Listin að lifa - 01.10.2001, Qupperneq 52
skammtaðan í bökkum. Ef þetta er
meiri fyrirhöfn fyrir starfsfólkið, sem
oft er önnum kafið við að sinna þeim
sem ekki geta borðað sjálfír, þá gætu
sjálfboðaliðar aðstoðað og haldið uppi
samræðum eins og við venjulegt heim-
ilislegt borðhald. Maður er manns
gaman!
Framtíðardraumar
Sumir vistmenn eru kannski rólfærir
og gætu haft gaman af að fara út með
sjálfboðaliðum. Gönguferðir væri hægt
að skipuleggja um nágrennið eða stutt-
ar ferðir á söfn eða aðra viðburði. Sjálf-
boðaliðar geta gert margt til að létta
meðbræðrum sínum lífið. Samtímis
njóta þeir þess að geta verið einhverj-
um að liði. Það er góð tilfinning. Þetta
er ekki til að spara ríkinu starfsfólk og
fjármuni, heldur viðbótarþjónusta til
að auka lífsgæði aldraðra.
Umræða þarf að fara af stað, hvemig
hjúkrunarheimili við viljum í framtíð-
inni, hvaða viðhorf við höfum til með-
bræðranna, hvaða lífssýn á að móta
dagleg störf á stofnunum okkar og
hvar nýta megi framlag sjálfboðaliða.
Sjálfboðaliðar úr röðum aldraðra eiga að
taka þátt í þessari umræðu og upp-
byggingu undir stjórn fagfólks, sem
búið er að móta þá stefnu að persónu-
legar þarfir einstaklingsins hafi for-
gang.
Sameinuðu þjóðimar hafa útnefnt
árið 2001 Ár sjálfboðaliða - og nú aug-
lýsi ég eftir sjálfboðaliðum úr röðum
aldraðra til að styðja aldraða. Eg tel mig
hafa reifað að þörfin er fyrir hendi og
verkefnin eru mýmörg. Og af reynslu
veit ég, hve gefandi og mannbætandi
það er að starfa sem sjálfboðaliði - því
að maður er manns gaman!
‘tPálúia/ ‘Jáasdátlk/
Friðar- og kærleikskort
Jólakort FEB í Reykjavík
Hugljúfasta hugmyndin að jólakorti kom frá Guðlaugu Ingibjörgu
Sveinsdóttur frá Egilsstöðum, en samkeppni um jólakort var auglýst í
júníblaðinu.
„Ég vona að jólakortið færi öllum frið og kærleika," segir Guðlaug. „Ég
vildi skapa jólakort sem gæti fært fólki gleði og frið og góðan boðskap.
Heimurinn þarf Ijós og kærleika. Myndin kom yfir mig strax og ég
settist niður - María með barnið. Kærleikurinn hvílir í Ijósunum í
kringum þau, en kertin senda útgeislun í mismunandi sterkum litum.
Jörðin er svolítið dekkri núna á bak við Maríu og Jesúbamið.“
Guðlaug er ljósmóðir og starfaði lengi austur á Héraði. Oft ein undir
erfiðum kringumstæðum, en iðulega skynjaði hún sterka strauma sem
hjálpuðu. „Stórkostlegur atburður í hvert skipti sem bam fæddist, þá var
eins og þreytan sópaðist í burtu.“
Ákall!
Megi eilíft Ijós friðar og kærleika umvefja jörðina okkar.
Megi friður, skilningur og sátt ríkja milli manna og þjóða.
Guðlaug stríddi við veikindi sonar í mörg ár sem hún missti. Vanlíðan
hennar varð yfirþyrmandi. Þá tók hún sig til og skrifaði langa ritgerð
um þjáninguna sem hún brenndi. Henni fannst logarnir bera sorgina
burt. I framhaldi af þessu fór hún að mála. Guðlaug er þegar búin að
eyða einum vetri í myndlistarskóla og er aftur að setjast á skólabekk.
„Þessi verðlaun eru mikil hvatning. Megi jólakortið strá birtu og friði.“
Orðin aftan á kortinu komu líkt og hugljómun yfír Guðlaugu eins og
myndin sjálf. „Jarðarbúar þurfa að hlúa að innra ljósi til mótvægis við
hatursbylgjuna sem leiddi til voðaverkanna sem nú senda öldu-
hreyfingar um allan heim,“ segir Guðlaug.
Félagið þakkar þeim sem sendu hugmyndir að jólakorti - og óskar
Guðlaugu til hamingju.
Guðlaug á sýningu á verkum sínum.
52