Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 34
Blákaldur veruleikinn
Ég hef áður sagt frá því hér í blaðinu,
að við höfum fengið umtalsverðar
upplýsingar frá ríkisskattstjóra um
tekjur aldraðra á árinu 1999. Þær sýna
okkur fyrst og fremst, að mjög margir
eldri borgarar eru illa staddir fjár-
hagslega.
I eftirfarandi töflum er nákvæmara yf-
irlit áður birtra upplýsinga og greint á
milli einstaklinga og samskattaðra
(hjóna). Hafa verður í huga, að meðtald-
ir eru makar yngri en 67 ára og að tekj-
um er skipt jafnt á milli samskattaðra,
sem skekkir myndina talsvert. I fylgi-
skjölum með lagafrumvarpi, sem sam-
þykkt var í vor um bætur til aldraðra,
má ráða að um sé að ræða 2750 einstak-
linga yngri en 67 ára. Þetta verður at-
hugað nánar.
Lítum fyrst til þeirra sem lægstar
tekjur hafa, 376 einstaklinga og 26
samskattaðra með tekjur undir 4.500 kr.
á mánuði. Sennilega er þetta fólk á
hjúkrunarheimilum með framfærslu eft-
ir öðrum leiðum en lífeyrisgreiðslum frá
Tryggingastofnun. Þeim er því sleppt í
eftirfarandi yfirliti.
Þessar tölur eru staðreyndir, sem
ekki er hægt að véfengja. Þar sést að
ríkisvaldinu hefði ekki verið ofviða að
tryggja, að hver lífeyrisþegi hefði
a.m.k. 75.000 kr. í mánaðartekjur árið
1999, þrátt fyrir að það séu sultartekjur.
Til þess hefði þurft 1430 milljónir
króna, eins og tafla II sýnir, en neyðar-
hjálp Alþingis telur greinilega ekki
þörf á leiðréttingum. Gleymið heldur
ekki, að 1622 lífeyrisþegar (kjósendur)
hafa minna en 50.000 kr. á mánuði,
þrátt fyrir það að tekjum í þessum út-
reikningum er skipt jafnt á milli hjóna.
Ríkisstjórnin telur sig e.t.v. vera að
brjóta samkeppnislög með auknum
bótum, því að þá sé hún að skerða
samkeppnisaðstöðu Vetrarhjálpar og
annarra góðgerðastofnana sem vinna að
því að lina þjáningar aldraðra! Þetta er
kannski besta dæmið um frjálshyggjuna
í reynd! Þingmenn, sem hafa mörg
hundruð þúsunda í mánaðartekjur og
hafa nýlega hækkað laun sín hressilega,
gera sér sýnilega ekki grein fyrir lág-
marksframfærslu einstaklingsins í okk-
ar þjóðfélagi. Bæta má við, að sumum
þingmönnum duga ekki þessar hund-
ruðir þúsunda í mánaðarlaun!
Einnig má benda á þá staðreynd, að
það sem samsvaraði 75.000 kr. árið
1999 er á verðbólgutímum í dag a.m.k.
85.000 kr. Þá er ekki meðtalinn stór-
hækkaður læknis- og lyfjakostnaður,
stórhækkaðir eignaskattar á eigið íbúð-
arhúsnæði og fasteignagjöld til sveitar-
félaga í kjölfar hækkaðs fasteignaverðs.
Talaði ekki einhver stjómmálamaður
fjálglega um, að eldri borgurum ætti að
gera kleift að búa í eigin húsnæði eins
lengi og fært væri? Hækkað mat á eigin
húsnæði aldraðra skapar þeim engar
tekjur - orsakar þvert á móti aukin út-
gjöld. Öll þessi gjöld eru alltaf að
hækka langt umfram bætur til aldraðra.
Við höfum lengi, án nokkurs árang-
urs, verið að benda á að tryggingabætur
fylgja alls ekki eftir auknum álögum á
aldraða. Ég gæti trúað að margir aldraðir
álíti, að Alþingi nái mestri tign og reisn
með því að gera hluta af hæstu bótum
almannatrygginga skattskyldar!
Eitt besta dæmið um hugulsemi /
hugsun? ráðherra í ríkisstjóm okkar
kom fram 1. júlí sl. samhliða smávegis
hækkun sumra bóta til aldraðra. En
samdægurs tilkynnti heilbrigðis- og
tryggingaráðherra hækkanir á gjöldum
í eftirfarandi töflum eru allir, sem ekki ná umræddum
tekjuflokki, að áðurnefndum 402 einstaklingum undan-
skildum. Síðasta talan í hverri töflu sýnir hvað
tryggingabætur ríkisins hefðu þurft að hækka mikið í
milljónum króna á ári til þess að hver einstaklingur nái
viðeigandi lágmarkstekjum.
Raunverulegar tekjur 67 ára og eldri tekjuárið 1999:
Framteljendur Fjöldi Meðalt. „Viðbót" Heild. viðb.
kr/mán. kr/mán. m.kr/ári
Tafla 1, þeir sem hafa minna en 50 þúsund kr. á mán.
Einstaklingar 1 188 27786 22214 317
Samskattaðir 434 39460 10540 56
Samtals 1622 og heildarviðbót er 373
Tafla II, þeir sem hafa minna en 75 þúsund kr á mán.
Einstaklingar 2394 47192 27808 799
Samskattaðir 4354 62956 12044 631
Samtals 6758 og heildarviðbót er 1430
Tafla III, þeir sem hafa minna en 100 þúsund kr. á mán.
Einstaklingar 6935 73906 26094 2172
Samskattaðir 9618 75795 24205 2793
Samtals 16553 og heildarviðbót er 4965
34