Iðnaðarmál - 01.03.1957, Blaðsíða 7

Iðnaðarmál - 01.03.1957, Blaðsíða 7
Nokkur orð UM FÚAVÖRN Á TIMBRI Ejtir INGÓLF B. GUÐMUNDSSON jramkvœmdastjóra Frá örófi alda hefur timbur verið eitt helzta byggingarefni manna. End- ing þess er tímabundin eins og allra hluta. Timbur tekur litaskiptum og fúnar, ef nægur raki er fyrir í því. Það þrútnar við bleytu og dregst saman og springur við öra þurrkun. Þessir eiginleikar hafa valdið því, að ýmissa ráða hefur verið leitað til þess að bæta úr þessum ágöllum og gera timbur svo, að það taki ekki þessum öru breytingum, og til þess að auka endingu þess. Tegundir fúavarnarefna Þær aðferðir, sem notaðar eru til þess að auka endingu timburs, fara eftir því, til hvers á að nota það. Þó er tilgangurinn alltaf hinn sami — að koma í veg fyrir fúa. geislavirknin dofnar smám saman, verÖur að endurnýja geislagjafann eftir nokkurn tíma, sem er því lengri sem helmingatími ísótópsins er lengri. Iridíum og þúlíum hafa helm- ingatíma 70 og 130 daga, og þarf þá að endurnýja þessi efni á 3—6 mán- aða' fresti. Helmingatími kóbolts-60 er rúm 5 ár, og dugir því sami geislagjafi af því í mörg ár. Kostnaður geislunartækjanna er mismunandi eftir stærð. Tæki, sem tekur iridíum-192, kostar rúm £ 400 með fjarstýristækjum. Sjálfur geisla- gjafinn er ódýr, £ 10 til £ 30 eftir styrkleika. í mörgum löndum er það skvlda að skyggna málmsteypur og rafsuðu, og er að því mikið öryggi og trygg- ing. Þar sem tæki þau, sem til þarf, eru bæði ódýr og einföld í meðför- um, má teljast sjálfsagt að taka upp notkun þeirra hér á landi. Að jafnaði er fúavarnarefnum skipt í 3 flokka: 1. Efni úr koltjöru, svo sem hreint kreósót eða það efni blandað öðrum efnum tjörunnar. 2. Olíuuppleysanleg efni, sem ekki leysast upp í vatni, en eru uppleysan- leg í alls konar olíum. Bezt þekktu efnin í þessum flokki eru penta- chlorophenol og kopar-naphtenat (eir- olía). 3. Vatnsuppleysanleg sölt, eins og t. d. zinkklóríð, króm-zinkklóríð, koparsúlfat, natríumflúoríð, kvika- silfurklóríð, zink-arsenít o. s. frv. Hvert þessara efna hefur sína ákveðnu eiginleika og eru notuð eftir því. T. d. hefur koltjaran sterka lykt og dökkan lit og er því óhæf til notk- unar, þar sem slíkt á ekki við. Mörg hinna vatnsuppleysanlegu fúavarnar- efna ná vel inn í viðinn, en þegar hann blotnar, leysast þau upp og renna út úr honum. Eru þau því yfir- leitt ekki notuð, þar sem timbur er oft í beinni snertingu við bleytu. Þá eru aftur á móti olíuuppleysanlegu efnin oft notuð, því að vatnið leysir þau ekki upp. Og þar eð þau hafa ekki hina sterku lykt og lit tjörunn- ar, má nota þau í stað hennar, þar sem hún er óheppileg vegna þessa. Raki og ending málningor Raki er reiknaður í hundraðshlut- um eftir þurrvigt timbursins. Blautvigt - burrvigt Rakamagn % =------------------- X 100 Þurrvigt Ef rakastig timburs er 18% eða minna, getur fúi ekki þrifizt í því. Því er hin öruggasta leið til að fúa- verja timbur að þurrka það, en jafn- framt því þarf að ganga svo frá eftir þurrkunina, að það haldi í sér því rakamagni, sem til er ætlazt. Algeng- asta aðferðin til þess að halda raka- stigi timbursins er að mála það eða lakka. Þó hefur á síöari árum mjög rutt sér til rúms ídýfing í fúa- og rakavarnarefni, áður en málun eða lökkun er framkvæmd. 1. mynd. Timbur júa- varið með ídýfingarað- jerð. Pallar eru notaðir til að auðvelda með- jerð. IöNAÐARMÁL 47

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.