Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.08.2012, Side 2

Bæjarins besta - 23.08.2012, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2012 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klifs, snjóflóðavarna í Vesturbyggð Bæjarstjórn Vesturbyggðar lengir hér með áður auglýstan frest vegna breytingar á deil- sikipulagi Klifs, snjóflóðavörnum Vestur- byggð. Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulags- laga nr. 123/2010. Deiliskipualgsbreytingin felur í sér að sýndur er slóði að framkvæmdasvæði varnargarðs á Patreksfirði ofan Sigtúns. Breytingingartillagan verður til sýnis á bæjar- skrifstofunni Aðalstræti 63 og á heimasíðu sveitarfélagsins. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er hér með lengdur til 5. októ- ber 2012. Bæjarstjóri Vesturbyggðar Atvinna Orkubú Vestfjarða óskar eftir ráða starfsmann í vinnuflokk rafveitu á Ísafirði. Ekki er gerð krafa um rafmagnsmenntun, en meirapróf og vinnuvélaréttindi eru kostur. Upplýsingar um starfið veitir verkstjóri vinnuflokks Henrý Bæringsson s: 863 0827 hb@ov.is Umsókn um starfið skal skila til fram- kvæmdastjóra rafveitusviðs Halldórs V. Magnússonar hm@ov.is Umsóknarfrestur er til og með 3. september. Nýr verkefnastjóri hjá menn- ingarmiðstöðinni Edinborg „Ég er mjög spennt að takast á við þetta verkefni,“ segir Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, en hún er komin til starfa sem verkefna- stjóri hjá menningarmiðstöðinni Edinborg á Ísafirði. Ólöf mun skipuleggja viðburði í Edin- borgarhúsinu og felst starf hennar í því að styðja við og styrkja menningarstarfsemi hússins. „Ég vil fá listamenn að sunnan til að koma hingað og sýna, sem og að virkja heima- menn. Þemað verður það sama og áður – myndlist, tónlist og bókmenntir og margt fleira.“ Staða Ólafar er ný af nálinni sem fullt starf en áður hafa ýmsir velunnarar hússins sinnt því. Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, nýr verkefnastjóri í Edinborg. „Við stefnum á að fá Græn- fánann afhentan í vor, við höfum unnið markvisst að því undanfarin ár,“ segir Jóna Benediktsdóttir, aðstoðar- skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði. Grænfáninn er um- hverfismerki sem nýtur virð- ingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á „græna grein“ í umhverfis- málum þurfa að stíga sjö skref til þess að fá leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö árin. Ísfirðingar binda vonir við að markmiðið náist í ár en þá mun skólinn leggja mikla áherslu á sorpflokkun. „Þetta verður aukin vinna bæði fyrir nem- endur og foreldra. Aðallega snýst þetta um hvernig við flokkum rusl og endurnýtum pappír. Þetta eru efnisleg verð- mæti,“ segir Jóna. Grunnskólinn á Ísafirði. Grænfáninn. Vonast til að flagga Græn- fánanum í vor

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.