Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 23
Búnaðarbankinn kynnti nýja þjónustu, Eignalífeyri, fyrir 60 ára og eldri í ársbyrjun 1999. Þjónustan er mjög einfold og
hana er hægt að sníða að þörfum hvers og eins rneð aðstoð Silfursjóðsins sem er sérsniðið ráðgjafarforrit og gerir okkur
kleift að gera áætlanir fram í tímann. Þjónustan felur í sér mun betri kjör í inn- og útlánum en almennt gerist og ítarlega
fjármálaráðgj öf sé þess óskað.
1. Þjónustan er veitt í öllum afgreiðslum bankans á 37 stöðum víðs vegar um landið en í henni felst meðal annars:
2. Eignalífeyrisbók sem er sparireikningur án bindingar og án lágmarksinnstæðu. Vextir eru sambærilegir við 30
mánaða bundinn reikning, nú 11,04%. Til samanburðar má geta þess að vextir á 1. þrepi Markaðsreiknings eru nú
10,32%. Eignalífeyrisbók er aðeins ætluð 60 ára og eldri og hægt er að velja um bók eða bókarlausan reikning. Hún nýtur
mikilla vinsælda hjá eldri borgurum en nú eru tvö og hálft ár siðan hún var kynnt. Margir láta færa lífeyrisgreiðslur beint
inn á reikninginn og geta þannig gengið að fé sínu vísu hvenær sem er en jafnframt notið hámarksávöxtunar. Ef tekið er út
oftar en íjórum sinnum í mánuði er reiknuð vaxtaleiðrétting sem er 0,5% af úttekinni ljárhæð.
3. Fasteignalífeyrir sem er í formi t.d. mánaðarlegrar greiðslu eða eingreiðslu til viðskiptavinar gegn veði í fasteign.
Þetta er óverðtryggt reikningslán sem ber nú 13.95% nafnvexti og eru þeir mun lægri en vextir á yfirdráttarlánum.
Ekki þarf að greiða afborganir af slíku láni fyrr en við sölu eða eigendaskipti á fasteigninni eða samkvæmt
samkomulagi við Búnaðarbankann. Lánssamningurinn er sveigjanlegur og hægt að breyta honum hvenær sem er.
Einnig er hægt að fá háa upphæð í íyrstu, t.d. ef leggja þarf út fyrir viðhaldskostnaði fasteignar og fá síðan reglulegar
greiðslur eftir það. Ekki er hætta á því að fasteignin verði ofnýtt því lánið verður ekki hærra en svo að helmingur
eignarinnar að minnsta kosti stendur alltaf eftir þegar eigandi verður 85 ára. Þetta er alger nýjung í bankaþjónustu á
íslandi og hentar fólki sem er eldra en 65 ára.
4. Eldri borgarar geta leitað til sérstakra þjónustufulltrúa á öllum afgreiðslustöðum Búnaðarbankans. Þar geta þeir
fengið ráðgjöf og upplýsingar um mögulega þjónustu þeim til handa.
5. Greiðsluþjónusta Búnaðarbankans felur í sér að reikningarnir eru sendir beint í bankann og þar er séð um að greiða
þá á réttum tíma. Jafnframt er hægt að dreifa útgjöldunum jafnt á alla mánuði ársins. Veittur er 10% afsláttur af þessari
þjónustu til eldri borgara.
6. Asgeir Jóhannesson ráðgjafi, sem er þekktur fyrir störf sín í þágu eldri borgara, er með fasta viðtalstíma í aðalútibúi
bankans, Austurstræti 5, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10-11 þar sem hann veitir sérstaklega upplýsingar og ráðgjöf um
Eignalífeyrisþjónustu Búnaðarbankans. Þar tekur hann á móti eldri borgurum og einnig er hægt að ná í hann í síma
525 6000 á þeim tíma.
7. Að auki gefst Eignalífeyrisfélögum kostur á tölvukaupaláni sem er reikningslán að hámarki 200.000 kr. til
36 mánaða með hagstæðum vöxtum. Félögum stendur einnig til boða sérstakt tölvunámskeið á vegum bankans.
Með bestu kveðju,
c&dda/ cS uiw m&dáttÁA/,
forstöðumaður markaðsdeildar
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
23