Bæjarins besta - 07.11.2013, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Tíu tilboð bárust í leigu lax-
veiðiréttinda í Laugardalsá næsta
sumar, en tvö hæstu tilboðin voru
frá sama aðila. Var þar annars
vegar um að ræða tilboð í næsta
sumar, upp á 9,5 milljónir króna,
en hins vegar frávikstilboð upp á
11,5 milljónir á ári í fimm ár.
Undanfarin ár hefur fyrirtækið
Lax-á haft veiðiréttindi í Laugar-
dalsá til leigu, en leiguverðið var
um átta milljónir á ári. Þrjú önnur
tilboð sem bárust voru hærri en
núverandi leiga. Þetta kemur
fram á vefnum Vötn og veiði.
Veiðin í Laugardalsá var ekki
af lakara taginu í sumar, en þar
veiddust 404 laxar. Veiðimet í
ánni er þó tæplega 600 laxar, svo
nokkuð var eftir í það.
Sami aðili með
tvö hæstu tilboðin
„Mér sýnist að sami fæðinga-
fjöldi og í fyrra náist ekki í ár,
sem mér skilst að hafi verið sögu-
legt lágmark,“ segir Sigrún Rósa
Vilhjálmsdóttir, starfandi ljós-
móðir á Ísafirði. „Líklega náðst
ekki fjörutíu fæðingar á þessu
ári. Mér skilst að þetta sé staðan
annars staðar og að yfir landið í
heild séu fæðingar færri en verið
hefur. Ég veit ekki hver skýringin
en, en þetta gengur eitthvað í bylgj-
um.“
Alls fæddust 45 börn á Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða á síð-
asta ári en í ár eru þær orðnar 32.
Tvær ljósmæður starfa hjá stofn-
uninni en þær eru báðar í leyfi.
Brösuglega hefur gengið að ráða
ljósmæður í þeirra stað. „Ég er
hér í afleysingum, en það hefur
ekki tekist að manna stöðuna á
móti mér, þannig að ég er ein.
Núna er staðan þannig að það
kemur önnur ljósmóðir nokkra
daga í mánuði, sem þýðir að ég
get lagt vaktsímann frá mér annað
slagið. Ég veit ekki hvort það er
nein lausn í sjónmáli á því.“
Útlit fyrir færri
fæðingar en í fyrra
Stórefld upplýsingamiðlun
frá skíðasvæðunum á Ísafirði
ið ferðamönnum upp á. Það kem-
ur vonandi meira í ljós fljótlega.“
Eins og stendur er verið að
standsetja snjótroðara skíða-
svæðisins, en enn er ekki nægur
snjór til að hægt sé að opna. „Við
erum farnir að huga að því að
framleiða, en við stefnum ekki
að því að opna fyrr en upp úr
miðjum þessum mánuði. Ef við
fáum eitthvað smá snjóhret vinn-
um við auðvitað úr því eins og
við getum.“ – herbert@bb.is
Upplýsingamiðlun skíðasvæð-
isins á Ísafirði verður efld til
muna í vetur að sögn Gauts Ívars
Halldórssonar forstöðumanns
svæðisins. Stærsta skrefið í þess-
ari þróun er opnun nýrrar vefsíðu
svæðisins, dalirnir.is, þar sem
ætlunin er að miðla upplýsingum
um það sem er í gangi á svæðinu
og fréttir af viðburðum og fram-
kvæmdum. „Vefsíðan er stór lið-
ur í upplýsingamiðlun frá okkur
til að auka aðgengi að því sem
við erum að gera. Við ætlum
bæði að markaðsetja og mark-
aðssvæða svæðið meira í vetur.
Við erum að standsetja fyrir vet-
urinn núna, og setja upp annað
sem í ljós kemur þegar af því
verður. Það verður vonandi
einhver breyting á svæðinu í vet-
ur,“ segir Gautur Ívar.
„Við ætlum að setja upp upp-
lýsingaskilti, sem verður gert í
þremur þrepum. Tilgangurinn er
helst að reyna að höfða til þeirra
sem eru hérna á svæðinu, en við
viljum líka höfða til þeirra ferða-
manna sem hingað koma. Við
ætlum að hafa upplýsingar að-
gengilegar á ensku, meðal annars
í símsvaranum, sem gagnast von-
andi líka þeim erlendu íbúum
sem eru hér á svæðinu. Við erum
líka að reyna að setja upp ein-
hverja pakka sem við getum boð-
Skíðasvæðið í Tungudal.