Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.11.2013, Blaðsíða 17

Bæjarins besta - 07.11.2013, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 17 ástæðu fyrir flutningnum: „Ég er búinn að ná mér í svo góða konu sem er frá Suðureyri að ég tími ekki að sleppa henni. Þess vegna er ég nú að flytja til Suðureyrar í vetur.“ Kolbrún Elma Schmidt heitir sú góða kona sem hann var svo heppinn að næla sér í. Sjálfur á Víkingur þrjú börn og Kolbrún eina dóttur, Friðrikku Líney, sem býr hjá þeim, auk þess sem yngri sonur hans, Baldur Hrafn sem er þriggja ára, kemur reglulega til þeirra. „Friðrikku og Baldri kemur frábærlega vel saman. Við feðg- arnir erum mjög nánir og hann kemur oft til okkar. Það er yndis- legt að sjá hvað litlu una sér saman. Ég á svo eina þrettán ára stelpu sem heitir Stefanía Arna og frumburðurinn Tómas varð tvítugur núna um daginn.“ Í sumar fékk Víkingur styrk til að skrifa verk fyrir Vesturport og eyddi hann sumrinu í skriftir á Suðureyri. Hann frumsýndi verkið sem hann hafði varið sumrinu í að skrifa, Tribbjút, á einleikjahátíðinni Act Alone á Suðureyri í ágúst. „Ég sýndi verkið bara einu sinni, fyrir troð- fullu húsi, og hef reyndar ekki sýnt það síðan, en það stendur til bóta. Ég hyggst þvælast með það um Vestfirði og síðan hefur mitt fólk fyrir sunnan verið að sækjast eftir því að ég komi með verkið suður,“ segir hann. Þegar Víkingur er ekki á fullu í leiklistinni starfar hann hjá fiskvinnslufyrirtækinu Klofningi á Suðureyri. Aðspurður hvernig honum lítist á að vera komin aftur vestur segir hann: „Heyrðu, mér líst svona ljómandi vel á mig hérna. Það var reyndar fyndið hvernig allir héldu að það hefði verið Kolbrún sem hefði farið í höfuðborgina og dregið karl hingað en það er náttúrulega ekki rétt! Það er að stórum hluta ég sem ber ábyrgð á því að við erum hérna því mig var farið að þyrsta í eitthvað nýtt. Kannski er það líka þetta sem ég hef frá föður mínum, þörfin að breyta til og prufa eitthvað nýtt. Það er að minnsta kosti partur af mínum karakter og þó það sé að vissu leyti eins og að koma heim aftur, þá er þetta samt nýtt, ég er að vinna í fiski í Klofningi, sem mér fannst eiginlega bara tilheyra því að flytja hingað,“ segir hann. Hann segist líka vera hálffeg- inn að vera staddur annars staðar en í höfuðborginni núna. „Ég lék í auglýsingu um daginn og and- litið á mér er allt í einu plasterað á öll strætóskýli í borginni. Ég gerði þetta líka fyrir einhverjum árum fyrir Vodafone og það var skelfilegt að sjá sjálfan sig á öll- um strætóskýlum og auglýsinga- skiltum, þannig að ég er afar feg- inn að vera hérna núna. Það hefur líka verið vitlaust að gera hjá mér síðan ég kom. Fyrir utan vinnuna hjá Klofningi og skriftir og Act Alone hef ég verið að sýna Bjórsögu Víkings hér í Kaupfélagi Súgfirðinga.“ Bjór- saga Víkings er eftir hann sjálfan og Nönnu Kristínu Magnúsdóttur leikkonu. „Ég hef verið að sýna þetta verk á Kex Hostel í Reykjavík. Það má segja að þetta sé eins konar fræðsluleikrit vegna þess að í því felst mikill fróðleikur fyrir bjóráhugafólk. Ég fer líka yfir mín kynni af bjór, reyni að vera sniðugur og skemmtilegur,“ segir hann. Þá hefur hann einnig tekið að sér veislustjórn á jóla- hlaðborðum Hótels Ísafjarðar núna í desember og nýverið hóf hann að leikstýra hjá Leikfélagi Flateyrar. „Þetta er farsi sem ber heitið Allir á svið! Þrælfyndið alveg hreint. Og hópurinn svona . Við fyrirhugum að frumsýna þann 22. nóvember,“ segir Vík- ingur. – harpa@bb.is „Skarphéðinn Ólafsson skólastjóri kemur til okkar og segir að við þyrftum að fara til Ísa- fjarðar, flugvélarinnar sem pabbi var í sé saknað. Við vissum að hann hafði ætlað suður en vissum ekki að hann hefði farið með þessu flugi.“

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.