Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 18

Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 18
Ljósar nætur Söngferð um Austur- og Norðurland í vor Söngfélagið tekur sig vel út á sviðinu í Eskifjarðarkirkju, konurnar í bláum kjólum og karlarnir með bláar þverslaufur, en svona búin sungu þau á hátíðarsviðinu í Gimli á Islend- ingadaginn árið 1998. Með söng í hjarta lögðum við land undir fót, Söngfélag FEB í Reykjavík, sunnudaginn 29. maí sl., frá félags- heimili okkar, Ásgarði. Ferðinni var heitið til Austur- og Norðurlands. Kórinn stefndi á þrenna tónleika í ferðinni, á Höfn, Eskifirði og Akureyri - sem við og gerðum. Á öllum stöðunum var sungið í kirkjun- um þar sem hljómburður er mjög góð- ur. Okkur var vel tekið og aðsókn góð. Kórar eldri borgara á hverjum stað tóku þátt í tónleikunum - og á eftir átt- um við saman glaðar og góðar stundir. Það var yndislegt að hitta þetta fólk sem sýndi okkur mikla gestrisni. Keyrslur á milli staðanna eru nokk- uð langar, en í glöðum og skemmtileg- um vinahópi nýttist tíminn vel og af nógu var að taka. Með í för var hinn kunni fræðimað- ur, Páll Bergþórsson, sem var óspar á að miðla okkur af fróðleik sínum um landið og sérkenni þess, svo að segja má að fátt markvert, sem fyrir augu bar, hafi farið framhjá okkur. Séra Bjarni Jónsson var einnig með, sagði margar skemmtilegar sögur og fór með hnyttnar vísur. Margir fleiri létu í sér heyra - og allir í sólskinsskapi. Ferðina skipulagði formaður kórsins, Pétur H. Ólafsson, sem vann að okkar málum af sinni alkunnu elju, eins og í öllum okkar fyrri ferðum. Á hann þakkir skildar fyrir dugnað sinn og ó- sérhlífni. Einnig skal nefna söngstjór- ann okkar, Kristínu Pjetursdóttur, sem er óþreytandi að örva okkur. Kristín Pjetursdóttir kórstjóri og Þorsteinn Bjarnar einsöngvari eftir tónleikana á Eskifirði. Ljósm. Helgi M. Undir hennar stjórn finnum við sönggleðina í ríkum mæli. Ferðin var mjög ánægjuleg, ekki síst fyrir það hve gaman var að hitta kóra- fólk úti á landi. Þama hittist líka fólk sem hafði ekki sést í áraraðir og rifjaði upp gömul kynni. Vonandi eigum við eftir að hitta aftur þetta góða fólk og blanda geði. Söngurinn sameinar og eykur lífsánægju okkar eldri borgara. Við þökkum af alhug þær góðu móttökur sem við fengum á Áustur- og Norðurlandi. Bestu þakkir til gestgjaf- anna og undirleikaranna sem liðsinntu okkur á hverjum stað. Með söngkveðjum frá Söngfélagi FEB í Reykjavík \ íslendingabyggðum í Kanada söng kórinn í húsi Stephans G. Stephanssonar og stað- næmdist að sjálfsögðu við minnisvarða hans í Skagafirði. Lagið „Þó þú langförull legðir..." hef- ur sérstaka merkingu fyrir kórfélaga. Ljósm. Helgi M. 18

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.