Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.11.2013, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 07.11.2013, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 „Málið er enn í ferli hér. Það er auðvitað reynt að hraða þessu eins og kostur er,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, aðspurður um framgang rannsóknar á kæru um meint kynferðisbrot á Þingeyri en um miðjan febrúar á þessu ári handtók lögreglan á Vestfjörðum karlmann vegna gruns um kyn- ferðisbrot. Fleiri en ein kæra hafði þá borist á hendur mannin- um. Maðurinn var sóttur á heimili sitt og yfirheyrður og síðan sleppt að yfirheyrslum loknum. Lögreglan framkvæmdi einnig húsleit á tveimur stöðum vegna málsins. Gangurinn á málum sem þessum er sá að mál sem varða meint kynferðisbrot eru rannsök- uð hjá lögreglu. Þegar rannsókn er lokið fer það til Ríkissaksókn- ara sem tekur ákvörðun út frá gögnum sem liggja fyrir, hvort gefin verði út ákæra. Hlynur sagðist ekki geta tjáð sig um hve- nær niðurstöðu úr rannsókn væri að vænta. – harpa@bb.is Þingeyrarmálið: Enn í ferli hjá lögreglu „Vestfirðingar skila sér ágæt- lega í þessa rútínu sem hér er í gangi,“ segir Sigurjón Guðmunds- son, tannlæknir á Ísafirði, en hann telur að tannheilsa Vestfirðinga sé góð. Lítil tölfræði er gefin út um tannheilsu og sókn til tann- lækna, og hefur minnkað frá því sem áður var. Heyrst hefur að meðal sparnaðarúrræða sem menn leiti til í efnahagsþreng- ingum síðustu ára sé að draga við sig að leita til tannlækna, en erfitt er að staðfesta það með opinberri tölfræði. „Við höfum ekki orðið varir við það, þrátt fyrir allar hremm- ingar, að menn hafi dregið við sig að mæta í reglulega athugun. Það er kannski einn og einn sem reynir að spara með því að fara ekki til tannlæknis, óháð efna- hagsástandi, en það gengur ekki yfir heildarlínuna. Það er enda vitlausasti sparnaður sem hugsast getur. Karíus og Baktus taka hæstu dráttarvextina.“ – herbert@bb.is Tannheilsa Vestfirðinga góð „Skólastarfið gengur afskap- lega vel. Hér ríkir eldmóður með- al kennara þrátt fyrir bág kjör og niðurskurð. Það hefur ekki truflað okkur mikið og við eru í því á fullu að gera skólann enn betri. Ég er virkilega ánægður með stöðuna. Ég finn ekki annað en að nemendur séu líka ánægðir. Hér ríkir jákvætt og gott and- rúmsloft,“ segir Jón Reynir Sig- urvinsson, skólameistari Mennta- skólans á Ísafirði. Jón Reynir segir jákvætt og gott andrúmsloft í skólanum og nefnir í því sam- bandi félagsmiðstöð sem verið er að setja á stofn í skólanum í samstarfi við Ísafjarðarbæ. „Við höfum reynt þetta áður. Við vorum þá í samstarfi við Gamla apótekið og það gafst afar vel en reyndist bænum ofviða. Það er ánægjulegt að geta nýtt þetta húsnæði.“ Jón Reynir er öllu myrkari í máli þegar kemur að rekstri skólans, en mikill nið- urskurður hefur verið á starfsemi framhaldsskóla undanfarin ár. „Það gætir ákveðins misskilnings varðandi niðurskurðinn, en nú er ekki verið að skera niður rekstr- arfé skólans. Það eru ný verkefni og framkvæmdir sem eru skornar niður, þannig að það sem hafði verið ákveðið að setja í farveg er slegið af. Þetta hefur auðvitað þýtt að við höfum þurft að skerða námsframboð og þjónustu við nemendur.“ „Reiknilíkan fyrir fjárveitingar er orðið að deililíkani, þannig að það er fyrirfram ákveðið hversu miklum peningum er varið í rekstur framhaldsskólanna, og líkanið sem slíkt breytir engu nema þeim reglum sem farið er eftir við að skipta peningunum. Það sitja allir við sama borð, sem er of lítið. Þetta þýðir að það er of lítið fjármagn til að reka fram- haldsskólana. Það verður tæplega betri staða eftir áramót, þegar búið verður að semja um launa- hækkun til kennara. Hvað þetta varðar er staðan virkilega slæm,“ segir Jón Reynir. Gott skólastarf en erfiður rekstur

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.