Bæjarins besta - 07.11.2013, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Vestfjarðavíkingur í útrás
Stakkur hefur ritað viku-
lega pistla í Bæjarins
besta í mörg ár. Skoð-
anir hans á mönnum
og málefnum hafa oft
verið umdeildar og vak-
ið umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara saman
við skoðanir útgefenda
blaðsins. Þrátt fyrir það
bera ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á skrif-
um Stakks á meðan
hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560
smáar
Til sölu er rafmagnsrúm frá Betra
bak. Stærð: 90x200. Upplýsing-
ar gefur Elísabet í síma 866 4803.
Miklar breytingar hjá BÍ/Bolungarvík
Miklar breytingar verða á
meistaraflokksliði BÍ/Bolungar-
víkur á næsta keppnistímabili.
Allt að níu leikmenn sem áttu
sæti í liðinu geta verið á förum.
Öruggt er að Alejandro Bereng-
uer Munoz markvörður verður
ekki áfram né heldur þeir Ben
Everson, Daniel Badu, Theodore
Eugene Furness og Max Toul-
oute. Þá er Ingimar Elí Hlynsson
farinn aftur til FH og Alexander
Veigar Þórarinsson verður ekki
áfram hjá liðinu. „Svo er ennþá
spurning með Michael Abnett
en við höfum fengið fyrirspurnir
frá liðum í Pepsi deildinni vegna
hans og komum að sjálfsögðu
ekki til með að standa í vegi fyrir
því að hann fari ef gott tilboð
fæst. Það er líka smá spurninga-
merki með Dennis Nielsen,“
segir Samúel S. Samúelsson for-
maður BÍ/Bolungarvíkur.
Gunnar Már Elíasson hefur
verið að glíma við meiðsli og
verður að öllum líkindum ekki
leikfær fyrr en í ágúst á næsta ári
að sögn Samúels. „Það er hoggið
ansi stórt skarð í hópinn,“ segir
Samúel. Forsvarsmenn fyrirtæk-
isins hafa nýlega framlengt
samning við Hafstein Rúnar
Helgason, sem var valinn besti
leikmaður liðsins á nýliðnu tíma-
bili. „Það eru allir gríðarlega
ánægðir með þessi tíðindi því
auk þess að vera góður leikmaður
þá er Hafsteinn gull af manni og
fyrirmynd okkar allra. Svo var
Ólafur Atli Einarsson að skrifa
undir sinn fyrsta meistaraflokks
samning í vikunni og við bindum
miklar vonir við hann enda mun
hann eflaust styrkja leikmanna-
hóp liðsins næsta sumar,“ segir
Samúel. Þá mun Nigel Quashie
leika með liðinu á næsta tímabili.
Að sögn Samúels verður engin
breyting á þjálfaraliðinu. Jör-
undur Áki Sveinsson verður
áfram þjálfari og Ásgeir Guð-
mundsson verður honum áfram
innan handar. Þá verða Gunn-
laugur Jónasson sjúkraþjálfari og
Ívar Pétursson liðsstjóri áfram
hjá liðinu. „Við vonumst til að
geta fjölgað Íslendingum í liðinu
en það er hægara sagt en gert.
Íslenskir knattspyrnumenn virð-
ast margir hverjir hræddir við að
flytja út á land til að spila. Við
eigum gríðarlega efnilega stráka
sem eru að koma upp úr yngri
flokkum félagsins, þar með talið
þá þrjá sem eru í U17 landslið-
inu,“ segir Samúel.
Samúel segist eiga von á því
að Ólafur Atli, Nikulás Jónsson
og Matthías Króknes spili stærra
hlutverk með liðinu á næsta tíma-
bili. „Sigurgeir Sveinn Gíslason
verður líka áfram en hvort Andri
Rúnar Bjarnason verði það líka á
eftir að koma í betur í ljós, en við
vonum það besta,“ segir Samúel.
Æfingar hjá liðinu fóru af stað í
þessari viku og segir Samúel þá
vera fara af stað með að styrkja
leikmannahópinn.
– harpa@bb.is
Miklar breytingar verða á meistaraflokksliði BÍ/Bolungarvíkur á næsta keppnistímabili.
Það eru merkistíðindi að Halldór Halldórsson fyrrum bæjar-
stjóri í Ísafjarðarbæ og formaður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga skuli gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Vestfirðingar þekkja Halldór, og af góðu. Hann
hefur einnig staðið sig vel sem formaður Sambandsins. Hvað
þarf til að leggja í það stórvirki að taka þátt í prófkjörsbaráttu
á vegum Sjálfstæðisflokksins í stærsta sveitarfélagi Íslands
með skömmum fyrirvara? Halldór kynnti ákvörðun sína áður
en Jón Gnarr Kristinsson borgarstjóri Besta flokksins lét upp-
skátt að hann hygðist hætta afskiptum af stjórnmálum sem
borgarstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur ekki
náð vopnum sínum, hann skortir fyrri styrk með fimm borgar-
fulltrúa, hefur lengstum haft hreinan meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur. Sjálfstæðislokkinn hefur ekki aðeins skort
styrkinn sem felst í fulltrúatölunni. Fulltrúar hans í borgarstjórn
hafa ekki verið nægilega sannfærandi síðustu árin.
Skoðanakannanir sýna að Björt framtíð sé á góðri leið með
að taka við af Besta flokknum og fái 6 fulltrúa, en Sjálfstæðis-
flokkurinn haldi aðeins sínum fimm fari kosningar í samræmi
við þetta og það lofar ekki góðu fyrir hann. Ein skoðanakönnun
leiðir í ljós ef mark er á er á takandi að fremstur þeirra fjögurra
sem sækjast eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fari Júlíus
Vífill Ingvarsson, en næstur komi Halldór. Hann er sá eini sem
virðist geta veitt Júlíusi samkeppni. Það verður fróðlegt að
fylgjast með því hvað gerist á næstu dögum í þessum efnum.
Enn eru níu dagar til prófkjörs og aldrei að vita hvað gerist á
þeim tíma. Sagt er að einn dagur í pólitík sé langur tími þegar
þannig ber undir.
Aftur að Halldóri. Hann er lagður í víking og útrás frá Vest-
fjörðum, sem jafnframt er innrás í Reykjavík. Vel gæti hugsast,
einkum ef hann nær tilætluðum árangri, að margt kunni að fara
á betri veg í höfuðborginni. Mörgum hefur þótt brandarinn Jón
Gnarr fyndinn. En sú fyndni nær ekki út fyrir borgarmörkin,
enda hefur verið safnað skuldum á líðandi kjörtímabili. Engu að
síður er það svo að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur ekki sama
trausts og fyrr líkt og gildir um aðra stjórnmálaflokka, sem ekki
eru byggðir á nýjungagirninni einni saman.
Hvað sem öðru líður er Halldóri óskað velgengni og þess
vænst að hann hafi góð áhrif á stjórn Reykjavíkur. Þá er til nokk-
urs unnið.