 867 2780 og Jóna í síma
896 6195.
Óska eftir sturtuklefa. Skoða
allar stærðir og gerðir. Uppl. í
síma 897 0942.
Kvenfélagið Hvöt heldur sitt
árlega þorrablót laugardaginn
7. febrúar í Félagsheimilinu í
Hnífsdal. Miðapantanir hjá
Gyðu í síma 456 3161, Stínu í
síma 456 4380 eftir kl. 16:00.
Lítið einbýlishús til leigu í Hnífs-
dal. Uppl. í síma 849 4476.
Til sölu er VW Golf árg. 1999,
ekinn 184 þús. km. Upplýsing-
ar í síma 897 4283.
Krefjast greiðslu lögfræðikostn-
aðar og afrits af áliti lögmanns
Eigendur sumarhússins að
Birnustöðum í Laugardal í Ísa-
fjarðardjúpi krefjast þess í erindi
til Súðavíkurhrepps að hreppur-
inn greiði útlagðan lögfræði-
kostnað eigenda sumarhússins
sem til hefur fallið vegna útgefins
byggingarleyfis vélageymslu á
Birnustöðum. Jafnframt er óskað
eftir að fá afrit af áliti Andra Árna-
sonar hdl., lögfræðings Súðavík-
urhrepps um sama mál. Varðandi
kröfu eigenda sumarhússins á
greiðslu útlagðs kostnaðar vísar
sveitarstjórn í fyrri samþykkt sína
vegna sama máls sem tekið var
fyrir á 37. fundi er haldinn var
18. desember sl. Sveitarstjórn tel-
ur engar nýjar upplýsingar hafi
komið fram í málinu sem breyti
þeirri samþykkt sveitarstjórnar
sem þar er gerð.
Varðandi beiðni um afrit af
áliti Andra Árnasonar hdl., lög-
fræðings Súðavíkurhrepps um
kröfu sömu aðila um greiðslu
útlagðs kostnaðar telur sveitar-
stjórn gögnin undanþegin upp-
lýsingaskyldu með vísan til 2.
tölul. 1. mgr. 4. gr. upplýsinga-
laga nr. 50/1996 og hafnar því
erindinu. Einnig hefur fengist
umsögn um samskipti og af-
greiðslna Súðavíkurhrepps til
Lögsýnar ehf. f.h. eigenda sum-
arhúss að Birnustöðum. Sam-
gönguráðuneytið telur að til-
kynningar sveitarstjórnar til
málsaðila hafi verið í anda góðra
stjórnsýsluhátta þannig að ekki
hefði átt að fara á milli mála
hvernig erindi hafi verið af-
greidd.
– birgir@bb.is
Birnustaðir í Laugardal í Ísafjarðardjúpi. Ljósm: © Mats.
Sjónvarpútsendingar Símans
hefjast á næstunni á Ísafirði
Ísafjörður.
Ísfirðingar munu fá aðgang að
fullri sjónvarpsþjónustu Símans
á næstunni að því er fram kemur
í tilkynningu frá fyrirtækinu. Að
sögn Margrétar Stefánsdóttur,
upplýsingafulltrúa Símans er
ekki hægt að gefa upp nákvæma
dagsetningu á því hvenær þjón-
ustan hefst en það verður á fyrsta
fjórðungi þessa árs, þ.e. fyrir lok
apríl. Flestar þær fjárfestingar
sem fyrirhugaðar voru hjá Sím-
anum koma til með að frestast
um óákveðinn tíma sökum óvissu
í gjaldeyrismálum í framvindu
efnahagsmála. Engu að síður hef-
ur Síminn ákveðið að ljúka upp-
byggingu á Ísafirði, enda hefur
mikil eftirspurn verður eftir þjón-
ustunni þar. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar hefur
átt í viðræðum við Símann um
framvindu verkefnisins.
Í kjölfarið mun Síminn meta
út frá eftirspurn og efnahagsþró-
uninni hvernig framhaldið verður
í öðrum bæjarfélögum. „Allar
efnahagsspár gefa til kynna að
eftirspurn muni minnka á næstu
misserum og því mikilvægt að
vega og meta framhaldið á svæð-
inu þegar reynsla er komin á
þjónustuna á Ísafirði en Síminn
er ánægður með að geta farið í
þessar framkvæmdir nú á fyrsta
ársfjórðungi,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson, forstjóri Símans.
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri segir það koma engum á
óvart að áætlanir, sem gerðar
voru fyrir þá lægð sem nú ríkir í
efnahags- og atvinnulífi, hafi
breyst. „Við fögnum því þar af
leiðandi hægt sé að finna leiðir
til að standa við áætlanir eins og
unnt er og bjóða Ísfirðingum full-
an aðgang að Sjónvarpi Símans.
Ég lít svo á að fleiri byggðarlög
muni njóta góðs af því að þetta
fyrsta skref skuli nú vera tekið,“
segir Halldór.
Fyrirhugað var að full sjón-
varpsþjónusta yrði einnig sett
upp í Bolungarvík og á Patreks-
firði á fyrsta ársfjórðungi, en ljóst
er að að af því verður ekki að
sinni. Þegar að því kemur að
þjónustan hefst á Ísafirði geta
Ísfirðingar horft á allar íslenskar
sjónvarpsstöðvar og 60 erlendar.
Einnig munu þeir hafa aðgang
að bíói heima í stofu þar sem
mögulegt er að leigja bíómyndir
auk þess sem hægt er að horfa á
mikið úrval efnis fyrir 0 kr.