Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.02.2011, Page 10

Bæjarins besta - 24.02.2011, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011 Mannlegi þátturinn mikilvægur Finnbogi Oddur Karlsson hef- ur farið býsna ótroðnar slóðir og fengið að reyna ýmislegt í lífinu. Þó að hann teljist enn til Grundar- púkanna í Bolungarvík hefur hann lengst af alið manninn sunn- an heiða og fyrir vestan – það er að segja í Bandaríkjunum. Hann hefur farið víða frá því að hann ákvað að hætta í skóla á tíunda ári; búið í Texas og Arkansas, ferðast um heim allan til að halda fyrirlestra og loks snúið aftur á æskuslóðir. Finnbogi, sem ef- laust er mörgum kunnugur sé starfsheitinu læknir skeytt aftan við nafnið, segir hér frá heims- hornaflakkinu, goðumlíkum læknanemum og krókaleiðunum sem lífið hefur leitt hann um. Ágætur kuklari Frá því að Finnbogi kom til starfa á Heilbrigðisstofnuninni síðastliðið vor hefur hróður hans farið vaxandi og aðsókn í tíma hjá honum er mikil, svo ekki sé meira sagt. Hann sá sér þó fært að taka frá stuttan tíma fyrir blaðamann á febrúarsíðdegi. „Þú verður að afsaka mig ef ég lýg mikið að þér, ég er á þrjátíu og sex tíma vakt og ósofinn,“ byrj- ar hann og blikkar. Það verður blaðamanni ljóst innan skamms að húmorinn er aldrei langt undan hvað Finnboga varðar. Þeir sem leitað hafa sér aðstoðar hans bera honum enda margir þannig sög- una að hann sé persónutöfrum gæddur. „Ég hef nú ekki hugmynd um af hverju það er svona mikil ásókn í tíma hjá mér. Jú, jú, ég er ágætur kuklari. Þetta er meira kuklarastarf en læknisstarf. Læknisfræði er svolítil listgrein og svo eru fræðin auðvitað þarna á bak við, en þau eru lítill hluti af þessu,“ segir hann. „Mikill hluti af því sem maður gerir er mann- leg samskipti,“ bætir hann við. Hann getur hins vegar ekki neitað því að Vestfirðingar sækja mikið í þjónustu hans. „Það virðist vera einhver tálsýn um að ég geti leyst fleira eða kunni meira en kollegar mínir. Það er nú kannski öllu flóknara en það - en það er rétt að það er mikil ásókn í tíma hjá mér. Við þurftum að breyta þessu þannig að það væri ekki opið fram í tímann– nú er bara bókaður einn dagur í einu. Ég var orðinn bókaður þrjár, fjór- ar vikur fram í tímann, sem gekk svo sem alveg, nema að ég gat aldrei fengið fólk brátt nema ég væri á vaktinni. Svo veiktist ég og þurfti að vera frá í tvær vikur og þá voru allt í einu tvö hundruð manns sem þurftu nýja tíma. Systemið fór alveg úr skorðum þarna, svo við breyttum því.“ Var „svartur engill“ Finnbogi ber kollegum sínum á Heilbrigðisstofnuninni vel sög- una. „Mér finnst gott að vera hérna. Maður hefur gott lið á bak við sig. Yfirlæknirinn á skurð- deildinni er afburðamaður og bú- inn að vera hérna á vakt í rúm tuttugu ár. Mjög fær og glöggur. Örn, sem er yfirlæknir á heilsu- gæslunni, hefur verið hér í fjögur ár en yfirlæknir á heilsugæslu í fimmtán, tuttugu ár. Hann er mjög fjöl...,“ hann hikar og brosir við, „...ekki þreifinn, það er víst eitthvað annað. Fjölhæfur, meina ég. Hann sér vel í gegnum flókin mál og er skarpgreindur. Helgi er líka eldklár, það deyr enginn sem bjarga má ef hann er nálæg- ur. Strákarnir hérna ungu eru líka mjög efnilegir,“ segir hann. Ef einhver munur er á nálgun hans og starfsbræðra hans segist Finnbogi helst telja það vera vest- firskan anda; „Það þýðir ekkert að vera með neinn barlóm á Vest- fjörðum. Þá ertu bara sendur suð- ur eða á hreppinn,“ segir hann og hlær við. Sjálfur leggur Finnbogi mikla áherslu á mannleg samskipti. „Það eina sem gerir mig vinsælan hér er held ég að ég nenni að kjafta við fólk. Ég kem eins fram við alla – sama hvort það ert þú, bæjarstjórinn eða róninn, þá tala ég alveg eins. Það er mottóið. Ég var líka úti í Bandaríkjunum í tuttugu ár og þar lærir maður rosalega kurteisi,“ segir Finn- bogi, sem segir lækna smám sam- an læra á samskiptaþátt starfsins. „Þegar við komum út úr lækn- isfræðideildunum er búið að segja okkur að við séum eigin- lega aðeins nær guði en englarnir. Það rignir í nefið á okkur og við trúum því að við séum bara alveg við það að svífa. Svo lærum við hægt og rólega, sumir reyndar aldrei, að þetta er ekki alveg rétt,“ segir hann glettinn. „Þegar ég var ungstúdent á Landakoti var gamall sérfræð- ingur þar sem kenndi okkur ansi vel. Hann sagði að þegar við kæmum út um dyrnar værum við orðnir venjulegir borgarar og hættir að vera læknar. Hann var mjög virtur læknir sjálfur. Þetta hlustaði ég svona aðeins á, en var samt svona svartur engill í einhvern tíma,“ segir Finnbogi. Ennþá Grundarpúki Þegar Finnbogi snéri aftur til Vestfjarða í vor hafði hann verið fjarverandi um nokkurn tíma. Hann á þó ansi sterkar rætur hing- að. „Ég er fæddur í Reykjavík, en kom þriggja mánaða gamall til Bolungarvíkur og var skírður þar. Ég kom svo á hverju sumri til Bolungarvíkur þangað til að ég var sextán, sautján ára. Ég var alltaf í Reykjavík um vetur, nema þegar ég var níu ára reyndar, því þá hætti ég í skóla. Ég var dálítið sjálfstæður,“ segir hann frá. Skólakerfið á sjöunda áratugn- um var ekki með alveg sama sniði og í dag og aðhaldið ekki hið sama. „ Ég hætti bara að mæta í skólann. Ég fór út með töskuna á morgnana og svo var ég bara á bókasafninu eða að drolla niðri í bæ. Hvorki skólinn né mamma föttuðu þetta fyrr en eftir fjóra mánuði, það er náttúru- lega svo langt síðan, það liggur við að þetta sé áður en að jóla- sveinarnir fæddust, og í þá daga var ekkert hringt heim. Þeir héldu væntanlega að ég væri veikur eða hefði verið sendur í sveit, svona eins og vandræðastrákar. En svo komst þetta upp og þá kláraði ég veturinn í Bolungar- vík,“ segir hann og glottir. Það er þá ekki laust við að hann hafi verið prakkari? „Ég hefði nú sennilega verið settur á einhver lyf, rítalín eða eitthvað, í dag. Ég var ofboðslega sjálfstæð- ur og fannst ég alltaf hafa rétt fyrir mér – og finnst enn. Það þarf að minna mig á að ég hafi að minnsta kosti einu sinni haft rangt fyrir mér,“ segir Finnbogi. Hann kveðst líta á sig sem bæði Reykvíking og Bolvíking. „Í Bol- ungarvík er ég ennþá talinn vera Grundarpúki - það vorum við strákarnir sem vorum inni á Grundum. Ég fékk viðurnefnið Bogi litli á Grundunum því langafi minn hét Bogi á Grund- unum. Það þekkja mig allir þar og taka mér eins og ég sé Víkari ennþá. Þó að Ísfirðingar láti stundum eins og þeir láta í Vík- urunum þá þykir þeim samt vænt um þetta óþekka lið. Maður á hálfgert heima hérna líka,“ segir hann. Krosslagði fingur á fyrsta degi Þó að skólaferillinn hafi orðið fyrir smá áfalli þarna á tíunda ári setti skrópið ekki stærra strik í reikninginn en svo að Finnbogi útskrifaðist úr læknisfræðideild Háskóla Íslands árið 1987. Hann varði kandídatsári sínu á Akur- eyri og hélt því næst út í héruð í eitt ár. Hann segir það töluvert stökk út í djúpu laugina þegar námsárin eru að baki og alvaran tekur við. „Það er engin aðlögun í læknis- fræði. Um leið og maður kemur í læknisstarf, hvort sem það er sem læknanemi eftir fjórða árið eða sem kandídat, þá er manni afhentur sími, eða píptæki í gamla daga, lyklar, og manni er sagt – jæja, ég er farinn til Spánar. Þá situr maður bara uppi með þetta. Maður er náttúrulega búinn að læra heilmikið og aðeins búinn að þreifa fyrir sér, en er samt auðvitað alveg blankur. Maður krossleggur bara fingur og biður til Þórs eða Guðs eða hvers sem það er. Svo lærir maður bara. Maður er í þjálfun rosalega lengi,“ útskýrir Finnbogi. Meðal þess sem lærist með árunum er hin mannlega hlið starfsins og eins að takast á við þau áföll sem einnig geta fylgt starfi sem læknir. „ Maður gerir náttúrulega mistök, einföld mis- tök, eins og ég gerði bæði á með- an ég var í læknanáminu og var að fara út í héruð og eftir að ég útskrifaðist og þóttist kunna heil- mikið – þar sem maður var að skaða fólk. Ég held ég hafi nú ekki drepið marga, að minnsta kosti ekki fleiri en má telja á annarri hendi,“ segir Finnbogi og brosir skakkt. „Maður lærir af því. Stundum. Ekki alltaf og ekki allir læra af því. Þeir loka bara á það, það er auðveldara. Ég var heppinn og lærði af því. Og það er ekkert sem maður lærir að takast á við áður en maður fer af stað, heldur bara á ferðinni,“ segir Finnbogi. „Maður sér mikið af þungum og erfiðum hlutum í þessu, en gerir jafnframt skemmtilega hluti. Það er gaman þegar maður er að bjarga mannslífum og lækna fólk, en svo er erfitt þegar maður er að láta fólk deyja eða getur ekkert gert fyrir það. Þess vegna er maður kannski kaldhæðinn, svolítið,“ bætir hann við. Á framabraut í Texas Eftir héraðslæknastörf hélt Finnbogi til Texas í lyflæknis- sérnám. „Ég tók ameríska prófið og stóðst það með glans og komst inn í eitt besta prógrammið, í Houston. Bandaríkjamenn eru náttúrulega 300 og eitthvað millj- ónir manns, fimmtíu ríki og pró- grömmin þar eru jafn misjöfn og sveitarstjórnin í Súðavík og borg- arstjórnin í Reykjavík, að stærð og gæðum og öllu,“ útskýrir Finn- bogi. Þegar hann hélt utan var Houst- on um þriggja milljón manna borg og við læknamiðstöðina þar sem hann nam og starfaði unnu um 60.000 manns. „Þetta var ið- andi læknamiðstöð og mikið gaman. Það var svakaleg impres- sjón fyrir mig að sjá þetta, maður var bara agndofa. Þetta þótti rosa- lega flott á sínum tíma,“ segir Finnbogi, sem dvaldist í borginni í tólf ár. Eftir að sérnámi hans lauk var honum boðin prófessors- staða við stofnunina. „Venjulega mega erlendir læknar ekki stoppa svona lengi, þeir verða að fara frá Bandaríkj- unum í tvö ár eftir að námi lýkur. Maður getur fengið undanþágu ef maður fer eitthvert á bak við fjöllin og vinnur hjá indjánunum eða afdalafólkinu, en ég fékk sem sagt að vera áfram í Houston og fékk prófessorstöðu í tveimur deildum. Það gekk bara mjög

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.