Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 27
Frá hægri: Hjörtur Halldórsson, Anna Magnúsdóttir, Dagbjörg Ólafsdóttir,
Oddbjörg Þórarinsdóttir, Torfi Jónsson, Jónína H. Jónsdóttir, Alda Thorodd-
sen. Fremri röð: Maggý Kristjánsdóttir, Ásdís Berg.
Á haustdögum hugsaði ég mikið
um hvað væri hægt að gera fyrir
félagana sem væri bæði gaman og
líka hreyfing eða leikfimi.
Með góðra manna hjálp var byrjað á
að efna til vatnsleikfimi. Einkatíma
fengum við í lauginni okkar. Þetta
var á föstudögum kl. fjögur síðdeg-
is og tókst mjög vel. Við stunduðum
þetta fram til 17. desember og byrj-
uðum svo aftur í maí.
Ekki voru allir sem þoldu vatn
og alls ekki klórblandað. Þá var
stofnaður línudansklúbbur, tvær
ungar konur leiðbeindu okkur í því.
Enn þurfti eitthvað léttara, ekki
hægt að standa á öðrum fæti og
hringsnúast! Þá kom sagnaandinn
yfir okkur. Af hverju ekki bara að
leika sér eins og börnin, fara í leiki,
syngja og þess háttar?
Það varð úr að eftir áramót var
byrjað á alls konar hringleikjum
með söng. Og viti menn! Þetta eldra
fólk kunni mikið af látbragðsleikj-
um sem bæði voru sungnir og dans-
aðir. Var eitthvað betra til? Ó, nei.
Þetta varð það vinsælasta.
Síðan var farið á dansnámskeið
hjá danskennara í gömlum dönsum
og skemmtidönsum. Nú erum við í
víkivökum, menúettum, hringleikj-
um og danskvæðum. Ennfremur eru
skemmtifundir einu sinni í mánuði
fjarska vel sóttir. Allir eru virkir í
að vinna vel og mikið, okkur öllum
til gamans og gleði.
sAs<ti& ‘tiPde.’iy,
kveðjafrá skemmtideildinni BIRTU
á Patreksfirði
Þessar vísur gaf
höfundur okkur. Þær
lýsa best hvað hentar
vel fyrir allflesta - og
skemmtilegt er það,
svo mikið er víst!
Dansinn
Hér er sko gaman, já, hér er sko fjör,
hér leggjast fáir í ellinnar kör.
BIRTA var stofnuð og stendur sig vel
og starfar af krafti, það reyndar ég tel.
Hæ, dúllía, dúllía, dúllía dei,
hæ dúllía, dúllía, dúllía dei,
BIRTA var stofnuð og stendur sig vel
og starfar af krafti, það reyndar ég tel.
Leikfimi í vatni er Ijómandi góð
og læknar víst gigtina í íslenskri þjóð.
Heitu í pottunum hallast menn að,
heilmikið yngjast þeir, gott er nú það.
Hæ, dúllía...
Fótamennt okkar er falleg og nett,
við förum á kostum og tökum á sprett.
Vínarkruss, marsúrka, rúmbu og ræl,
við svífum um gólfið og dönsum með stæl.
Hæ, dúllía...
Línudans flottur er nýjasta nýtt,
þær náttúrusveiflur fær dansgólfið prýtt.
Aftur til hægri og örlítið frá,
alveg er frábært að horfa það á.
Hæ, dúllía...
Við hringleiki æfum nú kvöld eftir kvöld
Þeir komust í tísku á síðustu öld.
Brátt kemur vorið, við förum í frí,
en fljótlega dönsum við aftur á ný.
Hæ, dúllía...
Svo verðum við lúin, svo verðum við löt,
við liggjum að síðustu í rúminu flöt.
Oss minningin leiðir Ijúfastan dans,
Að lokum svo hverfum við héðan með glans.
Hæ, dúllía...
^atj&jötl cUtta' tiMa^sdáttvv
frá Hœnuvík
27