Listin að lifa - 01.10.2001, Qupperneq 40

Listin að lifa - 01.10.2001, Qupperneq 40
Gaman er að heimsækja Guðna Karls- son í Þorlákshöfn, 81 árs, kvikan á fæti sem unglamb. Garðinn sló hann í gær, pressaði buxurnar sínar og straujaði þvottinn. Innandyra er allt hreint og strokið eins og hjá fyrir- myndarhúsmóður. „Má ekki bjóða þér bláber og rjóma?" segir hann. í eld- húsinu stendur full skál af nýtíndum bláberjum, húsbóndinn er nýkominn úr berjamó. Guðni hefur ekki alltaf verið svona hress. Hann missti kon- una sína, Helgu Þorsteinsdóttur, 1994 eftir nærri fimmtíu ára hjónaband og sá lengi allt svart framundan. „Já, maður fór ansi langt niður, missti mikið. Ég var ekki upp á marga fiska fyrst á eflir. Hér í næstu húsum er yndislegt fólk og tillitssamt. Ég á líka góð börn, en maður er samt alltaf einn eftir að missa maka sinn. Allir eiga nóg með sig.“ Þegar Helga var að veikjast, en hún dó úr krabbameini, fór Guðni og keypti sér nýja harmonikku. „Ég hef aldrei lært á hana, en alltaf þegar mér leiðist gríp ég í nikkuna. Núna í ágúst hef ég spilað á hana á hverjum degi, bara fyrir sjálfan mig.“ Vinkona Guðna, Guðrún Sæmunds- dóttir, hefur verið í skútusiglingu við Tyrkland með dóttur sinni og tengda- syni allan ágústmánuð. Guðni hlakkar mikið til að fá hana aftur. „Þetta er búinn að vera daufur mán- uður. Guðrún hefur hringt til mín, en mínútan kostar 400 kr. - of dýrt að tala saman. Ég vona bara að við getum farið í eina ferð áður en ég legg bílnum.“ Ford Econoline stendur við hús- dyrnar, tilbúinn fyrir haustferðina. „Það er allt í þessu, ísskápur, gashella og rennandi vatn,“ segir Guðni. ,A1að- ur er ekkert háður veðri í svona bíl. getum stoppað hvar sem okkur dettur í hug.“ Setkrókur breytist í tvöfalt rúm með einu handtaki, ferðasalemi er hluti af útbúnaðinum og fjórhjóladrifsbíll- inn kemst allt. Guðni er stoltur af gripnum. „Við keyptum hann í vor. Áður ferð- uðumst við í Volvojeppa sem var þröngur og erfiður. Þennan bíl eigum við saman,“ segir Guðni með áherslu - „og erum frjáls eins og fuglinn. Já, lífið breyttist mikið, þegar ég kynntist Guðrúnu. Einmanaleikinn hvarf. Fyrir fullorðið fólk, sem búið er að missa maka sinn, er nauðsynlegt að eignast góðan vin og ferðafélaga. Fyrir mig var það lífsspursmál. Við höfum gefið hvort öðm mikið. Alveg ómetan- legt hvað hún hefur reynst mér vel.“ Guðrún missti manninn sinn 1996. Viðbrögð hennar vom svipuð og Guðna. Hún fór langt niður og vildi loka sig af. Vinir hennar drifu hana út með sér eitt laugardagskvöld, sögðu 40

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.