Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 31

Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 31
komnum tækjum svo að hægt yrði að matbúa fyrir heimilisfólk og eldri borgara í Garðabæ sem þess óska. Og kapellu St. Jósepssystra var breytt í borðsal og samkomusal.“ Þóra var áður hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimili á Kirkjubæjar- klaustri. „Á Klausturhólum voru tutt- ugu manns. Svona litlar einingar eru ákjósanlegar til skapa heimilisanda og koma í veg fyrir stofnanablæ. Hjúkr- unarheimili er heimili fólksins. And- rúm spítalastofnana á ekki að ríkja á hjúkrunarheimili. Ellinni fylgja óhjákvæmilega sjúk- dómar, samt lítur maður ekki á Holts- búðina sem sjúkrastofnun. Stærðin er mjög skemmtileg og frábært starfsfólk hefur valist hingað, en mikið er um konur úr Garðabæ sem vilja vinna ná- lægt heimili sínu.“ - Sérstaða þessa hjúkrunarheim- ilis? „Að byggt skuli á Hospice - hug- myndafræðinni sem leggur áherslu á andrúm virðingar, umhyggju og um- burðarlyndis gagnvart einstaklingnum. Hún er fyrst og fremst ætluð þeim sem ekki eiga von um bata, en á vel við í umönnun aldraðra. Holtsbúð á að vera eins og stórt heimili þar sem starfsfólk gengur í öll störf, rútína er eitthvað sem við forðumst. Hér er hægt að sofa út og yfirleitt reynt að stuðla að því að fólk haldi sínum lífsvenjum. Þetta er heimili þeirra sem hér búa - og við hvetjum fólk til að halda áfram að lifa lífinu sem líkast því og var heima. Síðan reynum við að mæta þörfum hvers einstaklings. Til að sækja um vistun þarf öldrunar- eða heimilislæknir að skila inn vistunarmati sem gildir sem umsókn. Eins og á stóru heimili ganga allir í öll störf, enginn er bara í þvottahúsinu eða bara í þrifum. Hér eru öll störf jafn mikilvæg. Þetta eykur skilning starfsfólks á hvað hinir eru að gera og enginn á að geta sagt: „Ég veit það ekki - ég er ekki með hann!“ Á stórum sjúkrastofnunum stendur stíf vinnu- skipting oft starfinu fyrir þrifum, ef veikindi eru á einni deild er ekki hægt að fá aðstoð frá annarri.“ - Hvers konar sjúklingar eru hér? „Eldra fólk sem getur ekki verið eitt heima lengur og hefur verið að missa tökin á tilverunni. Margir hressast við að komast í öryggi á hjúkrunarheimili og í bili klæðast allir og fara fram í borðsal. Margt fylgir ellinni, sjúkdóm- ar og áföll af ýmsum toga skerða getu einstaklingana. Þetta er partur af líf- inu, hluti af hverjum einstakling sem við megum ekki sjúkdómsgera um of.“ - Nú eru hér aðallega tveggja manna herbergi. Skapar það ekki ákveðin vandamál? „Vissulega. Það þarf ákveðna út- sjónarsemi að velja fólk saman í tví- býli. Meirihluti eða um 70-80% vist- manna eru minnisskertir og mikið álag fyrir heilbrigða að lenda með andlega skertum einstaklingi. Heimild er fyrir 28 í hjúkrunarrými. Hér eru sextán tveggja manna herbergi, en aðeins fjögur einbýli til ráðstöfunar fyrir þá sem þurfa mesta aðhlynningu. Það er skerðing á mannréttindum að fá ekki að vera einn í herbergi óski fólk þess, en sumir vilja félagsskap.“ - Er mikil aðsókn að heimilinu? „Mjög mikil. Aldraðir íbúar Bessa- staðahrepps og Garðbæingar ganga fyrir vistun og þeim gátum við sinnt til að byija með. Fljótlega fórum við að taka inn úr öðrum bæjarfélögum, en tökum tillit til barna viðkomandi ef þau eru búsett á svæðinu. Nú eru 80 Fjölmenni var á vígsludaginn. Systir Emmanúelle fyrrverandi príorinna Klaustursins mætti með yfirmönnum reglunnar frá Dan- mörku (fjórða frá vinstri, á miðri mynd), Ingimundur og Þóra eru hér með Sankti Jósepssystrum. 31

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.