Listin að lifa - 01.10.2001, Page 48
Alkort
Fjölskylduspil frá 17
Þrjú hæstu spilin í alkorti eru:
Tígulkóngur, hjartatvistur og laufafjarki
Ýmsir hafa spurt mig um alkort að undanförnu. Nafnið
þykir forvitnilegt, en því miður er uppruni þess ekki
með öllu Ijós. Spil þetta virðist hafa verið algengt í
mörgum sveitum hér á landi allt frá 17. öld a.m.k. og
hefur vafalaust borizt erlendis frá. Lengst mun það hafa
verið spilað að vetri til í Vestur-Skaftafellssýslu og eitt-
hvað fram eftir síðustu öld.
Ég lærði spilið barnungur af foreldrum mínum, sem
fluttu það með sér úr átthögum sínum eystra til Reykja-
víkur. Var það lengi vel helzta spilið á heimili okkar, en
vist var spiluð samhliða, og svo mun hafa verið í Vestur-
Skaftafellssýslu.
Ég vil benda þeim, sem áhuga hefðu á að kynnast al-
korti, á tvær greinar, sem ég tók saman, en eru að miklu
leyti reistar á lýsingu Ólafs Davíðssonar frá lokum 19.
aldar. Hún birtist í því mikla riti hans, sem heitir ís-
lenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur, II. b.,
327.-331. bls. og út kom um og eftir 1890. Önnur grein
mín er í þessu blaði í desember 1999 og hin, sem er mun
ýtarlegri, birtist í jólalesbók Mbl. 1999.
Þegar ég hóf að kynna alkortið í FEB og leiðbeina
mönnum um spilareglur haustið 1998 í Þorraseli, voru
undirtektir minni en ég hafði vænzt. Var þá spilað á
tveimur til þremur fjögurra manna borðum eða tólf
manns, þegar bezt lét. Þeir, sem þá komu til leiks, höfðu
fæstir kynnzt alkorti áður og höfðu jafnvel ekki heyrt
þess getið fyrr en þá. í vor var hins vegar svo komið, að
spilað var að jafnaði á fjórum borðum og jafnvel fimm.
Ég hlýt að játa, að ég hef haft ánægju af að leiðbeina
fólki við að spila alkort og ekki sízt að hafa orðið var við
þann áhuga, sem það sýnir hinu forna spili. Veit ég jafn-
vel dæmi þess, að hjón, sem hafa fylgzt með frá upphafi,
hafa kennt ungum barnabörnum sínum alkortið og þau
einnig haft gaman af.
Þegar ég hóf kynningu mína á alkoitinu, var svo komið,
að ég held, að það var á hraðri leið út úr þjóðlífi íslendinga
og hafði hvergi verið spilað nema í fjölskyldu minni, svo að
ég vissi til. Eftir að foreldrar mínir létust, hvarf það einnig
heima hjá mér, því að engir fylltu skörð þeirra.
Nú hefur hópur þessi komið saman aftur til þess að
halda alkortinu við. Enn er því gott tækifæri fyrir þá, sem
vildu kynna sér þetta gamla spil, að slást í hóp okkar. Hef-
ur verið ákveðið að hittast á þriðjudögum kl. 13.30 í félags-
heimilinu Ásgarði í Glæsibæ. Verður spilað í þrjár klukku-
stundir eða svo. Þeir, sem áhuga hafa á að kynnast alkorti,
eru mjög velkomnir í hóp okkar. Þá er orðið auðvelt að
komast fljótt niður í spilinu, þar sem svo margir kunna
það vel og eru færir um að leiðbeina byrjendum.
Játv s4ðalsieitui ‘jjáns&aw
FEBí
Reykjavík
Jólakortið 2001 vann til verðlauna, eins og fram kemur á
öðrum stað í blaðinu.
Félagið í Reykjavík sendir jólakort til félagsmanna sinna
og annarra velunnara, en allir geta pantað jólakort
félagsins í síma 588-2111, eins lengi og birgðir endast.
Ágóði af sölu jólakortanna rennur í félagssjóð til að standa
undir baráttu fyrir bættum kjörum eldri borgara.
Pakkiim með 7 jólakortum og 7 jólamerkispjöldum í stíl er
á 600 krónur.
--------------1------------------------------------------
TIL:
FRÁ:
48