Listin að lifa - 01.10.2001, Page 25
ullárin
Reykjavík, 27. júlí 2001
í framhaldi af fyrri bréfaskriftum okkar, vilja sparisjóðirnir koma eftirtöldum upplýsingum á frantfæri við stjórnir og
félagsmenn Félags eldri borgara og Landssambands eldri borgara.
Sparisjóðirnir, með rúmlega 60 afgreiðslustaði um land allt, bjóða einir bankastofnana sérstaka þjónustu fyrir fólk á
aldrinum 60 ára og eldri. Markmiðið er að veita alhliða fjármálaþjónustu, sérsniðna að þörfum hvers og eins og
styðja þannig við þennan aldurshóp í listinni aó lifa. Þjónustan ber heitið Gullárin.
í Gulláraþjónustu sparisjóðanna felst eftirfarandi:
1) Sérstakur Gullárareikningur vextir nú 11,14%, og án úttektargjalds. Enginn binditími og engin þjónustugjöld.
2) Gulldebetkort (GD) með verulega lægra árgjaldi og þeim kjörum sem slíku korti og reikningi fylgir*.
í GD þjónustunni felast hærri innlánsvextir en á almennum veltureikningi, útlánsvextir eru 2% lægri en á
venjulegum yfirdráttarheimildum og eingöngu er greitt fyrir nýtta heimild, ákveðin upphæð heimildar er án
tryggingar, 150 fríar debetkortafærslur á ári. í þessu korti eru engar persónutryggingar. Auk þessa býðst rneð GD
þjónustunni Visa eða Euro gullkreditkort með góðunr ferða- og slysatryggingum, viðskiptavinum að kostnaðar-
lausu.*
3) Greiðsluþjónustan er þægileg leið til að létta ijármálavafstrið og fá betri sýn á fjármálin. Ekkert stofngjald og
ekkert árgjald er í Greiðsluþjónustu fyrir félagsmenn FEB / LEB í Gulláraþjónustu.
4) Hcimabanki og GSM-banki án endurgjalds. Með því að tengjast Heimabanknum opnast viðskiptavinum greið
leið til að stunda viðskipti við sparisjóðina í gegnum tölvu, hvar og hvenær sem þeim hentar. Til þess að styrkja
þekkingu á tölvum bjóða sparisjóðirnir sérsniðin tölvunámskeið á vegum Fræðslunriðstöðvar sparisjóðanna. Þessi
námskeið er síðan hægt að þróa enn frekar í samráði við FEB / LEB.
5) Eigin þjónustufulltrúi. Sparisjóðirnir leggja metnað í að veita viðskiptavinum sínum þjónustu af öllu hjarta.
Hver viðskiptavinur í Gulláraþjónustu hefur sinn eigin þjónustufulltrúa.
6) Inngöngugjöf fýrir nýja félaga í Gullárahópinn.
Auk þess munu sparisjóðirnir viðhalda tengslunum við Gullárahópinn með reglulegum glaðningi í formi gjafa eða
sérstakra tilboða sem berast rnunu félögum beint eða kynnt verða hverju sinni.
Við viljum nteð þessu árétta fyrri ósk okkar unt að fá FEB / LEB til samstarfs og frekari mótunar á Gullárunum -
þjónustu sparisjóðanna sem ætluð er fólki yfir sextíu ára aldri.
Sparisjóðirnir hafa frá upphafi lagt áherslu á náið samband við viðskiptavini sína með nálægð, umhyggju og ráðgjöf.
Þannig getur hver viðskiptavinur leitað til síns þjónustufulltrúa / starfsmanns með ósk um lausnir í fjármálum. Við
erum reiðubúin að gera enn betur, t.d. með skipulagningu funda um fjármál á vegum FEB / LEB, skrifa greinar í
Félagsrit eldri borgara og námskeiðahald.
Virðingarfyllst,
f)a£clstiatv,
markaðs- og frœðslustjóri, Sambandi íslenskra sparisjóða
SPARISJÓÐURINN
*Skv. útlánareglum Sparisjóðsins -fyrir þig og þína
25