Listin að lifa - 01.10.2001, Side 45

Listin að lifa - 01.10.2001, Side 45
Sá sem lokar sig inni, lokar sjálfan sig úti Tilfinningin að vera hluti af hópnum veitir kjark. Við hittumst vikulega, um 20-24 saman, allt lífeyrisþegar og meðalaldur er 78 ár. Einn hefur lesið eitthvað áhugavert í blaðinu, annar hef- ur farið á tónleika, þriðji hefur séð þátt í sjónvarpinu, og allir vilja umræður. Að halda orðinu gangandi er það sem gildir - og þjálfa sig í að hlusta og skilja og tjá sig. Mitt hlutverk er að skynja hvað þau vilja rökræða frekar og hjálpa þeim til að koma verkefnum á framfæri. Leikspuni er stór þáttur í okkar samveru. Við færum ákveðið ástand í leikbúning, eins og t.d. hvað eldra fólk talarmikið um veikindi. Spaugi- lega hliðin kemur í ljós, þegar sjúkra- sögumar eru orðnar að innbyrðis sam- keppni í leikspunanum. Ometanlegt er að geta fengið fólk til að hlæja að sjálfu sér. Já, við leikum og syngjum, og blindir og heyrnarlausir í hópnum kunna leikina og söngvana utan að.“ Áskoranir í lífinu og ný við- fangsefni halda okkur frísk- um og gangandi Meðal fyrstu viðfangsefna okkar voru: „Æskan“, „Vöru börn og unglingar betri þá?“ „Manstu skóladagana?" sem varð mjög vinsælt. Lífeyrisþegar sögðu frá sínum skóladögum, frá prakkarastrikum og leikjum. Gamlar skólabækur voru dregnar fram og rætt um kennsluaðferðir fyrr og nú. Síðan höfðum við samband við skólana. Spurðum hvað bömin lærðu núna og hvemig - og buðum að segja frá göml- um skóladögum. Skólaheimsókn var næst á dagskrá. Við sendum skýrslu um þá heimsókn til krakkanna, sem fóm að senda okkur ritgerðir. Menning er heilsa Við létum þetta ekki nægja, heldur heimsóttum líka háskóla, iðnskóla, leikskóla og fleiri menntastofnanir. Þessi tengsl hafa leitt til þess að nú koma lífeyrisþegar víða inn í kennsl- una. Hverjir geta líka sagt betur frá hemáminu, gömlum lífsháttum o.s.frv.? Við getum ekki lifað án for- sögunnar; eldra fólkið fylgir arfleifð- inni til næstu kynslóðar. Gamla fólkið getur líka gefíð börnunum það sem þau sakna mest: Tíma til að tala við Gamlir eru ungir sem hafa elst þau! „Það besta við ömmu er að hún hefur alltaf tíma,“ sagði einn ungling- urinn. Öll höfum við verið ung,“ segir Ulla og varpar fram frábæru spak- mæli: Gamlir eru ungir sem hafa elst! Tengslin við börnin og unglingana leiddi til þess að bókin „Kæru böm og barnabörn" varð til - bók um, hvemig það er að eldast, skrifuð af eldra fólki. Viborg-hópurinn undir leiðsögn Ullu Brite hefur gefið út margar bækur, ein þeirra „Vel sagt, þú gamli!“ hefur að geyma spakmæli og hugleiðingar sem vert er að geyma með sér. Farið út og safnið hughrifum - njótið þeirra svo heima Já, skemmtileg tengsl hafa þróast á milli kynslóðanna hjá Viborg-hópnum, og leikþáttur þeirra „Jarðarför í kyrr- þey“ hefur vakið athygli hjá ungling- um. Eftir sýninguna spinnast upp um- ræður. Eldra fólkið, sem búið er að svið- setja eigin jarðarför, vekur máls á því hjá unga fólkinu hve mikilvægt er að varðveita lífíð á meðan maður á það, og hve mikilvægt er að fínna eigin lífs- gildi. „Gildi lífsins felast m.a. í gömlum fjölskylduhefðum sem mikilvægt er að varðveita. Máltíðin er stór þáttur í líf- inu hjá okkur Dönum, gamlar upp- skriftir og réttir eru óþrjótandi um- ræðuefni, kakan hennar ömmu, kjöt- bollurnar hennar mömmu halda fjöl- skyldunni saman! Gamlar hefðir við matborðið eru ekki síður mikilvægar - hvað talaði fólk um þá?“ Ulla bindur á sig rauða svuntu. Hjartað á svuntunni er merki Viborg-hópsins, minnir á að hjartað á alltaf að slá fyrir einhvern! Flestir vilja lifa lengur, en enginn vill vera gamall Gildi lífsins felst líka í framkomu fólks við meðbræður sína. „Við þurfum að vera á varðbergi," segir Ulla. „Takið eftir hve margt breytist í viðmóti fólks gagnvart eldra fólki! Tökum ljós- myndun sem dæmi. Við viljum sjá lík- amlega fegurð á ljósmyndum og alltaf er verið að taka myndir af börnum. Eft- ir því sem aldurinn færist yfir dregur úr myndatöku. Lítið er um myndir séu teknar af eldra fólki. Sárast er, þegar enginn tekur ekki eftir manni!“ Ulla lét ekki sitja við orðin tóm, en kallaði til ljósmyndara og lét taka fullt af myndum af hópnum sínum. Viborg- hópurinn stóð síðan fyrir sýningu á ljósmyndunum. „Fegurð og mikil saga geislar út frá andlitunum á sýning- unni,“ segir Ulla. „Brosandi konur með fína hatta endurspegla gamla tím- ann. Andlit gamla mannsins, sem er nýbúinn að yfirvinna fímmta hjartaá- fallið, segir líka mikið.“ Ulla gleymir ekki eldra fólkinu sem liggur ósjálf- bjarga. Við það segir hún: „Endurvekj- ið í huganum fallegar myndir frá liðn- um stundum til að gleðja ykkur!“ Við vinnum öll saman að því að skapa gleði Hópur Ullu Brite stendur árlega fyrir ömmu- og afadegi. Ungir og gamlir eru með leikspuna, syngja saman, fara í leikfimi, fitja upp á gömlum leikjum og dansa saman, búa til leikföng, baka kökumar hennar ömmu og bollurnar hans afa. Dagblaðið í Viborg er með ömmu- og afablað í tilefni dagsins. Farið er í ömmu- og afaskoðunarferð um bæinn, ömmu- og afasiglingu, og á Viborg-safninu leiðbeina afar og ömmur gestunum. Lífsmáti Ullu Brite og Viborg-hópsins er vissulega góð fyrirmynd. ‘É,<ýcV.% 45

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.