Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 36
Ferðanefnd er jafnan starfandi í FEB á Akureyri. Sumarferðirnar eru fimm, þrjár stuttar og tvær
langar. Að vetrinum eru 2-3 leikhúsferðir í nærsveitir. Gönguferðir í Kjarnaskóg hafa verið viku-
lega í sumar og lengri óvissuferðir út að Gásum og til Hríseyjar. Þetta hefur mælst vel fyrir og
þátttaka verið góð.
í júní var dagsferð í kringum Vatns-
nes. Viku af ágúst var farið um endi-
langan Bárðardal. Haustlitaferð á Flat-
eyjardal var í september. Um miðjan
júlí var 5 daga ferð um Austurland og
gist í Svartaskógi. Fram undan er önn-
ur 5 daga ferð um Suðurland út frá
Örkinni í Hveragerði og Hótel Flúðum.
Austurland 16.-20. júlí
Ferðin hófst klukkan níu, í hægu en
fremur köldu veðri. Bílstjórinn okkar
var Sveinn Sigurbjarnarson, Svenni,
frá Eskifirði. Við ókum sem leið liggur
austur og áðum í Selinu á Skútustöð-
um. Eftir góðan stans þar héldum við
áfram, en lögðum lykkju á leið okkar
að kirkjunni á Víðirhóli á Hólsfjöllum
eftir hálfgerðri fjallabaksleið sem
Svenni læddist eftir með sinni alkunnu
lagni. Þarna er fallegt og grösugt, en
kirkjan var ósnertanleg - rammlega
neglt fyrir dyrnar.
Næst var stansað í Fjallakaffi í
Möðrudal sem er orðið úrleiðis. Síðan
fórum við í Sænautasel og þar fengu
sumir sér lummur og fleira góðgæti.
Eftir þetta var haldið rakleiðis í Svarta-
skóg. Þar fengum við elskulegar mót-
tökur, góðan mat og uppbúin rúm.
ANNAR DAGUR: Nú skyldi haldið á
Suðurfirðina, heimsækja Ella P. á
Breiðdalsvík og fara í siglingu með
honum. Smávegis þokuslæðingur var
suður Skriðdalinn, en svo birti til. Af
Breiðdalsheiðinni er víðsýnt og faguit
útsýni úr 500 m hæð, en vegurinn ligg-
ur síðan í mörgum sveigum niður í
Breiðdalinn sem er grösugur og bú-
sældarlegur. Þar eru margar jarðir
komnar í eyði, eins og svo alltof víða í
sveitum landsins.
Á Breiðdalsvík beið Elli skipstjóri
Elli P. við bátinn sinn Áka.
36