Bæjarins besta - 24.02.2011, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011
Þorrablót Átthagafélags Sléttu-
hrepps var haldið í félagsheimil-
inu í Hnífsdal á laugardag og
mættu um 180 manns á blótið
hlaðnir súrmeti, rófustöppu og
öðru því sem til siðs er að hafa
með á þorrablót. Í boði skemmti-
nefndar, sem að venju var skipuð
fulltrúum úr sveitunum í Sléttu-
hreppi hinum forna, voru skemmti-
atriði í formi sjónvarpsþáttarins
Landans.
„Þetta gekk ljómandi vel og
það var mikið fjör og mikið gam-
an,“ segir Magni Guðmundsson
sem sæti átti í skemmtinefnd.
Veislustjóri var Aðalvíkingurinn
og leikarinn Baldur Trausti
Hreinsson sem óvænt lék eitt
hlutverkið í Landanum. Að venju
var sungið undir borðum undir
stjórn nokkurra af söngelskari
meðlimum átthagafélagsins. Að-
spurður hvort eitthvað hafi staðið
úr segir Magni að allt hafi gengið
vel. „Það var eiginlega bara allt
sem stóð upp úr, allir voru af-
skaplega glaðir og ánægðir og
skemmtu sér vel.“
Að áti loknu var borðum rutt
til hliðar og dansað við undirleik
hljómsveitarinnar Kraftlyftingar.
„Ballið var til klukkan 2 og við
höldum að það hafi valdið því að
mun færri fóru heim áður en það
var búið. Áberandi margir voru
á blótinu allan tímann,“ segir
Magni.
– thelma@bb.is
Gleði þorrablóti
Sléttuhreppinga