Listin að lifa - 01.10.2001, Side 49

Listin að lifa - 01.10.2001, Side 49
yfir og aílt um kring Séra Bernharður Guðmundsson er nýskipaður rektor Skálholtsskóla. Sérstætt fagnaðarefni fyrir eldri borgara að fá lífsreyndan 64 ára mann sem sér hylla undir eigin starfslok - í ábyrgðarstöðu á einu af þremur merkustu höfðuðbólum íslands. Ein af hugsjónum Bernharðs sem nýs rektors er að móta nýjan menningarvettvang fyrir eldra fólk í Skálhoiti. „Sagan er þar yfir og allt um kring,“ segir Bernharður. „Ferðalag okkar skólasystkinanna um daginn er forsagan að þessu. Svo und- arlega brá við, kannski er það ekki svo undarlegt, að umræður okkar snerust mikið um starfslok og hvaða verkefni ættu að taka við. Sumir hlökkuðu til starfslokanna. Aðrir síður. Mörgum óaði við að verða hópur sem þyrfti að gera eitthvað fyrir. En eitt vorum við öll sammála um - hvað það er gaman að hittast og spjalla, því að eins og Sigurður Nordal sagði eitt sinn: „Það skemmtilegasta sem ég þekki, fyrir utan að vera einn með sjálfum mér þegar ég er vel upplagður, er að vera með lifandi, frjóu fólki." Eftir að ég fór að búa í Skálholti sé ég æ betur hvað staðurinn er heillandi. Þessi mikla kyrrð. Nærvera sögunnar. Vídd eilífðarinnar sem kirkjan bendir á. Þá kom upp þessi hugmynd að bjóða upp á samverur eldra fólks í Skálholti, sem mætti kalla umræðudaga, 2-3 í einu. Umræðuefni yrðu tekin fyrir sem skipta máli fyrir lífsreynt og þroskað fólk undir forystu hæfra umsjónar- manna. Margt gæti komið til. eins og rökræður urn missinn í lífinu, að missa æruna, tapa sjálfsmynd, missa maka, missa starfið. Skoða sögu þess tíma sem við höfum lifað. Miðla hvort öðru af minn- ingum og reynslu. Kanna áhrif fjöl- miðla á sjálfsmyndina. Umræðuefnið á að vera ögrandi og skemmtilegt. Ég sé líka fyrir mér leiklistardaga. Leiklistin er áhugasvið margra. Þátttakendur myndu æfa stutta þætti úr kunnum verkum undir stjórn atvinnuleikstjóra, sem gæfi nýja innsýn í leikhúsið og gerði okkur kleift að njóta leikhúsferð- anna betur. Söngdagar koma líka upp í hugann. í söng mætumst við öll, og slík samvera gæti auðveldað okkur að fara í kór. Áreiti af há- værri popptón- list þarf fólk ekki að óttast. Klassísk tónlist er alltaf undir borðum, annað hæfir ekki í kyrrð þessa sögu- staðar. í Skálholts- skóla er góð gistiaðstaða, róm- aður matur og hæfilegar göngu- leiðir. Tæp stund- arganga er að Þorlákshver, en Þorlákssæti og Skólavarðan í ná- grenninu. Gest- um er ætíð boðið upp á staðarskoð- un og geta valið hversu ítarleg hún er.“ Skál- holtsskóli býður líka upp á mið- aldakvöldverð, forvitnilegan matseðil. „Handrit með gömlum uppskriftum hafa fundist sem matseðillinn er byggð- ur á. Miðaldamáltíðin er frá tíma Þor- láks helga á 12. öld, þegar lambakrofið, eins og það var nefnt, var kryddað með blóðbergi og einiberjum, og fjalla- bleikjan borin fram með ferskum hvannablöðum og túnsúru. Mjög sér- stæður mjöður er borinn með, einnig rauðvín eða kryddvín eftir gamalli upp- skrift. Staðarstúlkur ganga til borðs klæddar miðaldabúningum. Borðhaldið er sagnaríkt og veislugestir biðja gjarn- an um uppskriftirnar! Bernharður minnist líka á dagsferðir í Skálholt með staðarskoðun að morgni, umræður um miðjan dag og kvöldverð áður en heim er haldið. „Sumir vilja alltaf sofa í eigin rúmi,“ segir hann brosandi. „Annars vil ég skipuleggja þessa menningardaga í Skálholti með forystufólki FEB. Það tryggir að allir korni vel hvíldir og endurnærðir eftir Skálholtsdvöl. Eldri borgarar eru mikið velkomnir til Skálholts.“ Frædsludagar í Skálholti Samband eldri borgara og Skálholtskóli bjóða til fræðsludaga í Skálholti 29.-31 október. Með fyrirlestrum og almennum umræðum verður fjallað um þrjú áhugaverð málefni: a. Söguleg skoöun síðustu 70 ára út frá lífsreynslu okkar b. Fjölmiðlar og eldri borgarar, hvernig má nota fjölmiðlana en varast að vera notaður af þeim c. Skálholt í íslenskri sögu, veraldarvafstur og viðkvæm örlög. Auk þess verða kvöldvökur, gönguferðir, staðarskoðun og boðið til tíðasöngs að hætti fyrri tíðar í Skálholtskirkju. Gert er ráð fyrir 25 manna hópi og verður dvalarkostnaður með fuliu fæði í tveggja manna herbergjum með sérsnyrtingu í húsa- kynnum skólans kr. 4.700 á dag á mann en kr. 4.300 ef gist er í herbergjum með sameiginlegri snyrtingu í annexíum á hlaðinu. Sr. Bernharður Cuðmundsson rektor í Skálholti hefur umsjón með fræðsludögunum. lUánari upplýsingar og skráning hjá aðildarféögum FEB og í Skálholtsskóla, sími 486 8870. 49

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.