Iðnaðarmál - 01.03.1957, Blaðsíða 10

Iðnaðarmál - 01.03.1957, Blaðsíða 10
UMBÚÐA- IDNADUR Greinin er skrijuð af GUÐM. H. GARÐARSSYNI Myndirnar teknar af ANDRÉSI K0LBE*INSSYN1 Verksmiðjuhús Kassagerðar Reykjavíkur. Um þessar mundir eru tuttugu og íimm ár liðin síðan fyrsta íslenzka fyrirtækið í umbúðaiðnaði var sett á fót. Var það Kassagerð Reykjavíkur, sem var stofnuð af þeim Kristjáni Jóhanni Kristjánssyni og Vilhjálmi Bjarnasyni trésmiðum. Iðnfyrirtæki þetta, sem nú starfar með miklum blóina, tók til starfa hinn 16. júlí 1932 í gömlum húskumbalda við Pósthússtræti. Var starfsemi þess hafin af miklum vanefnum. Vélar til umbúðaframleiðslunnar voru þá ekki margbrotnar, því að byrjað var með lítilfjörlegum og ófullkomnum tré- smíðavélum, sem legið höfðu í óhirðu í skúr úti á Seltjarnarnesi. Ekki munu þeir hafa verið margir, sem hafa verið trúaðir á, að næg verkefni væru fyrir slíkt fyrirtæki hér á landi á þessum tíma. Helztu umbúðir úr tré voru þá kassar utan um smjörlíkispakka, sem voru fluttir í þeim til verzlana í Reykjavík og út um land, og trékassar fyrir saltfisk, sem flytja átti út til Suður-Ameríku. Voru þeir smíðaðir í Noregi og Sví- þjóð og fluttir hingað ósamsettir. smiðjuhúss, öflun sérstakra véla fyr- ir umbúðaframleiðslu og skapa sér möguleika til að flytja sjálfir inn efnivið í umbúðirnar, en það er mjög mikilvægt, að notaðar séu rétt- ar viðartegundir í þær. Með þraut- seigju og mikilsverðum stuðningi frá mætum íslendingi í Winnepeg í Kan- ada, sem rak sams konar iðnað þar í stórum stíl, tókst að sigrast á örðug- leikunum og leggja grundvöllinn að því merkilega fyrirtæki, sem nú framleiðir umbúðir utan um alla hraðfrysti framleiðslu landsmanna, ísvarða (frysta) síld, harðþurrkaðan saltfisk, jarðávexti, tómata, kex, sápu, kerti, svo að nokkur dæmi séu nefnd, fyrirtæki, sem framleiðir um- Fyrstu ár þessarar merku greinar í íslenzku atvinnulífi voru sannkölluð erfiðleikaár, þrátt fyrir það að eftir- spurnin ykist stöðugt eftir alls konar umbúðum utan um ýmiss konar framleiðslu, eins og t. d. ísvarinn fisk og hraðfrystan, en útflutningur þess- ara afurða fór þá vaxandi. Það, sem einkum olli erfiðleikunum, var, að húsrými var alltof lítið og vélar ófull- komnar, samkeppni við innfluttar umbúðir, sem framleiddar voru við mun betri skilyrði, var afarhörð, og jók það á erfiðleikana, að kaupa varð allt timbur í umbúðirnar af innlendum timburverzlunum af birgðum, sem ætlaðar voru til húsa- gerðar. Forráðamönnum fyrirtækisins var þegar Ijóst, að ef þeim ætti að takast að ryðja brautina fyrir þennan iðn- að hér á landi, yrðu þeir að hefjast handa um byggingu fullkomins verk- T. Ii.: Aprentunarvél fyrir bylgju- og pappakassa. Neðan: Neglivélar.

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.