Iðnaðarmál - 01.03.1957, Qupperneq 14
NYTSAMAR
MÝJUMGAR
2
Hillugrindur o. fl.
Iðnaðarfyrirtæki, sem nota mikið
af smáhlutum (t. d. boltum og skíf-
um), eiga oft við það vandamál að
stríða, hvernig geyma skuli og fara
með slíka hluti. Þá er og mikilvægt,
að auðvelt sé að ná til hlutanna.
Þennan vanda má leysa með því að
velja rétt geymsluhólf undir hlutina
og staðsetja þau vel og skynsamlega.
Hér verður gerð nokkur grein fyrir
helztu nýjungum á þessu sviði.
Fjölskiptar hillugrindur. Grindumar
eru settar í langar raðir í geymslusal
fyrirtækisins, og á þeim má geyma
mikið af smáhlutum, sem starfsmenn
geta auðveldlega náð til. Hillugrind-
ur eru venjulega þannig úr garði
gerðar, að hillurnar má flytja til eft-
ir því, hversu stór hilluhólfin eiga að
vera. Fyrir mjög smágerða hluti (t.
d. bolta, skrúfur, skífur o. þ. h.) eru
notaðar grindur með mörgum litlum
stálskúffum.
Að sjálfsögðu ætti að merkja
hverja grind greinilega, svo að nýir
starfsmenn fyrirtækisins géti auð-
veldlega fundið þá hluti, sem þeir
eiga að sækja hverju sinni, enda er
þá einnig miklu greiðara að fylgjast
nákvæmlega með birgðum fyrirtæk-
isins.
Grindurnar eru misjafnlega langar,
eftir því sem hvert fvrirtæki óskar.
Fyrir sumum gerðum af þessurn
grindum eru rennihurðir, sem halda
hlutunum hreinum, en tefja að vísu
nokkuð fyrir, þegar verið er að
sækja hlutina.
Sérstakar gerðir hillugrinda eru
notaðar á vinnustaðnum sjálfum. A
1. mynd sést ein gerð, sem er sér-
54
IÐNAÐARMÁL