Bæjarins besta - 23.06.2011, Page 13
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 13
Bráðadeild
fær gjafir
Rebekkustúkan Þórey hjá
Oddfellowstúkunni á Ísa-
firði afhenti Fjórðungs-
sjúkrahúsinu höfðinglegar
gjafir fyrir skemmstu. Um
er að ræða búnað, húsgögn
og innréttingar í aðstand-
endaherbergi stofnunarinn-
ar. Meðal gjafanna var glæsi-
legur hornsófi, sjónvarp, ís-
skápur og fleira sem prýðir
herbergið og eykur notagildi
þess.
„Þessi gjöf kemur sér afar
vel enda er mikilvægt fyrir
aðstandendur að eiga sér hlý-
legt afdrep innan veggja stofn-
unarinnar. Einnig afhentu
þær blöðruskanna á bráða-
deildina sem kemur að góð-
um notum,“ segir á vef Heil-
brigðisstofnunar Vestfjarða.
„Merkilegt skref stigið í sögu
háskólastarfsins á Íslandi“
„Í dag er stigið merkilegt skref
í sögu háskólastarfs á Íslandi,
þegar í fyrsta skipti er stofnað
prófessorsembætti sem hefur
megin starfsskyldur við rann-
sóknasetur á landsbyggðinni, þ.
e. Rannsóknasetur Háskóla Ísl-
ands á Vestfjörðum og aðra há-
skólastarfsemi á því svæði,“
sagði Kristján Möller alþingis-
maður í ræðu sinni á þingi í síð-
ustu viku vegna stofnunar pró-
fessorsstöðu til heiðurs Jóni Sig-
urðssyni. „Þessi uppbygging ber
vitni mikilli framsýni af hálfu
Háskóla Íslands og skilningi á
því að rannsóknir og fræðastarf
er nauðsynlegur þáttur í atvinnu-
og menningarlífi alls staðar á
landinu og má ekki vera bundið
við örfáa staði.
Kristján sagði þá ákvörðun Al-
þingis að prófessor í stöðu tengdri
nafni Jóns Sigurðssonar skuli
hafa megin starfsskyldur á Vest-
fjörðum muni verða mikil lyfti-
stöng öðru rannsókna- og fræða-
starfi þar. „Má þar nefna starf-
semi Minningarsafns Jóns Sig-
urðssonar á Hrafnseyri og sum-
arháskólans sem haldinn er þar
árlega. Auk þess verður staðan
styrkur almennt fyrir sagnfræði
og stjórnmála fræðirannsóknir á
Vestfjörðum, en þar eru nú þegar
ýmis hug- og félagsvísindaverk-
efni s.s. rannsóknaverkefnið
Vestfirðir á miðöldum, Þjóð-
fræðistofa á Hólmavík og við
Rannsóknasetur Háskóla Íslands
á Patreksfirði er starfandi forn-
leifafræðingur.“
Þá benti hann á að ákvörðunin
er í samræmi við fyrirheit ríkis-
stjórnarinnar í heimsókn til Vest-
fjarða fyrr í vetur um að efla
rannsóknir á svæðinu.
Hann vitnaði í orð Jóns Sig-
urðssonar í grein hans „Um al-
þíng“ árið 1842 þar segir: „Vís-
indi og kunnátta eru lykill að
allri framför manna og hagsæld-
um“ sagði Jón Sigurðsson í grein
sinni. Taldi Kristján víst að slíkt
hafi að Jóns mati ekki einvörð-
ungu verið nauðsynlegt á þéttbýl-
um svæðum. „Jón var þannig
mikill hvatamaður að bættri
menntun í sjávarútvegs- og land-
búnaðarfræðum um land allt og
samdi fræðslurit um hvort tveggja,
sem dreift var alls staðar á land-
inu. Og nefna má að hann mun
ekki hafa átt lítinn þátt í upphafi
sjómannafræðslu á Vestfjörðum
upp úr 1850.“
Kristján sagði það skref sem
hér væri stigið væri mikilvægt
fordæmi öðrum aðilum, sjóðum,
samtökum, stofnunum eða fyrir-
tækjum. Þau geta farið að þessu
fordæmi Alþingis og styrkt at-
vinnu- og mannlíf alls staðar á
landinu með því að styrkja eða
staðsetja viðamikil störf á sviði
rannsókna og fræða þar sem að-
stæður eru hentugastar og þar
sem störfin styðja við og styrkja
aðra starfsemi á svæðinu.
Að lokum sagði Kristján:
„Megi prófessorsstaða tengd
nafni Jóns Sigurðssonar verða
Vestfirðingum og landsmönnum
öllum til heilla.“ – thelma@bb.is
Pokasjóður hefur styrkt upp-
byggingu Raggagarðs í Súðavík
um eina milljón króna. „Við erum
mjög þakklát og ánægð með að
hljóta þennan styrk. Það er virki-
lega hvetjandi þegar svona sjóðir
og félagasamtök hafa trú á því
sem við erum að gera,“ segir Vil-
borg Arnarsdóttir umsjónarmað-
ur garðsins. „Styrkurinn þýðir
við getum haldið áfram að byggja
upp fjölskyldugarð á Vestfjörð-
um fyrir alla landsmenn.“ Ragga-
garður hefur verið í uppbyggingu
frá árinu 2004, fyrst og fremst
hafa sjálfboðaliðar innt vinnuna
af hendi en framkvæmdin hefur
verið styrkt af fjölmörgum fé-
lagasamtökum, fyrirtækjum og
einstaklingum í gegnum tíðina.
„Við fáum aðstoð úr öllum áttum.
Til dæmis voru við að opna nýja
heimasíðu, en sá sem hannaði
hana í sjálfboðavinnu og setti
upp býr í Ástralíu,“ segir Vilborg.
„Við erum búin að framkvæma
fyrir hátt í 20 milljónir króna á
þessum sjö árum enda er þarna
risinn stór og skemmtilegur úti-
vistargarður með fjölda leik-
tækja,“ segir Vilborg sem bætir
því við að nú verði breyttar
áherslur í uppbyggingunni.
„Hingað til hefur áherslan ver-
ið á börnin og unglingana en nú
ætlum við að sinna fullorðna
fólkinu. Stefnan er að byggja upp
nýtt útivistarsvæði fyrir ofan
minningarreitinn en þar verður
reist útisvið fyrir framan grafna
mön þar sem fólk getur setið. Þá
verður byggður 18 holu mini-
golfvöllur og grafið fyrir lítilli
tjörn og ýmislegt fleira. Við vilj-
um skapa okkur sérstöðu fyrir
garðinn og sækjum innblástur í
náttúru og sögu Vestfjarða. Þarna
verður t.d. rekaviðarskógur með
listamannalundi sem ég held að
sé alfarið vestfirskt fyrirbæri,“
segir Vilborg.
Sigurður Friðgeirsson lands-
lagsarkitekt er að leggja loka-
hönd á teikningar fyrir svæðið
og vonandi getum við hafist
handa við að gróðursetja og ann-
að þess háttar núna síðsumars,“
segir Vilborg sem vonar að sem
flestir Vestfirðingar leggi leið
sína til Súðavíkur og taki þátt í
uppbyggingunni. „Garðurinn er
í Súðavík en hann er fyrir alla
Vestfirðinga. Það væri t.d. gaman
að sjá foreldra leik- og grunn-
skólabarna leggja leið sína hing-
að með börnin. Hér ríkir alltaf
frábær stemmning í vinnunni,
allir fá kaffi og kleinur og að
degi loknum hafa börnin eignast
raunverulega hlutdeild í garð-
inum.“
– kte@bb.is
Uppbygging Raggagarðs heldur áfram
Reisa virkjun í Önundarfirði
Virkjunarframkvæmdir eru hafnar í Nauta-
skál í Breiðadal í Önundarfirði. „Við erum
byrjaðir á jarðvegsvinnu og stefnan er að
klára verkið fyrir áramót,“ segir Aðalsteinn
Bjarnason, sem bæði fer fyrir framkvæmd-
unum og er eigandi virkjunarinnar. Hann er
vel kunnugur staðháttum í nágrenninu enda
ólst hann upp á Veðrará í Önundarfirði. „Und-
irbúningurinn hefur staðið yfir í þó nokkuð
langan tíma. Við byrjuðum á vatnsmælingum
árið 2000 og höfum stundað mælingar reglu-
lega síðan þá. Við verðum að jafnaði þrír til
fjórir við framkvæmdina og munum tengjum
virkjunina við raforkukerfið um áramótin,“
segir Aðalsteinn og bætir því að rafmagnið
verði selt til Orkubús Vestfjarða.
Aðalsteinn segir að virkjunin muni fram-
leiða 450 KW. „Þetta er ekki mikið vatns-
magn sem við erum að virkja en á móti
kemur að fallhæðin er töluverð eða 250
metrar. Vélarnar eru framleiddar hér á landi
af Eiði Jónssyni í Þingeyjarsýslu. Þar hafa
túrbínur verið framleiddar í meira en 50 ár
með mjög góðum árangri,“ segir Aðalsteinn.
Séð inn Breiðadalinn. Nautaskálin þar sem verið er að virkja sést þó ekki á myndinni
en hún er á vinstri hönd þegar keyrt er niður dalinn. Ljósm: © Mats Wibe Lund.