Bæjarins besta - 07.11.2013, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Fanney Rósa Jónsdóttir
fékk verðlaun fyrir besta
búninginn á Halloween
(hrekkjavöku) diskói sem
haldið var á Edinborg Bistro-
bar á laugardagskvöld en þar
var hún í gervi uppvaknings
(e.zombie), manns sem hefur
verið vakinn upp frá dauð-
um. „Dómnefndinni þótti
hún vera hryllilegust, enda
var það eitt af skilyrðunum
sem þurfti að uppfylla og hún
lagði greinilega mikið í förð-
unina. Það voru mjög margir
í flottum og metnaðarfullum
búningum, ekki alveg allir
samt í „hryllingsþema“ en
flottir engu að síður. Og ég
tala nú ekki um farðanirnar,
fólk leggur greinilega mikið á
sig, jafnvel nokkurra klukku-
stunda ferli,“ segir Eygló
Jónsdóttir, einn af skipu-
leggjendum kvöldsins en hún
sá jafnframt um tónlistina
sem DJ Gló og spilaði bæði
gamla og nýja „horror“
tónlist. Dómnefndina skipuðu
starfskonurnar á barnum,
Katrín Líney Jónsdóttir,
Guðrún S. Matthíasdóttir og
Sædís Ingvarsdóttir. „Það
voru þarna nemar frá
Háskólasetri Vestfjarða og ég
held að þeir hafi skemmt sér
manna mest, þau yfirgáfu
dansgólfið að minnsta kosti
ekki eina mínútu allt kvöldið
og þökkuðu vel fyrir sig í
lokin,“ segir Eygló. Húsið var
troðfullt og gleðin og stemm-
ningin gríðarleg segir hún.
Verður annað Halloween
diskó haldið að ári? „Þegar
eitthvað tekst svona vel þá er
engin ástæða til að gera það
ekki aftur og ég er viss um að
hér verði annar eins hrylling-
ur að ári. Um að gera að taka
þennan sið upp aftur, enda
keltneskur siður. Eldgamall
og flottur,“ segir Eygló.
– harpa@bb.is
Uppvakningur þótti hryllilegastur