Bæjarins besta - 24.02.2011, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011
Þjóðbúningafélags Vestfjarða hefur óskað eftir afnoti af
skólahúsnæði Grunnskólans á Þingeyri dagana 3.-9. júlí, en á
þeim tíma verða starfræktar þar handverksbúðir í samstarfi
við Heimilisiðnaðarfélagið og samtök norrænna heimilisiðn-
aðarfélaga, Nordens Husflidsforbund. Gert er ráð fyrir um
130 – 150 þátttakendum frá Norðurlöndunum. Fræðslunefnd
hefur lagt til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að styrkur bæj-
arfélagsins til verkefnisins felist í láni á grunnskólanum á
Þingeyri til kennslu, þó þannig að skólinn beri ekki kostnað
af verkefninu.
Handverksfólk til Þingeyrar
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur fyrir hönd Ísafjarðar-
bæjar og Ofanflóðasjóðs, óskað eftir tilboðum í snjóflóðvarnir
og þvergarð undir Kubba í Skutulsfirði. Verkið felst í að reisa
snjóflóðavarnargarð á úthlaupssvæði snjóflóða úr Kubba.
Um er að ræða þvergarð sem er u.þ.b 220 metra langur í topp-
inn. Í verkinu felst einnig mótun yfirborðs skeringa flóðmegin
við garða. Einnig gerð vinnuvega, varanlegra vegslóða, gang-
stíga og áningarstaða og gerð drenskurða, lækjarfarvega og
vatnsrása, lagning ræsa og jöfnun yfirborðs og frágangur.
Verkinu skal vera að fullu lokið í september 2012.
Snjóflóðavarnir boðnar út
Þrír vestfirskir rithöfundar fengu úthlutað ritlaunum frá
Rithöfundasambandi Íslands. Ísfirðingurinn Eiríkur Örn
Norðdahl og Bolvíkingurinn Eiríkur Ómar Guðmundsson
fengu úthlutað ritlaunum til níu mánaða og Dýrfirðingurinn
Vilborg Davíðsdóttir til sex mánaða. Alls fengu 67 höfundar
ritlaun. Launasjóður rithöfunda starfar samkvæmt lögum
um listamannalaun og miðast launin við lektorslaun við Há-
skóla Íslands.
Þrír fengu ritlaun
Sorpi sem til fellur í Ísafjarðarbæ er ekið til urðunar í
Fíflholti á Mýrum, um 390 kílómetra leið. Það þýðir að alls
eru eknir að minnsta kosti 30 þúsund kílómetrar á ári. Ekki
hefur fundist hentugur sorpurðunarstaður í Ísafjarðarbæ
auk þess sem áhöld eru um hvort hagkvæmt sé fyrir sveit-
arfélagið að koma sér upp nýjum urðunarstað en það er talið
kosta tugi milljóna. Nú falla um 25 tonn af sorpi til á viku og
þarf því að fara með sorpið vikulega. Verið er að innleiða nýtt
sorpflokkunarkerfi sem ætlað er að draga úr sorpurðun.
Langt sorpferðalag
Einn besti knattspyrnumaður Íslendinga, Gylfi Þór Sig-
urðsson, hefur fjárfest með föður sínum Sigurði Aðalsteins-
syni í báti og kvóta fyrir um fimm hundruð milljónir króna.
Frá þessu er greint í Séð og heyrt en eins og fram hefur komið
er Sigurður Aðalsteinsson einn af forsprökkum Lotnu ehf.
sem keypt hefur þrotabú Eyrarodda á Flateyri. Gylfi Þór hef-
ur farið hamförum með U-21 árs landsliði Íslendinga í knatt-
spyrnu sem tryggði sér þátttökurétt í úrslitakeppni Evrópu-
móts U-21 árs landsliða karla sem haldið verður í Danmörku
á næsta ári. Gylfi var í haust keyptur til þýska úrvalsdeildar-
liðsins Hoffenheim og er annar markahæsti leikmaður liðsins
með fimm mörk.
Kemur Gylfi Þór að
útgerð á Flateyri?
„Mér var mjög brugðið við að
sjá fréttina um þetta og ég er enn
að jafna mig. Ég mun kanna rétt-
arstöðu mína,“ segir Ásthildur
Cesil Þórðardóttir, íbúi að Selja-
landsvegi 100 á Ísafirði, en bæj-
arráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt
til að farið verði í viðræðum um
uppkaup á fasteign hennar sem
og fasteigninni að Seljalandsvegi
102, vegna varnargarða sem gera
á fyrir ofan Ísafjörð. „Mér finnst
þetta ekki góð vinnubrögð og
furða mig á því að ekki hafi verið
haft samband við okkur íbúana
áður en ákveðið var að ráðast í
þetta. Það var mjög óþægilegt að
frétta þetta í gegnum fjölmiðla,“
segir Ásthildur í samtali við blað-
ið. Hún hefur einnig skrifað um
málið á bloggsíðu sinni og segir
þar m.a.:
„Í fyrsta lagi hefðu menn nú
átt að sjá sóma sinn í að aðvara
okkur um að þetta stæði til, því
svo sannarlega hef ég ekki haft
grænan grun um að verið væri að
véla um að svipta mig heimili
mínu og jafnvel fyrirtæki, fyrir
utan það að við hjónin höfum
verið að duna okkur í gegnum
áratugi að gróðursetja tré fyrir
ofan húsið og eru með samning
upp á það. Svo kemur þetta högg.
Ég sem var svo ánægð með hvað
ég væri að ná góðum árangri í að
ná mér eftir áföllin og hélt að nú
lægi gatan grein fram. Þá er ég
slegin niður með fjöður. Það á
að hrifsa af mér lífið, og það á
harkalegan hátt. Hvað eru menn
eiginlega að hugsa?“
Aðspurð segist Ásthildur ekki
samþykkja uppkaup þegjandi og
hljóðalaust. „Ég þarf að byrja
upp á nýtt með allt mitt, þá er ég
að hugsa um minn andlega status
og hvernig ég tækla tilveruna.“
Samþykkir ekki uppkaup
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur
lagt til að hafnar verði viðræður,
í samráði við Ofanflóðasjóð, um
uppkaup á fasteignum við Selja-
landsveg 100-102 á Ísafirði vegna
framkvæmda við ofanflóðavarnir
neðan Gleiðarhjalla í Skutuls-
firði. Frumathugun á ofanflóða-
vörnum, sem unnin var árið 2009
ef verkfræðistofunni Verkís,
gerði ráð fyrir að verkinu yrði
skipt í fimm hluta. Þær fram-
kvæmdir sem nú standa yfir eru
á garði nr. 5, sem er fyrir ofan
Hjallaveg. Að því er fram kemur
í minnisblaði bæjartæknifræð-
ings er garður 1 um 14 metra hár
og 260 metra langur og ver í
sjálfu sér ekki mörg hús. Ofan-
flóðasjóður vill því að skoðað
verði hvort hægt sé að fara aðrar
leiðir þar, t.d. með uppkaupum á
húsunum við Seljalandsveg 100
og 102.
Til að hægt sé að halda áfram
með málið verður Ísafjarðarbær
að gera upp við sig hvort fara eigi
í uppkaup eigna eða byggingu
varnargarðs. Í minnisblaðinu
kemur fram að kostnaður við
uppkaup sé um 60-80 milljónir
sem er ódýrari leið en bygging
varnargarðs. Þegar ákvörðunin
liggi fyrir verður hægt að hefja
vinnu við umhverfismat, deili-
skipulag og endanlega hönnun
mannvirkisins.
Framkvæmdir við ofanflóða-
varnirnar hófust s.l. sumar en
KNH ehf., hefur verkið með
höndum. Markmið framkvæmd-
anna er að auka öryggi íbúa og
vegfarenda á núverandi ofan-
flóðahættusvæðum undir Gleið-
arhjalla. Um er að ræða íbúða-
byggðir við Hjallaveg og Hlíðar-
veg. Framkvæmdasvæðið nær
frá Urðarvegi og út fyrir Hjalla-
veg, að Ísafjarðarvegi. Gert er ráð
fyrir að varnarvirkin verji um 60
íbúðir samkvæmt deiliskipulagi.
Mælt með uppkaup-
um tveggja fasteigna
Seljalandsvegur 102 og 100 á Ísafirði.