Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.02.2011, Síða 2

Bæjarins besta - 24.02.2011, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011 Til stendur að koma á fót svokallaðri Fab lab smiðju á Ísafirði. Er stefnt er að stofnun stýrihóps sem á að vinna að uppsetningu slíkrar smiðju og er ætlunin að halda kynningu á stafrænni smiðju eða Fab Lab smiðju (Fabrication Labora- tory) og jafnframt stofnfund slíks stýrihóps fyrir verkefnið mánudaginn 28. febrúar kl. 12 í húsnæði Menntaskólans á Ísa- firði. Starfssemi Fab Lab smiðju í Vestmannaeyjum og á Sauðár- króki verður kynnt og farið yfir stöðu og framtíðarsýn vegna verkefnisins á Ísafirði. Að því búnu verður kosið í undirbún- ingshóp og eru áhugasamir og velviljaðir beðnir að gefa kost á sér með því að senda tilkynningu fyrir fund á jon@misa.is. Undir- búningshópurinn mun vinna að undirbúningi verkefnisins með það að markmiði að stafræn smiðja verði komin í notkun á Ísafirði ekki síðar en haustið 2012. „Fab Lab smiðja er vel til þess fallin að efla nýsköpun og þróun á litlum atvinnusvæðum og getur eflt verulega möguleika íbúa til að skapa sér lífsviðurværi með eig- in hugmyndum. Fab Lab smiðja á Ísafirði gæti nýst til kennslu í hönnun og teikningu við Mennta- skólann á Ísafirði sem og við grunnskóla Ísafjarðarbæjar, Bol- ungarvíkur og Súðavíkur. Fab Lab smiðjan gæti verið aðgengi- leg fyrir almenning og mun nýt- ing hennar og aðgengi verða sér- staklega kynnt þegar uppsetningu er lokið,“ segir í kynningu. Á kynningarfundinum mun Frosti Gíslason starfsmaður Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum og Þorsteinn Broddason starfsmaður Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands á Sauð- árkróki verða á fundinum og eru tilbúnir til að setjast niður með þeim sem vilja til að fara yfir verkefnið. Til dæmis þeim sem kæmu að fjármögnun og ekki síður þeim sem við teljum að myndu nýta smiðjurnar t.d. skólastjórum og e-m kennurum í framhalds- og grunnskólum á svæðinu, Fræðslumiðstöð, Vesturafl, Starfsendurhæfing ofl. Áætlað er að fundinum ljúki um kl. 13:30 með sérstakri kynn- ingu fyrir undirbúningshópinn. – thelma@bb.is Stafræn smiðja í undirbúningi á Ísafirði Finna áhrif meðmæla Lonely Planet Margir sækjast eftir því að vinna sjálfboðaliðaverkefni hjá Mel- rakkasetrinu í Súðavík í ár. Á vef setursins er því þakkað nýjustu Lonely Planet ferðabókinni þar sem farið er fögrum orðum um setrið og svæðið allt. „Von er á fjölda ferðamanna sem koma gagngert vegna þess að mælt er með Vestfjörðum í bókinni, við höfum strax orðið vör við það,“ segir á melrakki.is. Fyrstu fjórir sjálfboðaliðarnir hafa verið bók- aðir í verkefni sem kallast „Hvar er Frosti“ en þeir eiga að finna refinn Frosta, sem komst á legg í setrinu síðasta sumar. Honum var svo veitt frelsi í nóvember. Verk- efnið felst í því staðsetja refinn og sjá hvort hann sé til í að taka þátt í vetrarljósmyndaverkefnun- um setursins þetta árið. Þá er nóg að gera á Melrakka- setrinu þrátt fyrir vetrarfrí enda er þetta sá tími sem nota þarf til að undirbúa sumarið og þau verk- efni sem stendur til að fara í þetta árið. Nýlokið er krufningum á þeim dýrum sem veiðimenn af Vestfjörðum hafa sent setrinu. Krufin voru 45 dýr og verður viðkomandi aðilum sent bréf með niðurstöðum krufninganna um leið og aldursgreining liggur fyr- ir. „Við þökkum þeim sem tóku þátt og sérstaklega þeim sem gengu vel frá dýrunum og skiluðu skilmerkilegri skýrslu en því fleiri upplýsingar sem fylgja með, því nákvæmari eru niður- stöðurnar. Guðmundur og Ragn- ar Jakobssynir lánuðu aðstöðu sína í Bolungarvík fyrir verkið og voru starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða til aðstoðar,“ segir á Melrakkavefnum. Þá hafa nokkrir gestir borið að garði það sem af er ári og hafa þeir þurft að sýna nokkurt um- burðarlyndi gagnvart ástandinu þar sem verið er að vinna í end- urbótum á húsnæðinu þessa dag- ana. „Um síðustu helgi kom heil rúta af félögum í Oddfellow regl- unni í heimsókn en þau voru í „óvissuferð“ um svæðið. Það var gaman að hitta þetta fólk en margir hverjir höfðu aldrei komið í setrið og voru menn almennt ánægðir með hversu húsið og sýningin er vel heppnað. Líklega hafa aldrei verið eins margir sam- ankomnir í litla kaffihúsinu okk- ar,“ segir á melrakki.is. – thelma@bb.is Fjörutíu og fimm ára gam- alt líka af eyrinni í Skutuls- firði hefur verið sett upp til sýnis í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Líkanið, sem sýnir eyrina árið 1866, var gert í tilefni af 100 ára afmæli Ísa- fjarðarkaupstaðar árið 1966. Líkanið er í eigu Ísafjarðarbæjar, en hefur ver- ið í geymslu á lofti Byggða- safnsins við Austurveg um árabil að sögn Jóns Sigurpáls- sonar, forstöðumanns Byggða- safns Vestfjarða. Það var Jón Hermannsson, loftskeytamað- ur og málari á Ísafirði sem á heiðurinn af líkaninu. Gera má ráð fyrir að stór hluti íbúa Ísafjarðarbæjar hafi aldrei séð líkanið og því eru þeir hvattir til að leggja leið sína í Stjórnsýsluhúsið. „Þetta er mjög skemmtilegt og vel gert verk og gaman skoða það,“ segir Jón Sigurpálsson. Líkan af eyrinni í Skutulsfirði til sýnis Líkanin er af Ísafirði eins og álitið er að bærinn hafi verið 1866. Nefnd um byggðarmerki Ísafjarðarbæjar hefur lagt fram þrjár tillögur sem ákveðið hefur verið að leita álits íbúasamtaka sveitar- félagsins til. Á fundi nefndarinnar kom fram að núverandi byggðar- merki uppfyllir ekki lög um byggðarmerki, það er fjögur merki samsett. Merki Ísafjarðarkaupstaðar er nothæft en laga þarf lög- un þess. Merki Vestur Ísafjarðarsýslu er nothæft óbreytt, en merki Suðureyrar og Flateyrar uppfylla ekki skilyrði umræddrar reglugerðar en þarfnast mikilla breytinga, samkvæmt. mati Gísla B. Björnssonar, ráðgjafa á Einkaleyfisstofu. Tillögur nefndarinnar eru því að efna til samkeppni um nýtt merki en kostnaður þess er áætlaður 1,5 milljónir króna, að nota merki Vestur Ísafjarðarsýslu óbreytt eða nota merki Ísafjarðarkaupstaðar, með lítillegum breytingum. Það þarf að laga lögun merkisins og er áætlaður kostnaður við það er um 250 þúsund krónur. Tillögur lagðar fyrir íbúasamtök Líkamsræktar- stöð í Reykjanesi „Þetta er eitt skref í þá átt að byggja hér upp heilsutengda ferða- þjónustu,“ segir Jón Heiðar Guðjónsson, hótelstjóri í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, en ferðaþjónustan festi nýverið kaup á líkams- ræktartækjum sem sett verða upp í íþróttahúsinu á staðnum. „Við erum að setja tækin upp í íþróttasalnum og í vor verður þar komin fullbúin líkamsræktarstöð.“ Jón Heiðar segir að ekki standi til að hafa fastan þjálfara við stöðina. „Til að byrja með munum við fá til okkar hópa þar sem þjálfari verður með í för. Við munum svo þreifa okkur áfram með þetta og hver veit hvað ger- ist,“ segir Jón Heiðar. Hann segir þorrablótin hafa verið vel sótt á staðnum. Í mars verði síðan tvær stórar ráðstefnur í Reykjanesi og bókanir gangi vel fram á vorið.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.