Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 38
Tekur upp tölvustýrða lyfjaskömmtun í
25 apótekum um land allt - Aukið
öryggi, betri nýting og meiri þægindi
Lyf £ heilsa hefur fyrst íslenskra lyfsölufyrirtækja tekið
upp tölvustýrða lyfjaskömmtun og er það gert í sam-
starfi við Lyfjaver ehf. Tölvustýrð lyfjaskömmtun hefur í
för með sér aukið öryggi við inntöku lyfja auk hagræð-
ingar fyrir neytendur og heilbrigðiskerfið. Markmiðið
með samstarfinu er að auka þjónustu við þá aðila sem
taka inn lyf að staðaldri og auka öryggi við lyfjainntöku.
Lyfjunum er pakkað í skammta fyrir hverja inntöku með
sjálfvirkum skömmtunarvélum og fær notandi þau af-
hent í rúllu þar sem hver skammtur dagsins er í sér-
merktum poka. Á pokanum koma fram upplýsingar um
lyfin, hver á að taka þau, dagsetningu og inntökutíma
þeirra. Skammtað er til 14 eða 28 daga í senn og notend-
ur lyfja geta sótt lyfin sín í næsta Lyf & heilsu apótek
eða fengið þau heimsend.
Tölvustýrð lyfjaskömmtun er öruggasta aðferð við
skömmtun lyfja sem völ er á. Skömmtunin kemur í veg
fyrir að lyfin fymist og nýting þeirra verður betri. Rekj-
anleiki lyfja verður meiri og lyfjameðferð sjúklinga í fast-
ari skorðum.
Aukið öryggi, hagræði og sparnaður
Bryndís Birgisdóttir lyfsöluleyfishafi í Lyf & heilsu í
Domus Medica segir að undirtektir hafi verið góðar og
mikið spurt um þjónustuna. Töluverður hópur sé byrjaður
nú þegar að færa sér þjónustuna í nyt. „Fólki finnst mik-
ill akkur í að þurfa ekki lengur að taka til lyfin sjálft
heldur fá þau tilbúin lil inntöku, merkt dagsetningu og
tíma. Áður þurfti fólk að finna ró og næði til að taka til
lyfin sín og koma sér að verki. Einnig þurftu vinir og að-
standendur hugsanlega að hjálpa til við að taka til lyfin,
en það er nú úr sögunni. Þessu fylgir aukið hagræði, þæg-
indi og öryggi. Það er fólki einnig mjög mikilvægt að það
greiðir eingöngu fyrir þau lyf sem það hefur fengið í
hendur, en þarf ekki að leysa út lyfseðla til t.a.m. næstu
þriggja mánaða. Notendur lyfja geta valið um boðgreiðsl-
ur eða beingreiðslu eftir samkomulagi við sitt apótek.
Notendur lyfja þurfa aðeins að útvega lyfseðla í upphafi
lyfjaskömmtunar, og ef breyting verður á lyfjameðferð
mun læknir tilkynna það til viðkomandi apóteþs og lyfja-
skömmtun verður breytt í samræmi við það. Eg hvet alla
þá sem telja að þessi þjónusta henti sér eða sínum að líta
við í næsta Lyf & heilsu apóteki og leita sér upplýsinga,“
segir Bryndís að lokum.
Boðið verður upp á þessa þjónustu í 25 apótekum Lyf
& heilsu um land allt og eiga því allir þeir sem nota lyf
að staðaldri auðvelt með að nýta sér þessa þjónustu.
Samstarfsaðili Lyf & heilsu, Lyfjaver ehf., hefur verið
brautryðjandi á þessu sviði hér á landi og er eini aðilinn á
landinu sem hefur reynslu af tölvustýrðri lyfjaskömmtun.
Fyrirtækið var stofnað í september 1998 og fékk starfs-
leyfi 12. ágúst 1999. Tveimur vikum síðar var skammtað
í fyrsta pokann og eru þeir nú orðnir tæplega 3 milljónir.
Lyfjaver hefur því mikla reynslu af þessu starfi og þar
hefur mikið þróunarstarf verið unnið.
38