Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.11.2013, Side 13

Bæjarins besta - 07.11.2013, Side 13
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 13 Nemendur í NV-kjördæmi undir meðaltali í öllum námsgreinum Nemendur í 10. bekkjum grunnskólanna í Norðvestur- kjördæmi eru með normal dreifðar einkunnir (á kvarðan- um 0-60), 28,4 í íslensku, 27,4 í ensku og 28,3 í stærðfræði, sem í öllum tilfellum er lægst miðað við aðra landshluta, samkvæmt niðurstöðum Námsmatsstofnunar á árangri nemenda í samræmdum könn- unarprófum sem fram fóru í haust. Grunnskóla einkunn fylgir normal dreifingu og er meðaltal hennar 30 og staðal- frávik 10 sem þýðir að meðaltal í hverri námsgrein er ávallt 30. Á kvarðanum 1-10 er meðaltal 10. bekkja nemenda í kjördæm- inu 5,6 í íslensku og 6,5 í ensku. Prófað er í þremur greinum í 10. bekk og tveimur í 4. og 7. bekk. Í 10. bekk er prófað í íslensku, ensku og stærðfræði en í 4. og 7. bekk er prófað í íslensku og stærðfræði. Nemendur í 7. bekk í NV- kjördæmi eru rétt undir meðal- tali í íslensku með 29,7 og 29,3 í stærðfræði. Nemendur í 4. bekk grunnskóla í Norðvestur- kjördæmi eru undir meðaltali í íslensku og stærðfræði með 28,0 og 27,6. Í íslensku eru þeir með lægstu einkunnina miðað við aðra landshluta. Ef litið er til landsins í heild og dreifingu einkunna í íslensku og ensku í 10. bekk, kemur í ljós að enginn nemandi í NV-kjördæmi er með 10 í íslensku en á landinu öllu fengu 32 slíka einkunn. Aftur á móti eru 10 nemendur með 1 í íslensku og einn nemandi fær 1 í ensku. Flestir eru með 8 og 8,5 í ensku á meðan flestir fá 6 í íslensku. Í sjöunda bekk eru þrír nemendur með 10 í íslensku á meðan 125 nem- endur fengu 10 í stærðfræði. Lægsta einkunn í íslensku í sjöunda bekk er 2 en það eru tveir nemendur með þá eink- unn. Fjórir nemendur fengu 1 í stærðfræði. – harpa@bb.is Grunnskólinn á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.