Listin að lifa - 01.10.2001, Side 32
manns á biðlista alls staðar að.
Holtsbúð sjáum við fyrir okkur sem
þjónustumiðstöð í framtíðinni. Héðan
væri hægt að taka heimili í fóstur,
sinna heimilishjálp og kynnast fólki á
heimili sínu áður en það þarf á dvöl að
halda. Vonandi verður Holtsbúðin
alltaf nógu stór til að sinna þessu
svæði. Búið er að sækja um dagvistun
héma, en leyfi ekki enn komið, skortur
á fjármagni úr ríkissjóði.“
- Þið eruð með heimaeldhús!
„Já, eldhúsið er hjartað á staðnum.
Það er mikils virði fyrir heimamenn að
matarlykt berist um heimilið og að ný-
bakað sé með kaffinu. Hérna er líka
matjurtagarður sem við stækkuðum í
vor. Við ræktuðum heilmikið síðasta
sumar og njótum enn góðs af græn-
metisréttum úr garðinum. í Holtsbúð
geta aldraðir heimabúandi keypt sér
máltíðir og um tíu manns koma hingað
að staðaldri.“
Þóra segir að í byrjun hafi borið á
tilvistarkreppu. „Þetta er ákveðið ferli,
sorgarviðbrögð þegar fólk flytur frá
heimili sínu yfir á hjúkrunarheimili.
Starfsfólkið átti líka í erfíðleikum,
flestir komu úr allt öðru vinnuum-
hverfi, en núna eru hjólin farin að snú-
ast. Við leggjum upp úr að finna hvar
hver starfsmaður nýtur sín best, kynn-
ast heimilisfólkinu, njóta styrkleika
hvers annars. Það tekur tíma að fínna
þetta jafnvægi."
- Mikið er deilt um aldraða í þjóð-
félaginu. Það hlýtur að vera mikil
þróunarvinna fólgin í því, hvernig
best er að reka hjúkrunarheimili
fyrir aldraða?
„I okkar menningu vantar mikið á að
virðing sé borin fyrir eldra fólki. Aust-
urlönd gefa okkur fordæmi til að byrja
svolítið á grunninum. Þetta á að vera
meira samfélagslegt eins og hjá Kín-
verjum sem bera virðingu fyrir ellinni.
Börn sem koma hingað í heimsókn
hafa sum varla séð háaldraða mann-
eskju. Jafnvel í litlum bæ eins og
Garðabæ er fólk einmana og félagslega
einangrað. Eg sé mun á þessu hér sam-
anborið við Klausturhóla. Á Klaustri
þekkjast allir innbyrðis og flestir vist-
menn áttu ættingja meðal starfsfólks-
ins. Fólkið gat dvalið lengur heima hjá
sér - af því að nágrönnum fannst svo
sjálfsagt að annast um það.
Við reynum að vekja þessa samfé-
lagslegu ábyrgð með því að fá aðstand-
endur í lið með okkur. Aðstandendafé-
lögin hafa staðið fyrir ýmsum skemmt-
unum eins og harmonikkuleik, ferða-
lögum, sumarhátíð og fleira.
Ég vildi gjaman sjá aukið samstarf
við skólana. Þeir hafa aðeins komið í
heimsókn, en gaman væri að sjá meira
til ungviðisins. Við eigum að vera sam-
taka um að minnka kynslóðabilið.“
í fyrrverandi kapellu er verið að
undirbúa 85 ára afmælisveislu. Svip-
aður undirbúningur og í heimahúsi,
nema að hér leggja fleiri hönd á plóg.
Athygli vekja skemmtileg listaverk á
veggjum. „Sagan á bak við listasýn-
ingar í Holtsbúð er að Þunður Sigurðar-
dóttir söngkona í Garðabæ ræddi við
vistmann sem varð 100 ára, söng í af-
mælisveislunni og opnaði myndlistar-
sýningu. Síðan hefur hver listamaður-
inn af öðrum sett hér upp sýningar.
Myndlistarsýningar eru frábær grunn-
ur til að skapa umræður meðal heim-
sóknargesta, hvort myndirnar séu fal-
legar eða ljótar.“
Þóra segir að mjög ánægjulegt hafi
verið að hefja störf í Garðabænum,
finna metnað stjórnar, yfirmanna fé-
lagsmála og heilsugæslu. Holtsbúð
hafa borist höfðinglegar gjafir - frá
Bessastaðahreppi, Lionsklúbbnum
Eik, Innerwheel Görðum og Oddfell-
ow stúka 21, Þorlákur helgi, er búinn
að innrétta sjúkraþjálfunarherbergi á
neðri hæðinni.
„Allir eru svo fullir af vilja að veita
öldruðum íbúum Garðabæjar og Bessa-
staðahrepps sem besta þjónustu. í Nor-
egi standa félög eldri borgara fyrir að
útnefna besta hjúkrunarheimili lands-
ins. Gaman væri að keppa að slíkum
titli, ef slíkar útnefningar ættu sér stað
hérlendis.
Öll þurfum við að standa saman að
velferð og hjúkrun aldraðra. Allar hug-
myndir um hvernig best sé að standa
að málum eru vel þegnar. í haust er
fyrirhuguð ráðstefna um framtíðarsýn
innan heilsugæslu og hjúkrunar. Fróð-
legt verður að fylgjast með nýjum hug-
myndum á þeim vettvangi.“
Geta 10 grömm breytt lífi þínu?
Átt þú í erfiðleikum með að fylgjast með samræðum
í fjölmenni, hefurðu sleppt matarboði, leikhúsferð eða
veislu vegna þessa? Ekki láta heyrnarskerðingu valda
þér félagslegri einangrun!!!
DigiFocus II heyrnartækið er:
• 100% stafrænt
• Eykur talskilning
• Sjálfvirkt
• Forritanlegt
• Afgreitt á 3-4 vikum
Heyrnartækni
Lágmúla 5, Rvk
sími 568 6880
DisiFocusJl